Æskan - 01.02.1992, Síða 24
ÆSKU
PÚSTUR
UMBOÐSMAÐUR ...
Kæra Æska!
Mig langar afskaplega
mikið til að læra eitthvað
í sambandi við vinnu í
hljóðveri eða til að verða
umboðsmaður hljóm-
sveita. Ég veit bara ekki
hvert ég get snúið mér.
Er hægt að læra þetta í
einhverjum skóla? Hvað
þarf ég að vera gamall til
að geta hafið slíkt nám?
S.R.
Svar: Eflaust getur
margs konar nám kom-
ið að gagni til að búa
sig undir þau störf sem
þú nefnir. En benda má
á nám í útvarpsvirkjun
sem heppilega leið að
starfi í hljóðveri (iðn-
skólar) - og nám á við-
skiptabrautum - í við-
skiptadeildum - fram-
haldsskóla/háskóla ef
ætlunin er að verða
umboðsmaður. Þessar
greinar nemur ungt fólk
eftir að það hefur lokið
grunnskólaprófi.
Hljóðver hafa raunar
stöku sinnum efnt til
námskeiða og kennt
þar hvernig stjórna skal
tækjum sem notuð eru
við hljóðritanir.
Fáir starfa nú sem
umboðsmenn hljóm-
sveita. Oftast skráir ein-
hver hljómsveitar-
manna pantanir, kynnir
sveitina og semur um
að koma fram á dans-
leikjum.
DÁÐUR LEIKARI
Kæra Æska!
Ég er mikill aðdáandi leikarans
Kevins Costners en veit lítið um
hann. Ég vona að þið getið hjálp-
að mér. Getið þið birt uþþlýsingar
um hann og veggmynd af honum?
Mikill aðdáandi.
Svar: Já! Líttu á bls. 47 og í
miðju þessa tölublaðs!
NÝJU KRAKKARNIR
ENN OG AFTUR ...
Æskupóstur!
Getur einhver sent mér texta
við lögin I Remember When, Right
Stuff, Hold on og I Need You -
með New Kids?
Erla Kristinsdóttir,
Hjallastræti 24, 415
Bolungarvík.
Kæra Æska!
Við, tvær stelpur, erum miklir
aðdáendur New Kids. Önnur okk-
ar sendi bréf til aðdáendaklúbbs
hljómsveitarinnar og óskaði eftir
að hún kæmi til (slands. Hún hef-
ur ekki fengið svar.
Við biðjum þá sem dá hljóm-
sveitina að safna undirskriftum á
lista og senda okkur þá. Við skul-
um senda þá til Bandaríkjanna.
Sendið til:
Salóme Sigurðardóttur,
Hlíðarvegi 14,
415 Bolungarvík.
Es.: Á hljómplötum er þetta
heimilistang aðdáendaklúbbs-
ins:
New Kids Fan Club,
P.O.Box 7080,
Quincy, MA 02269, USA.
(í Æskunni var annað
númer á pósthólfinu)
Kæra Æska!
Viltu vera svo væn að birta fróð-
leiksmola um New Kids og vegg-
mynd af þeim. Hafið þið birt eitt-
hvað um þá áður? Ef svo er viltu
þá nefna í hvaða tölublöðum það
var.
Þökk fyrir gott blað,
Kalli kanína.
Kæra Æska!
Mig langar til að ganga í aðdá-
endaklúbb NKOTB. Svara þeir
þréfum sjálfir?
í 3. tbl. 1990 var sagt að til væri
bók um hljómsveitina. Hvar fæst
hún_?
Ég þakka mjög gott blað.
Ein forvitin.
Svör: Við birtum ýtarlega
grein um Nýju krakkana og
veggmynd í tölublaðinu sem Ein
forvitin nefndi. Blaðið er uppselt
en við getum sent Ijósrit af
greininni - og nokkrar vegg-
myndir eigum við eftir.
Ný veggmynd var raunar í 1.
tbl. 1992. Það hafðir þú ekki
fengið þegar þú skrifaðir bréfið.
Eflaust verður bráðlega fjall-
að um hljómsveitina ípoppþætt-
inum - enda var hún vinsælasta
erlenda hljómsveitin 1991 í
könnun þáttarins (ásamt Guns
N’ Roses).
Strákarnir í Nýju krökkunum
munu engan veginn komast yfir
að svara aðdáendabréfum sjálf-
ir.
Bókin var gefin út í Banda-
ríkjunum. Aðdáandi hljómsveit-
arinnar lánaði okkur hana. Við
vitum ekki til að hún fáist hér á
landi. (Veit nokkur betur... ?)
FRIÐUR OG MENGUN
Æskupóstur góbur!
Hvernig get ég stuðlað að friði
og að minnka mengun í heimin-
um? Mér finnst svo óréttlátt hvern-
ig við erum að eyðileggja jörðina.
En hvað get ég gert?
Kristbjörg.
Svar: Allir geta á einhvern
hátt varast að menga jörðina.
Máli skiptir hvaða umbúðir eru
notaðar og ýmsar aðrar vörur,
hvernig gengið er frá sorpi - og
gengið um landið. Efsýnt ergott
fordæmi hefur það líka áhrif á
aðra.
Ýmis samtök beita áhrifum
sínum til að koma á friði um all-
an heim. Oft finnst okkur að lít-
ið hafi þokast. En ýmislegt hef-
ur þó áunnist. Með því að taka
þátt í starfi slíkra samtaka get-
um við iagt lóð á vogarskálar -
þó að örlítið sé.
2 4 Æ S K A N