Æskan

Årgang

Æskan - 01.06.1992, Side 52

Æskan - 01.06.1992, Side 52
Umsjón: Ragnheiður Ármannsdóttir UR FLOKKSBOK KUDUNGA 331. fundur Kuðunga 21. júlf 19 ... Allir Kuðungar mættir. Fundurinn var settur að Kuðungasið kl: 17:35. Stína sveitarforingi kom í heimsókn á fundinn til að hlýða okkur yfir skátafræðin. Öll stóðum við okkur á prófinu. En Stína setti okkur fyrir verkefni þar sem við áttum að skrá hjá okkur hvernig okkur gengi að halda skátalögin, skátaheitið og fara eftir heilbrigðisreglunum. Við eig- um að skila þessu verkefni til hennar í næstu viku. Varðeldastjórinn, hann Siggi, sagði frá því að varðeldur Sjávardýra- sveitar yrði næsta laugardag og að það hefði fallið í hlut okkar að sjá um vígslu bálsins. Margar hugmyndir voru settar fram en á endanum völdum við þenn- an texta sem okkur þótti við hæfi í framhaldi af umræðunni um skáta- lögin. „Ofur litla vinsemd veitum öðrum „af og til“. Ofur lítinn skilning þeirra ágöllum í vil. Ofur litla hamingju látum eftir okkur sjá og er við göngum lífsins leið við launin munum fá.“ Þegar þessu öllu var lokið var liðið vel á fundartíma okkar og ákveð- ið að slíta fundi. Stína sveitarforingi stakk upp á því að við slitum fund- inum að þessu sinni með því að syngja „Tendraðu lítið skátaljós" eftir Hrefnu Tynes. „ Tendraðu lítið skátaljós; láttu það lýsa þér, láttu það efla andans eld og allt sem göfugt er. Þá verður litla Ijósið þitt Ijómandi stjarna skær lýsir lýð alla tíð nær og fjær. “ Avallt viðbúinn! SKATALOGIN 1. Skáti segir satt og stendur við orð sín. 2. Skáti er traustur félagi og vinur. 3. Skáti er hæverskur í hugsunum, orðum og verkum. 4. Skáti er hlýðinn. 5. Skáti er glaðvær. 6. Skáti er öllum hjálpsamur. 7. Skáti ertillitssamur. 8. Skáti er nýtinn. 9. Skáti er snyrtilegur í umgengni og ber virðingu fyrir eigum annarra 10. Allir skátar eru náttúruvinir. HUERNIG GERIST EG SKATI? Til þess að verða skáti verður þú að ganga í skátasveit eða skátaflokk í heimabyggð þinni en það verður að vera með vitund og vilja foreldra eða forráðamanna þinna. Áður en þú ert tekinn í skátahreyfinguna þarftu að læra nokkur grundvallaratriði og sýna að hugur fylgi máli. Þegar sveitarforinginn telur þig vera þeim vanda vaxinn sem fylgir því að vera skáti fer fram há- tíðleg vígsluathöfn. Vígslan er stund sem sérhver skáti man alla sína ævi. Skátalögin eru reglur sem skátar um heim allan eiga að fara eftir: Þú lofar að gera allt sem í þínu valdi stendur til að halda þau þegar þú vinnur skáta- heitið. Það er vandasamt að halda þetta heit en það er mjög mikilvægt. Hver sem ekki legggur sig allan fram við að lifa samkvæmt því er ekki skáti. Öll erum við breysk og við villumst stundum af leið en þá verðum við að reyna að lagfæra það sem aflaga hefur farið. Skylda okkar gagnvart bræðrum okkar og systrum, jafnt skátasystkinum sem öðrum, er mikil. Við eigum að vera tilbúin til að rétta hverj- um þeim sem er hjálparþurfi hjálparhönd hvar og hvenær sem er. Hér á síðunum finnur þú skátaheitið, skátalögin og kjörorð skáta en heilbrigðisreglur Banden Powells eru í 5.tbl. Æskunnar (síðasta tölublað). SKATAHEITIÐ Ég lofa að gera það sem í mínu valdi stendur til þess: Að gera skyldu mína við Guð og ættjörðina, að hjálpa öðrum, að halda skátalögin. S 6 Æ S K A N

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.