Æskan - 01.02.1992, Blaðsíða 16
VESTMANNA
JJ
GERUM STUNDUMATÍ LEIÐINLEGU FÓLKI
íí
Rætt við frænkurnar Evu Björk og Leu.
ær Eva Björk Ómarsdóttir og Lea
Tómasdóttir eru hressar hnátur
á 9. ári. Þær hafa átt heima í
Vestmannaeyjum frá því að þær
litu fyrst dagsins Ijós.
„Hérna er hægt að gera margt
skemmtilegt," sögðu þær þegar
Æskan tók þær tali úti í Eyjum.
„Við förum til dæmis mjög oft í
sund og erum báðar flugsyndar.“
Auk þess að hafa gaman af
sundi eru þær oft á hjólaskaut-
um (einkum á sumrin) og í ýms-
um öðrum leikjum.
„Svo er líka gaman í skólan-
um,“ nefnir Eva Björk.
- Hvað þykir ykkur skemmti-
legast að læra?
„Að reikna,“ svarar hún um
hæl. „En leiðinlegast er í lestrar-
tímunum."
„Mér þykir hins vegar
skemmtilegast að lesa en leiðin-
legast í reikningi," segir Lea.
- Eigið þið einhver systkini?
Eva Björk: Ég á eins og hálfs
árs bróður. Hann er stundum dá-
lítil óþekktarrófa. En þá segi ég
bara við hann: „Má ekkil" og
hann hlýðir mér oftast."
Lea: Ég á líka einn bróður og
hann er kallaður Svenni. Hann er
11 ára. Stundum þegar ég er að
stríða honum tuskar hann mig
dálítið til og hann gerir það líka
þó að ég sé ekkert að hrekkja
hann.
BIBLÍUSÖGURNAR
SKEMMTILEGAR
- Eruð þið svolitlir stríðnis-
púkar inni við beinið?
Eva Björk fitjar upp á nefið.
„Já, kannski stundum," svar-
ar hún hálfhikandi. „Við gerum
þá at og svoleiðis."
- Hvar og hvernig?
„Til dæmis heima hjá leiðin-
legu fólki eða leiðinlegum krökk-
um. Þá berjum við að dyrum og
hlaupum svo burtu. Það getur
verið gaman að plata leiðinlegt
fólktil dyra.“
Blaðamanni sýnist á svip
stelpnanna að þær lumi á fleiri
prakkarasögum og bíður róleg-
ur eftir frekari játningum.
„Stundum bönkum við líka á
glugga," segir Eva Björk með
semingi.
„Og stundum hringjum við í
fólk til að stríða því,“ heldur Lea
áfram. „Þegar sá sem við ætlum
að hrekkja svarar símanum skell-
um við á.“
„Við gerum þetta ekki oft, bara
einstöku sinnum," segir Eva
Björk svo að ekkert fari á milli
7 6 Æ S K A N
Eyjadæturnar og frænkurnar Eva Björk og Lea.