Æskan - 01.02.1992, Blaðsíða 19
V
Einbeitnin skín... Ljósm.iEríkur Jónsson.
Hvaða sigur hefur glatt þig
mest?
Á FH 1988, í úrslitaleik í íslands-
mótinu - og gegn Pólverjum í Frakk-
landi á B-heimsmeistaramótinu
1990, einnig í úrslitaleik.
Hvaða tap hefur þér gramist
helst?
Gegn Magdeburg í Evrópukeppni
meistaraliða 1989 (í átta liða úrslit-
um); og gegn Frakklandi í heims-
meistarakeppninni í Tékkóslóvakíu
1990.
Hve oft hefur þú orðið íslands-
meistari með liði þínu?
Þrisvar í meistaraflokki og þrisvar
íyngri flokkum.
Hvaða viðurkenningar, sem þú
hefur hlotið sem handknatt-
leiksmaður, þykir þér mest
varið í?
Að vera valinn besti leikmaður ís-
landsmótsins 1990-1991.
Hve mörg mörk hefur þú skor-
að flest á einu keppnistfma-
bili í íslandsmóti?
183.16 mörk í einum leik.
Af hvaða þjálfara hefur þú
lært mest? En leikmanni?
Boris Abkashev, Þorbirni Jens-
syni og Hilmari Björnssyni. Ég hef
fengið mörg góð ráð frá „gömlum"
Völsurum.
Hjá hvaða markmanni finnst
þér erfiðast að skora mark?
Einari Þorvarðarsyni - og þar
næst Mats Olson.
Hvaða varnarleikmann þykir
þér örðugast að kljást við?
Guðmund Guðmundsson.
Gegn hvaða íslensku liði
finnst þér þyngst þraut að
leika?
FH og Víkingi.
Hvenær hefur reynt mest á þig
í leik?
í undanúrslitaleik gegn Víkingi í
bikarkeppninni 1992.
Áttu önnur áhugamál en
íþróttir?
Já, útiveru, ferðalög og að borða
góðan mat.
Hverjir eru eftirlætis íþrótta-
menn þínir, tónlistarmenn,
sviðsleikarar, kvikmyndaleik-
arar, rithöfundar...
Michael Jordan körfuknattleiks-
maður og Bjarni Friðriksson júdó-
maður.
Phil Collins, Simply Red og Tod-
mobile.
Örn Árnason og Sigurður Sigur-
jónsson.
Kim Basingerog Harrison Ford.
Ken Follett.
Á hvaða dýrum hefur þú mest
dálæti?
Hestum og hundum.
í hvaða skólum varstu?
ísaksskóla, Fossvogs-, Öldusels-
og Seljaskóla. Fjölbrautaskólanum í
Ármúla og Tækniskóla íslands.
Hvað starfar þú?
Ég er verksmiðjustjóri í Sápu-
gerðinni Frigg.
Hverjir finnst þér bestu kostir
fólks?
Hreinskilni, glaðlyndi og reglu-
semi.
Hvað gremst þér mest í fari
manna?
Þunglyndi og óstundvísi.
Hvaða ráð gefur þú ungu
íþróttafólki?
Leggið ykkur fram við þá íþrótt
sem þið æfið, hlustið á þjálfarann
ogverið reglusöm, jafnt inni á vell-
inum sem utan hans.
Ef þið gerið þetta þá efast ég ekki
um að ykkur mun ganga vel.
Eg bið að heilsa ykkur öllum.
Megið þið lengi lifa!
„LEGGIÐ YKKUR FRAM,
HLUSTIÐ A ÞJALFARANN
OG VERIÐ REGLUSÖM..."
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
Æ S K A N 19