Æskan - 01.06.1993, Blaðsíða 3
4
##
$ SUZl'
w
~\
* SUÍUKI
B «:,';!£
Magnús Scheving þolfimimeistari svarar aðdáendum - bls. 46
Kæri lesandi!
4
Eg vona að þú hafir notið
útivistar, íþrótta og leikja í sumar
- og þess starfs sem þú kannt
að hafa haft með höndum. Nú
er sá tími sem jafnan er hinn
heitasti á árinu og þá toga leikir
oftast meira en lestur. Hins vegar
rignir líka einhverja daga,
stundum í roki, og þá er gott að
geta unað sér við að lesa
Æskuna.
Þú hefur eflaust heyrt að
virðisaukaskattur var lagður á
bækur og tímarit 1. júlí sl. Það
merkir að söluverð lesefnis
hækkar um 14% - nema
útgefendur lækki verð á vöru
sinni.
Áskriftargjaldi Æskunnar hefur
verið haldið eins lágu og kostur
hefur verið - miðað við þann
kostnað sem fylgir því að gefa út
vandað tímarit, tíu tölublöð á ári.
Þó munum við taka hluta
skattsins á okkur, þ.e. lækka verð
okkar. En á það leggst skattur
ríkisins.
Þegar þetta tölublað var búið til
prentunar í lok júní var gengi
íslensku krónunnar fellt. Vegna
sumarleyfa varð að Ijúka frágangi
þess áður en Ijóst varð hve mikið
pappírsverð hækkaði. Þess
vegna hlutum við að fresta
ákvörðun um áskriftargjaldið. Hún
verður tilkynnt í 7. tbl. en það
kemur út um svipað leyti og
innheimta hefst.
Þetta varð ég að nefna þó að
skemmtilegra hefði verið að ræða
eitthvað annað en það. En á
næstu blaðsíðu tökum við upp
léttara hjal!
Gangi þér allt í haginn!
Með hlýrri kveðju,
Karl Helgason.
/ »•
d.1993. 94. árgangur
, 3.1iaeð' • Sími ritstjóra er 10248; á afgreiðslu blaðsins 17336; á skrifstofu
17594 • Áskriftargjald fyrir 6.-10. tölublað 1993: verður tilkynnt I 7. tbl. • Gjalddagi er 1. sept. •
Áskriftartímabil miðast við hálft ár • Lausasala: 450 kr. • Póstárltun: Æskan, pósthólf 523,121 Reykjavík
• 7. tbl. 1993 kemur út 5. september • Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Karl Helgason, hs. 76717 •
Framkvæmdastjóri: Guðlaugur Fr. Sigmundsson • Teikningar: Búi Kristjánsson • Útlit, umbrot,
litgreiningar og filmuvinna: Offsetþjónustan hf. • Prentun og bókband: Prentsmiðjan Oddi hf. • Útgefandi
erStórstúka íslands I.O.G.T. • Æskan kom fyrst út 5. október 1897.
Forsíðumyndin er tekin á Bindindismotinu í Galtalækjarskógi. Ljósm.: Guðni Björnsson.
EFNISYFI RLIT
VIÐTÖL OG GREINAR
4 Glatt á hjalla í Galtalækjarskógi
- Bindindismótið um verslunarmanna-
helgina
8 „Ég kann bestu við löngu hlaupin"
- segir Eygerður Inga Hafþórsdóttir
níu ára afreksstúlka
12 Vormót barnastúkna
18 Verðlaunabækur
19 Sigurvin Ólafsson knattspyrnukappi
- mun æfa með Stuttgart
29 Katrín Jónsdóttir knattspyrnukappi
- er fyrirliði landsliðs stúlkna
50 Góður árangur í góðu veðri
- um þríþraut FRÍ og Æskunnar
61 Vinsæll „vatnsköttur"
- Jeremy Jackson í Strandvörðum
SÖGUR OG LJÓÐ
10 Rósin Jónas
20 Ásdís og vinir hennar
24 Ljóðakeppnin 1992
25 Of venjulegt - eða ...
37 Svaðilför
48 Frá bernskuvori
TEIKNIMYNDASÖGUR
13 Reynir ráðagóði
14 Eva og Adam
35 Ósýnilegi þjófurinn
ÞÆTTIR
16 Æskupósturinn
22 Lágfóta landvörður
26 Úr ríki náttúrunnar
28 Tölvuþáttur
42 Poppþátturinn
45 Frímerkjaþáttur
46 Aðdáendum svarað:
- Magnús Scheving þolfimimeistari
54 Æskuvandi
56 Skátaþáttur
ÝMISLEGT
6, 7, 40, 41 Þrautir
27 Ljósmyndakeppni Æskunnar
38 Skrýtlur
39 Kátur og Kútur
52 Pennavinir
58 Við safnarar
59 Lestu Æskuna?
62 Verðlaunahafar og lausnir á
þrautum í 4. tbl. 1993.
VEGGMYNDIR
Chicago Bulls
Hvar ertu í heiminn borin(n)?
Æ S K A N 3