Æskan - 01.02.1992, Side 55
byrja að finna meira og
meira til sveiflna og tví-
bentra tilfinninga í garð
þeirra sem standa þér
næst og þú býst við
mestu af.
Það er nú einu sinni
svo þegar blæðingar
byrja að þá langar flestar
stelpur til þess að geta
talað vel og innilega við
mæður sínar. Andlega
hliðin á þessum breyting-
um felur oft í sér að stelp-
ur verða litlar í sér og
feimnar. Þá er nauðsyn-
legt að geta fengið stuðn-
ing hjá mömmu eða eldri
systur, þær tvær sem þú
vilt að fylgist nákvæmlega
með þér þó að hvorug
hafi getað talað við þig í
trúnaði enn þá. Getur ver-
ið að þú gefir ekki kost á
því með því að vera of
flóttaleg í sambandi við
þetta? Reyndu að staldra
við og hlusta vel þegar
mamma þín kemur með
einhverjar athugasemdir
um blæðingarnar.
Þetta virðist allt eðlilegt
hjá þér. Blæðingar eru oft
óreglulegar í byrjun.
Einnig kemur oft brún út-
ferð eða slím á fyrstu dög-
um blæðinga.
Mundu að mamma þín
hefur líka byrjað á túr og
hún veit hvernig þér líð-
ur. Reyndu að spyrja
hana beint um það sem
þú hefur áhyggjur af. Það
gæti verið: „Mamma það
kemur eitthvað brúnt en
ekki blæðing hjá mér.
Hvað er það?“ Þá færð þú
skýr svör og sambandið
á milli þín og mömmu
þinnar styrkist þegar
samræður komast á. Ég
sé ekkert í bréfinu sem
geti bent til að þú sért
veik.
Ég giska á að þú sért
tólf ára. Ekki er ég sér-
fræðingur íþví að lesa úr
skrift en skriftin þín er
snyrtileg. Einnig gæti ég
trúað að þú hefðir nokk-
uð góða kímnigáfu.
ERFIÐUR KENNARI
Kæri Æskuvandi! Þakka
gott blað.
Við bekkurinn eigum við
vandamál að stríða. Kenn-
arinn okkar drekkur um
helgar. Hann heldur að
hann sé góður kennari og
heldur að hann geti greitt úr
vandamálum. En svo er
ekki.
Margir í bekknum, sem
hann kennir, hafa lækkað í
prófum síðan hann kom.
Við fórum einu sinni heim
til hans til að stríða honum
svolítið. Hann hringdi í lögg-
una af því að hann vildi vera
í friði. Seinna hringdi hann
heim til nokkurra sem áttu
hlut að máli og gerði úlfalda
úr mýflugu.
Viltu reyna að greiða úr
vandamáli okkar?
F.M., G.K.
Svar:
Þetta virðist mér vera
nokkuð flókið mál og hafa
fallið í frekar óheppilegan
farveg. Kennarinn ykkar
kann að eiga við einhver
vandamál að stríða og, ef
svo er, batna þau senni-
lega ekki við það að þið
gerið at í honum.
Þegar samskipti barna
og þeirra sem ráða yfir
þeim (eins og kennara og
foreldra) fara eins og þið
hafið lýst í bréfinu þá er
alltaf hætta á að annar að-
ilinn verði að sigra og
hinn að tapa. Það er
slæmt fyrir báða aðilja. Sá
sem vinnur þarf stöðugt
að vera á verði. Þeir sem
tapa verða sárir og reiðir
og þurfa að eyða mikilli
orku í það að leita hefnda.
í slíkri stöðu eru það oft-
ast börnin sem tapa. Mál-
ið er eftir sem áður óleyst.
Réttast er að leysa
þetta innan skólans, tala
við yfirkennara eða skóla-
stjóra og segja þeim frá
áhyggjum ykkar; reyna að
útskýra hvernig ykkur
finnist kennslan hafa
breyst og einkunnir dal-
að. Þannig fáið þið tæki-
færi til þess að koma fram
með það sem ykkur býr í
brjósti.
Gefið ekki höggstað á
ykkur með óæskilegri
hegðun. Það er mjög
erfitt að gera úlfalda úr
mýflugu ef þið gætið
þess að vera mál-
efnaleg og láta mál-
ið ganga rétta leið.
Það getur verið að þið
þurfið að fá einhverja for-
eldra í lið með ykkur til
þess að vinna málinu
brautargengi innan skól-
ans.
Svar til „Froskalappa“:
Reyndu að líta björtum
augum á þær breytingar
sem þú lýsir. Lestu það
bréf í þættinum sem fjall-
ar að nokkru um sama
efni. Mundu að flestar
mæður eru skilningsríkar
og vilja styðja dætur sín-
ar. Þú skalt ræða af hrein-
skilni við mömmu þína
um málið. Þá verður það
ekkert vandamál!
Kæru bréfritarar!
Ég minni ykkur enn á
þaö aö þiö eigið aö
rita nöfn ykkar og
heimilisföng undir
bréf. Annars veröa
þau ekki birt. Þiö
megið gjarna segja til
aldurs. Þaö auðveldar
mér aö gefa ykkur
góö ráö.
Með kærri kveóju,
Nanna Kolbrún.
ÆSKU
Æ S K A N 5 9