Æskan

Árgangur

Æskan - 01.02.1992, Síða 24

Æskan - 01.02.1992, Síða 24
ÆSKU PÚSTUR UMBOÐSMAÐUR ... Kæra Æska! Mig langar afskaplega mikið til að læra eitthvað í sambandi við vinnu í hljóðveri eða til að verða umboðsmaður hljóm- sveita. Ég veit bara ekki hvert ég get snúið mér. Er hægt að læra þetta í einhverjum skóla? Hvað þarf ég að vera gamall til að geta hafið slíkt nám? S.R. Svar: Eflaust getur margs konar nám kom- ið að gagni til að búa sig undir þau störf sem þú nefnir. En benda má á nám í útvarpsvirkjun sem heppilega leið að starfi í hljóðveri (iðn- skólar) - og nám á við- skiptabrautum - í við- skiptadeildum - fram- haldsskóla/háskóla ef ætlunin er að verða umboðsmaður. Þessar greinar nemur ungt fólk eftir að það hefur lokið grunnskólaprófi. Hljóðver hafa raunar stöku sinnum efnt til námskeiða og kennt þar hvernig stjórna skal tækjum sem notuð eru við hljóðritanir. Fáir starfa nú sem umboðsmenn hljóm- sveita. Oftast skráir ein- hver hljómsveitar- manna pantanir, kynnir sveitina og semur um að koma fram á dans- leikjum. DÁÐUR LEIKARI Kæra Æska! Ég er mikill aðdáandi leikarans Kevins Costners en veit lítið um hann. Ég vona að þið getið hjálp- að mér. Getið þið birt uþþlýsingar um hann og veggmynd af honum? Mikill aðdáandi. Svar: Já! Líttu á bls. 47 og í miðju þessa tölublaðs! NÝJU KRAKKARNIR ENN OG AFTUR ... Æskupóstur! Getur einhver sent mér texta við lögin I Remember When, Right Stuff, Hold on og I Need You - með New Kids? Erla Kristinsdóttir, Hjallastræti 24, 415 Bolungarvík. Kæra Æska! Við, tvær stelpur, erum miklir aðdáendur New Kids. Önnur okk- ar sendi bréf til aðdáendaklúbbs hljómsveitarinnar og óskaði eftir að hún kæmi til (slands. Hún hef- ur ekki fengið svar. Við biðjum þá sem dá hljóm- sveitina að safna undirskriftum á lista og senda okkur þá. Við skul- um senda þá til Bandaríkjanna. Sendið til: Salóme Sigurðardóttur, Hlíðarvegi 14, 415 Bolungarvík. Es.: Á hljómplötum er þetta heimilistang aðdáendaklúbbs- ins: New Kids Fan Club, P.O.Box 7080, Quincy, MA 02269, USA. (í Æskunni var annað númer á pósthólfinu) Kæra Æska! Viltu vera svo væn að birta fróð- leiksmola um New Kids og vegg- mynd af þeim. Hafið þið birt eitt- hvað um þá áður? Ef svo er viltu þá nefna í hvaða tölublöðum það var. Þökk fyrir gott blað, Kalli kanína. Kæra Æska! Mig langar til að ganga í aðdá- endaklúbb NKOTB. Svara þeir þréfum sjálfir? í 3. tbl. 1990 var sagt að til væri bók um hljómsveitina. Hvar fæst hún_? Ég þakka mjög gott blað. Ein forvitin. Svör: Við birtum ýtarlega grein um Nýju krakkana og veggmynd í tölublaðinu sem Ein forvitin nefndi. Blaðið er uppselt en við getum sent Ijósrit af greininni - og nokkrar vegg- myndir eigum við eftir. Ný veggmynd var raunar í 1. tbl. 1992. Það hafðir þú ekki fengið þegar þú skrifaðir bréfið. Eflaust verður bráðlega fjall- að um hljómsveitina ípoppþætt- inum - enda var hún vinsælasta erlenda hljómsveitin 1991 í könnun þáttarins (ásamt Guns N’ Roses). Strákarnir í Nýju krökkunum munu engan veginn komast yfir að svara aðdáendabréfum sjálf- ir. Bókin var gefin út í Banda- ríkjunum. Aðdáandi hljómsveit- arinnar lánaði okkur hana. Við vitum ekki til að hún fáist hér á landi. (Veit nokkur betur... ?) FRIÐUR OG MENGUN Æskupóstur góbur! Hvernig get ég stuðlað að friði og að minnka mengun í heimin- um? Mér finnst svo óréttlátt hvern- ig við erum að eyðileggja jörðina. En hvað get ég gert? Kristbjörg. Svar: Allir geta á einhvern hátt varast að menga jörðina. Máli skiptir hvaða umbúðir eru notaðar og ýmsar aðrar vörur, hvernig gengið er frá sorpi - og gengið um landið. Efsýnt ergott fordæmi hefur það líka áhrif á aðra. Ýmis samtök beita áhrifum sínum til að koma á friði um all- an heim. Oft finnst okkur að lít- ið hafi þokast. En ýmislegt hef- ur þó áunnist. Með því að taka þátt í starfi slíkra samtaka get- um við iagt lóð á vogarskálar - þó að örlítið sé. 2 4 Æ S K A N

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.