Æskan - 01.02.1992, Síða 6
SNJORINN
s
njórinn myndast þeg-
arlofthiti ferniðurfyr-
ir frostmark, oftast nær
þannig að vatnsguf-
urnar í loftinu breytast
í fast efni án þess að breytast fyrst í
vatn.
Vísindamenn segja að vatnseind-
irnar þurfi að ná sér í kjarna áður en
þær geti kristallast. í efri loftlögum er
mikið af ryki, smákristöllum úr
snjónum og plöntufrjói. Að þessum
ögnum dragast vatnseindirnar og
mynda þar líkt og fylkingar.
Grikkir hinirfornu nefndu snjó-
inn „vatns-ull“. Þeir litu á hann sem
heild og dáðust að fegurð hans enda
þótt hún komist ekki í neinn sam-
jöfnuð við fegurð hinna einstöku
ískristalla.
Reglubundin lögun einstakra
snjókorna og takmarkalaus marg-
breytni þeirra uppgötvaðist ekki fyrr
en smásjáin kom til sögunnar. Nú á
seinni árum hafa snjókorn verið
varðveitt þannig að steypt er utan
um þau með þunnu plastefni sem
er gangsætt og harðnar afar fljótt.
Síðan má raða þessum snjókornum
á glerfjalir, geyma þau þar lengi, at-
huga þau í smásjá og taka af þeim
Ijósmyndir.
Þessar rannsóknir hafa leitt í Ijós
að engin tvö snjókorn eru nákvæm-
lega eins enda þótt flest þeirra séu í
líkingu við sexhyrnda stjörnu. Marg-
breytileikinn er sem sé takmarka-
laus. Stundum kemur það fyrir þótt
sjaldan sé að snjókorn séu þríhyrnd.
Vísindamaður einn, sem lengi hef-
urfengist við snjórannsóknir, hefur
tekið Ijósmyndir af 4000 mismun-
andi tegundum þeirra. Annar vís-
indamaður hefur giskað á að enda
þótt þúsund milljónir snjókorna falli
samtímis á eina ekru lands þá séu
engin tvö þeirra nákvæmlega eins.
Slík er fjölbreytnin í listaverkum nátt-
úrunnar.
Snjórinn minnir ósjálfrátt á hvít-
an lit en þó er snjór ekki alltaf hvít-
ur. Þar sem snjókornin kristallast í
loftinu eru þau glær og gagnsæ eins
og gler. En þegar þau falla í dyngju
til jarðar eða skefur í skafla þá sýn-
ist sjórinn hvítur vegna þess að krist-
allar hans endurkasta Ijósinu jafnt í
allar áttir.
Snjókorn eru létt vegna þess að
alltaf er nokkuð af lofti í þeim. Þyngd
snævar er ekki nema 1/15 af þunga
íss en ísinn aftur á móti 9/10 af
þunga vatns.
Það ereinkennilegtvið þau snjó-
korn sem myndast við lítinn kulda
að þau eru miklu stærri en hin sem
myndast í miklu frosti. Snjór, sem
fellur í miklu frosti á norðurhveli jarð-
ar, er þannig gerður að kornin eru
örsmá eins og sandkorn og þess
vegna hafa vísindamenn kallað þetta
„sandsnjó". Þessi snjór er harður og
slítur mjög skíðum og sleðum.
Svo eru til önnur snjókorn enn
minni og hafa vísindamenn nefnt
þau „demantsryk". Þetta eru örsmá-
ir kristallar sem eru eins og salli í
loftinu og virðast svo léttir að þeir
geti varla hnigið til jarðar. Ef maður
horfir í móðu þeirra rétt undir sól þá
glitra allir þessi örsmáu kristallar
eins og þeir væru demantar.
HRÍM
Það er með ýmsu móti en
kunnastar eru frostrósir á gluggum,
þessi undursamlegu listaverk. En er
fram í sækir breytast þessar rósir í
hélu.
Héla eða hrím myndast einnig á
víðavangi eins og oft má sjá á stein-
um og málmum og í moldarflögum.
Hún myndast af vatnsgufum í loft-
inu þegar aðeins er frost við yfirborð
jarðar og getur hæglega myndast
þótt frostlaust sé í fárra feta hæð yfir
jörð.
Þetta hrím myndast ekki þar sem
mjög mýrlent er. Oft gerir hrímið
mikið tjón á ökrum erlendis. Hafa
menn því tekið upp á því til þess að
verja uppskeruna að veita vatni á
akrana eða brenna þar moðrusli.
Uppgufun vatnsins varnar hélu-
myndun og reykinn leggur venjulega
með jörðu þegar lyngt er og hlífir
hann þágróðrinum.
HAGL
Svo er enn ein tegund af snjó
sem er mismunandi stór korn erfalla
hátt úr lofti. Þessi korn myndast
þannig að ískristallar, sem eru á nið-
urleið, hittafyrir uppsteymi af hlýrra
lofti og berast með því upp í kalt loft
aftur og myndast þá íshúð utan um
þá. Þá þyngjast þeir svo að þeir falla
aftur niður í hlýrra loft og berast svo
með uppsteymi þess á nýjan leik upp
í kalt loftlag og bætist þá önnur íshúð
utan á þá. Þannig gengur þetta koll
af kolli og alltaf stækka kornin.
Stundum festast tvö eða fleiri sam-
an og hlaða utan á sig ísbrynju þang-
að til þau eru orðin svo að segja
hnöttótt og svo stór og þung að loft-
ið getur ekki haldið þeim uppi. Þá
falla þau til jarðar og hafa oft valdið
6 Æ S K A N