Æskan - 01.06.1992, Síða 24
Páll McCartney samdi lagið
„Yesterday" 1965. Skv. Heims-
metabókinni er það vinsælast
allra dægurlaga. Fram til þess
var Jón Lennon aðallagasmið-
ur Bítlanna. Frá og með „ Yester-
day" stóð Páll honum jafntætis.
u Bítl-
arnir
Bresk
(The Beatles) voru það sem dæg-
urmúsíkmarkaðurinn snerist um frá
1963-1964 og þangað til löngu eft-
ir að hljómsveitin leystist upp 1970.
í upphafi réðust yfirburðir Bítl-
anna af eftirtöldu: Þeir trúðu á snilli
sína og trúðu á að markaður fyrir
frjálslega rokkmúsík væri fyrir
hendi. Samspil hljómsveitarinnar
var betra og þéttara en hjá öðrum
hljómsveitum. Bítlarnir höfðu innan-
borðs tvo af bestu rokksöngvurum
rokksögunnar, John Lennon og
Paul McCartney. Þessir söngvarar
mynduðu jafnframt hæfileikarík-
asta söngvasmíðadúett rokksög-
unnar. Hljómsveitin náði að blanda
saman betur en aðrir villtum og
hrjúfum músíkstílum og fínlegri fág-
un, krafti og yfirvegun.
Hæfileikar Bítlanna komu enn
betur í ijós þegar á leið.
í kjölfar gífurlegra vinsælda
þeirra spratt upp aragrúi hljóm-
sveita sem hermdi eftir þeim. Hér-
lendis voru Hljómar frá Keflavik
fulltrúi íslenskra „Bítla-hljómsveita“.
Hinar hljómsveitirnar urðu aldrei
annað en eftirhermuhljómsveitir.
Bítlarnir voru alltaf skrefi á undan.
Um leið og einhverri eftirhermu-
hljómsveitinni tókst vel spiluðu Bítl-
arnir fram nýju trompi. Eitt slíkt
tromp var lagið „Yesterday111965.
Lagið „Yesterday11 kom öllum í
opna skjöldu. Meira að segja Bítl-
unum sjálfum. Á þessum tíma voru
þeir ímynd tryllingslegra rokkara,
18.
HLUTI
UMSJÓN: JENS KR. GUÐMUNDSSON
forystusveit öskrandi söngvara,
grenjandi rafgítara og villimanns-
legs trommuleiks. Þá kom þessi
hugljúfa ballaða á markað. Páll
söng lagið einn á raulkenndan
máta. Hann pikkaði undir á
kassagítar. Enginn rafhljóðfæri.
Enginn trommuleikur. Aðeins
kassagítar og strengjakvartett.
„Yesterday11 var óvænt stílbrot
hvað útsetningu og flutning varð-
aði. Lagið var sömuleiðis svo vel
skrifuð ballaða að nú hefur það
verið hljóðritað oftar en nokkurt
annað lag. Um 2000 aðiljar hafa
hljóðritað lagið í ýmsum útfærsl-
um. Þar á meðal er lagið til í flutn-
ingi fjölda sinfóníuhljómsveita,
djasshljómsveita, einsöngvara og
klassískra gítarleikara.
Bítlarnir voru hálffeimnir við
„Yesterday11. Þeir vildu til að mynda
ekki að lagið væri gefið út á sjálf-
stæðri smáskífu í Evrópu (aðeins
í Bandaríkjum Norður-Ameríku).
FRAMHALD
P
opphólfinu hafa
borist margar óskir
um fróðleiksmola
um ensku rokk-
sveitina Queen. Hér koma þeir:
*1969 þóttu það tíðindi er virðu-
leg háskólahijómsveit frá Lundúna-
borg í Englandi sendi frá sér smá-
skífuna Jörð (Earth). Hljómsveitin
hét Smile (Bros). Þar fór fremstur
í flokki stjörnufræðingurinn Brian
May (gítar) og tannlæknirinn Roger
Taylor (trommur).
*1970 kynntust þeir Brjánn og
Roger myndlistarmanninum
Freddie Mercury sem átti heima í
næsta húsi við Brján.
*Freddie Mercury var innflytj-
andi frá breskri nýlendu, Sansib-
ar, á austurströnd Afríku. Hann
hafði margra ára píanónám að baki
og var að auki góður söngvari.
*í myndlistanáminu var fata-
hönnun sérgrein Fredda. Fyrsta
samvinnuverkefni Fredda og
Rogers var að setja upp fatabás á
Kensington verslunarsvæðinu í
London. Þeir komust fljótlega að
því að músík lá betur fyrir þeim en
verslunarrekstur.
*Um svipað leyti og Freddi hóf
að syngja með Smile kynntust
þessir brosmildu drengir kennar-
anum John Deacon (bassagítar).
Þar sem aðeins tveir voru eftir af
upprunalegum liðsmönnum var
skipt um nafn á hljómsveitinni. Nýja
nafnið var Queen.
*1973 kom fyrsta platan með
Queen á markað, samnefnd hljóm-
sveitinni. Máltækið, að enginn sé
2 4 Æ S K A N