Æskan - 01.02.1992, Qupperneq 54
um þá. Stundum fer slíkt
líka í tóma flækju í hugum
stelpnanna. Hugmynda-
flugið fær lausan tauminn
og eilífar vangaveltur geta
valdið óþarfri spennu.
Reyndu heldurað njóta
þess að vera skotin í
stráknum og vita að aðrar
Umsjón: Nanna K
ANDVAKA AF
ÁST
Kœra Nanna Kolbrún!
Ég á við mikinn vanda
að stríða. Hann er sá að
ég er hrifin af strák sem
við skulum kalla V. Hann
fluttist hingað fyrir ári.
Þegar ég sá hann fyrst
varð ég svo ástfangin að
ég varð andvaka af ást.
Hann er eiginlega alltaf
að horfa á mig.
Það var líka annar
strákur sem horfði svona
á mig og svo spurði hann
mig hvort ég vildi byrja að
vera með sér. Heldurðu
að þetta verði svona líka
með V? Það er engin
önnur en ég hrifin afhon-
um.
Systir hans er á föstu
með frænda mínum.
Það er spáð yfir 50%
ást hjá okkur. Ekki henda
þessu bréfi. Ég er búin
að skrifa fjórum sinnum
áður.
Ein sem alltaf er með
vandamál.
óttir félagsráðgjafi
Svar:
Eftir lýsingu þinni að
dæma tel ég ekki ólíklegt
að herra V hafi áhuga á
þér. Þú hefur orðið mjög
skotin í honum við fyrstu
sýn. Reyndu samt að
temja þér að missa ekki
nætursvefn þó að þú hríf-
ist af strák. Það skilar yf-
irleitt litlum árangri. Strák-
arnir vita ekkert um það
þó að stelpur liggi and-
vaka vegna umhugsunar
stelpur eru ekki skotnar í
honum. Þú getur reynt að
kynnast honum nánar.
Kanna hvort þér líkar við
hann. Þannig getur þú
fært hlutina nær raun-
veruleikanum og minnk-
að hugarflugið sem veld-
ur þér áhyggjum.
FEIMIN VIÐ MÖMMU
Elsku Nanna!
Ég er í frekar fáránlegum
vandræðum. Ég þori aldrei
að tala við mömmu mína
um neitt, ekki um stráka,
unglingavandamál, blæð-
ingar. Ekki neitt.
Ég byrjaði á gamlaárs-
kvöld á túr. (Ég þori nú varla
að skrifa þér út af feimni)
Ég fór heim úr teiti. Þegar
ég kom heim spurði systir
mín hvort blæðingar væru
byrjaðar. Ég fór náttúrlega
öll hjá mér.
„Já,“ sagði ég eins og
tómatur í framan.
Blæðingarnar voru í tíu
daga. Ég held að það sé
eitthvað að mér.
í dag er 20. janúar og ég
held að ég sé að byrja aftur.
Ég spurði mömmu hvort
hún vildi kaupa bindi. (Það
var ekki meira en svo að ég
þyrði það) Hún spurði:
„Ertu byrjuð aftur?“
Ég sagði:
„Það kemur bara svona
brúnt.“
Það er alveg satt. Þess
vegna held ég að ég sé eitt-
hvað veik.
Hvað er ég gömul og
hvað lestu úr skriftinni?
Frk. feimin.
Svar:
Sú tilfinning, sem þú
lýsir, er ekki óalgeng hjá
krökkum á þínum aldri.
Börnum þykir vænt um
foreldra sína en stundum
líta þau þá jafnframt horn-
auga. Tilfinningar, sem
hér um ræðir, eru nefndar
tvíbentar tilfinningar. Þær
snúast um það að vilja og
vilja ekki. Einnig geta þær
verið fólgnar í að líta upp
til einhvers en jafnframt
að finna til óvildar eða öf-
undar í hans garð.
Þú ert á þeim aldri að
s 8 æ s K A N