Æskan - 01.06.1992, Side 42
HEILA HUFI !
ALLT GENGQR
BETUR AN AFENGIS
Á veggmynd, sem dreift var
um landið fyrir fáum árum, var
hressilegur og brosleitur kappi
- Ómar Ragnarsson, frétta-
maður, skemmtikraftur og ágæt-
ur íþróttamaður (Hann var sprett-
hlaupari á yngri árum, síðar rall-
ökumaður og margfaldur ís-
landsmeistari í þeirri grein).
Hann tók heils hugar undir
textann á veggmyndinni, Allt
gengur betur án áfengis.
Ómar er einn fjölmargra
þekktra manna sem nota ekki á-
fengi. í þeim hópi eru einnig
María Rún Hafliðadóttir,
fegurðardrottning íslands 1992,
Eðvarð Ingólfsson rithöfundur,
Þórdfs L. Gísladóttir íþrótta-
fræðingur og íslandsmethafi í
hástökki, Þorgrímur Þráinsson
rithöfundur og ritstjóri íþrótta-
blaðsins, áður landsliðsmaður í
knattspyrnu, - svo að fáein
dæmi séu nefnd.
Það er ekki að undra að þau
hafi tekið þessa afstöðu. Áfengi
(vínandi, etanól) er í raun deyf-
andi ávanaefni. Notkun þess
fylgir mikil og margs konar á-
hætta: Það er vanabindandi og
veldur oft slysum og ýmsum
sjúkdómum. Og það er óþarft!
HEFÐI EKKI
VERIÐ LEYFT...
Þó að áfengi sé svo hættu-
legt efni að sala þess hefði ef-
laust ekki verið leyfö ef það
hefði verið fundið upp á þessu
ári - eru þeir ófáir sem neyta
þess. Oftast drekkur fólk vínanda
í þeirri trú að það losi um höml-
ur og auðveldi því að skemmta
sér. En í Ijós hefur komið við
margar rannsóknir að framkoma
fólks eftir áfengisneyslu fer eftir
því hvað það heldur að fylgi
því að drekka vínanda. í rann-
sóknunum hefur hópi fólks ver-
ið gefinn drykkur sem það hélt
að væri áfengi - en var það í
rauninni ekki. Fólkið varð örara,
opinskárra og glaðlegra! Annar
hópur fékk áfengan drykk - en
var sagt að í honum væri ekki
vínandi. Framkoma þess fólks
breyttist ekkert!
ÁFENGI - AND-
STÆDINGUR
AFREKANNA
í fyrra var gefinn út bæklingur
sem nefnistÁfengi, andstæðing-
ur afrekanna. Útgefandi var
Nefnd um átak í áfengisvörnum
í samvinnu við íþróttasamband
íslands og Ungmennafélag ís-
lands. Höfundar eru Þórdís L.
Gísladóttir og Þráinn Haf-
steinsson íþróttafræðingar -
með heilsufræði sem aðalgrein.
Þráinn er íslandsmethafi í tug-
þraut - Þórdís í hástökki.
í ávarpi til lesenda segir
Sveinn heitinn Björnsson, þá
forseti ÍSÍ:
„Útgáfa þessa bæklings er í-
þróttasambandi íslands fagnað-
arefni. Fræðsla og vitneskja um
skaðsemi áfengis og annarra
vímuefna er vænlegasta leiðin
til þess að fólk geri sér grein fyr-
ir þeim vágesti sem hér er á
ferðinni. Þetta á ekki eingöngu
við íþróttafólk heldur alla þjóð-
ina og ekki síst æskuna."
Pálmi Gíslason formaður
UMFÍ tekur þannig til orða:
„Áfengi og íþróttir fara ekki
saman. Þessi sannindi eru löngu
kunn og hafa án efa dregið veru-
lega úr áfengisneyslu. Stór hóp-
ur ungs fólks, sem heldur sig frá
áfengi og öðrum vímuefnum,
stundar íþróttir og gerir sér grein
fyrir því að áfengisneysla dreg-
ur úr framförum og góðum ár-
angri.
í þessu ágæta riti er sýnt með
óvéfengjanlegum rökum að
áfengi og íþróttir eiga ekki
samleið."
í lok bæklingsins segja Þór-
dís og Þráinn:
„Áfengisneysla samræmist
engan veginn þeim hugsjón-
um sem íþróttaiðkun byggir
á. Sannur íþróttaandi er og á að
vera fólginn í að rækta heilbrigða
sál í vel þjálfuðum og hraustum
líkama. Áfengisneysla er and-
stæð þessum anda. Áfengi er
andstæðingur íþrótta og af-
reka. Allir íþróttamenn ættu
að tileinka sér þá staðreynd.
Án áfengis eru miklu meiri lík-
ur en ella á að þú náir að nýta
og þroska hæfileika þína til fulls.
í stað þess að brjóta niður
með áfengi ættir þú að byggja
þig upp með markvissri þjálf-
un líkama og sálar án áfeng-
is.
Sá sem hyggst þjálfa sig til af-
reka og ná hámarksárangri í
íþróttum hlýtur að hafna áfengi."
4 6 Æ S K A N