Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.06.1993, Qupperneq 12

Æskan - 01.06.1993, Qupperneq 12
Frá Unglingareglunni VORMÓTIÐ í GALTALÆKJARSKÓGI Vetrarstarfi Unglinga- reglunnar á Suður- og Vesturlandi lauk með vor- móti í Galtalækjarskógi helgina 15.-16. maí. Mót- ið stóð nú yfir í tvo daga en hefur undanfarin ár verið í einn dag og haldið um Jónsmessuleytið. Ekki hefur verið ákveðið hvort sami háttur verður hafður á næstu ár en gaman væri að heyra hvernig þeim krökkum sem þarna voru líkaði á mótinu. í skóginum voru 15o barnastúku-félagar þegar flest var. Þeir voru úr Sið- semd nr. 14 í Garði, Kær- leiksbandinu nr. 66 í Hafnarfirði, Æskunni nr. 1 í Reykjavík, Fjallasól nr. 161 í Skógaskóla, Fjallarós nr. 145 í Selja- landsskóla og Stjörnunni nr. 103 á Akranesi. Margt var gert sér til skemmtunar bæði úti og inni og allir voru með í því sem fram fór, ungir sem aldnir. Best er að láta myndirnar tala! Eg þakka öllum sem tóku þátt í að gera þetta mót eftirminnilegt. Von- andi fæ ég að sjá ykkur öll aftur í haust! í sannleika, kærleika og sakleysi, Jón K. Guðbergsson - stórgæslumaður ung- lingastarfs. Að reyna að ná rófunni... Félagar í Fjallarós léku á hljóðfæri. Stólkur úr Kærleiksbandinu sungu Verðlaunahafar I þríþrautar- keppninni - ásaml Jóni K. Guðbergssyni stórgæslumanni (t. v.) og sr. Birni Jónssyni stórtemplar og gæslumanni bst. Stjórnunnar á Akranesi. Sigrún Oddsdóttir, gæslu- maður bst. Siðsemdar í Garði, lék fjörug lög á munnhörpu. Stórgæslumaður kynnir úrsiit. 1 2 Æ S K A N

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.