Æskan - 01.02.1992, Side 47
FRÍMERK
ÞÁnUR
Umsjón: Sigurður H. Þorsteinsson
SPURNINGAR í GETRAUNINNI
Merktu X við rétta svarið
Myndefni frímerkisins er...?
1.
() Eystra-Hom
() Lómagnúpur
() Vestra-Horn
() Ekkert þessa
2.
() Búlandstindur
() Baula
() Esja
()Lóndrangar
3.
() Vatnajökull
()Ok
() Langjökull
() Eiríksjökull
4.
() Páll ísólfsson
() Halldór Halldórsson
() Sveinbjörn Sveinbjörnsson
() Enginn þessara
5.
() Jónas Hallgrímsson
() Steinn Steinarr
() Þorsteinn Erlingsson
() Enginn þessara
VERÐLAUNAGETRAUN 1
Þá er loks komið að verðlaunagetrauninni sem
við höfum minnst á stundum hér í þættinum. Að
þessu sinni veitir Póstmálastotnunin, Markaðs-
deild, verðlaunin.
Benda má á að svörin getið þið fundið í frí-
merkjabókinni íslensk frímerki 1992 ef þið eigið
hana.
En þá skulum við fyrst af öllu vera alveg viss
um hvaða skilyrði þarf að uppfylla til að taka þátt
í getrauninni.
1. Þú verðurað vera kaupandi að Æskunni.
2. Þú þarft að vera féiagi í Frímerkjakiúbbi Æsk-
unnar eða gerastþað þegarþú sendirinn bréfið.
Þá vitum við hvað gera skal og því er eftirleik-
urinn léttari. Svo þarf að senda allar lausnir til Frí-
merkjaklúbbs Æskunnar, Laugarhóli, 510 Hólmavík,
fyrir 15. apríl 1992.
Það verða aðeins fimm spurningar lagðar fyrlr
ykkur að þessu sinni. Þetta er eins konar krossapróf
sem þið vafalaust kannist við. Það má aðeins
merkja í einn reit. Þið skuluð ekki klippa úr blað-
inu heldur fá einhvern til að Ijósrita þrautina fyrir
ykkur og senda svörin á Ijósritaða blaðinu.
Eins og sagt var hér að ofan eru verðlaunin frá
Póstmálastofnun, Markaðsdeild. Þau eru sem hér
segir:
-i verðlaun: Öll frímerki sem gefin verða út
" á árinu 1992, eitt fyrstadagsumslag af
þeim og ein fjórblokk af hverju merki.
verðlaun: Ársmöppur frá Frímerkja-
2.-5. sölunni-
Þarna eru því 5 verðlaun sem þeir
geta unnið er hafa öll svörin rétt. Verði
fleiri rétt svör en verðlaunin verður dregið úr þeim.
Gleymiö ekki að senda svörin ykkar fyrir 15.
apríl.
Utanáskrift:
Frimerkjaklúbbur Æskunnar,
Laugarhóli, 510 Hólmavík.
Æ S K A N S 7