Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.06.1992, Qupperneq 53

Æskan - 01.06.1992, Qupperneq 53
Hvernig er hægt að mæla hve vatn er gegnsætt? Til þess að mæla gegnsæi vatns er málmplötu sökkt niður frá bát eða bryggju. Skráðu dýptina þar sem platan hverfur sjónum. Endurtaktu tilraunina á mismunandi stöðum í mismunandi vötnum. Reyndu að komast að raun um hvers vegna gegnsæið breytist. Hvers vegna eru sum vötn glær og önnur dimm. Er gróðurinn mismunandi í dimm- um og glærum vötnum? Er vatnið mengað? Búðu til þína eigin vatnssjá Með vatnssjá getur þú rannsakað jurta- og dýra- líf á botninum. Gegnsæ plexíglerplata skorin út til að vera gluggi í pípunni. krp /V nsumarið kemur HLdrAlifara börn og unglingar að velta fyrir sér hvað sé hægt að gera í fríinu. Margt er í boði, bæði spennandi og skemmtilegt. Eitt af því sem býðst er útilífs-og leikja- námskeið á vegum Útilífsskólans. Útilífsskólinn er samstarfsverkefni skátafélaganna Dalbúa og Skjöld- unga ásamt Þroskahjálp og Öryrkja- bandalaginu. Fjöldi þátttakenda á hverju nám- skeiði er um 20 á aldrinum 8-15 ára. Eins og undanfarin ár taka fatlaðir einnig þátt í námskeiðunum. Það er trú aðstandenda skólans að rétt sé að gefa fötluðum og ófötluðum kost á að vera saman í leik og starfi og hefur þetta fyrirkomulag gefist vel í starfi skólans síðastliðin sumur. Hvert námskeið er í tvær vikur og dagskrá erfrá kl. 10-16 en húsið er opið milli 9 og 17. Skólinn hefurað- setur í skátaheimilinu Sólheimum 21 a. Hver dagur hefur sitt þema þar sem þátttakendur fá fræðslu og tæki- færi til að takast á við verkefni tengd skátastarfi og útilífi. Sem dæmi um þema má t.d. nefna: Indíánar - Fjaran - Skyndi- hjálp - Skynjun/Skynfæri - Náttúran - Hnútar, bönd og föndur - Að rata - Útilega. í lok hvers námskeiðs er sólar- hrings útilega. Þar er m.a. farið í gönguferð og brauð eldað á leiðinni, farið í leiki, kvöldvaka þar sem þátt- takendur koma saman með stutta leikþætti og margt fleira. Ef þú vilt frekari upplýsingar hik- aðu þá ekki við að hringja í Skáta- húsið í síma 15484. Höf: GudmundurÁrmann. Æ S K A N 5 7

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.