Æskan - 01.10.1988, Side 26
Skátaþáttur
l]msjón: Stefan Mar
09
Að finna Högnastaði
hlöðu uið hesKaupstað.
t •
Nú er skátastarfið hafið af krafti víðast
hvar á landinu og skátafélög farin að
senda tilvonandi flokksforingja á nám-
skeið.
Eitt slíkt námskeið var haldið í skíða-
skálanum í Oddsskarði helgina 9.-11.
september sl. Þangað komu krakkar frá
Neskaupstað, Egilsstöðum og Eskifírði.
Skátunum, sem voru um 30, var skipt í
fíóra flokka og var reynt að koma því svo
fyrir að skátar frá öllum stöðunum væru
í hverjum hópi. Hver flokkur, sem í
voru 5-8 skátar, fékk svo fyrsta starfs-
verkefni sitt en það var að búa til nafn,
söng og hróp fyrir flokkinn. Einnig átti
flokkurinn að velja sér flokksforingja.
Með þessari flokkavinnu er verið að fá
fram hugmyndir hvers skáta og efla sjálf-
stæði hans.
Á námskeiðinu lærðu skátarnir á átta-
vita, að hnýta hnúta og súrringar, leiki
og söngva, skyldur foringja, áætlanagerð
og fleira. Það skemmtilegasta var svo
Hike-ferð þar sem flokkarnir gengu eftir
korti að stöðum sem þeir áttu að fínna og
voru eyðibýlið Högnastaðir og hlaða við
Neskaupstað. Á leiðinni leystu þeir
verkefni og þegar á áfangastað var komið
grilluðu þeir banana með súkkulaði og
pylsu í brauði. Um kvöldið voru flokk-
arnir með kvöldvöku.
Flokkarnir fóru saman tveir og tveir
og komu til baka í skálann kl. 11 daginn
eftir og gafst þá tími til að ræða um ferð-
ina, rifía upp hvað gleymdist og hvað fór
vel. Auðvitað höfðu krakkarnir frá
miklu að segja eftir velheppnaða ferð.
Skátarnir á Neskaupstað heita Nes-
búar og hefur verið gott starf hjá þeim. í
sumar fóru þeir á skátamót í Ásbyrgi og
buðu skátaflokki frá Fellabæ við Egils-
staði með. Á Eskifírði hefur ekki verið
skátastarf í mörg ár en verið er að kanna
möguleika á því. Ásbúar á Egilsstöðum
eru komnir af stað eftir nokkurt hlé.
Arngrímur Blöndal frá Eskifirði sá um kennslu á áttavita.
^tZ,!9"SSKðm ^ennir Sirgi ^
Réttur hnútur