Æskan

Volume

Æskan - 01.06.1993, Page 20

Æskan - 01.06.1993, Page 20
ÁSDÍS OG VINIR HENNAR eftir Björgu Pétursdóttur 14 ára. Sumariö var komið og Ásdís, sem var 11 óra, ætlaði að fó sér gæludýr. Hún ætlaði annað hvort að fó sér kettling eða hvolp. Mamma hennar hafði séð auglýst í Dagblaðinu að þrjá kettlinga vantaði gott heimili. Mæðgurnar skoðuðu þá alla. Það voru tvær læður og einn högni. Læðurnar voru báðar svart- ar og hvítar en högninn var bröndóttur með hvíta bringu. Ás- dísi leist strax vel á hann og hon- um virtist lítast vel á hana. - Mamma, má ég taka þennan? Mér finnst hann svo fallegur. - Hann er rúmlega tveggja mánaða, sagði konan sem átti kettlingana. - Já, ætli það ekki. Mér líst líka mjög vel á hann, bætti mamma hennar við. - Takk, elsku mamma, sagði Ás- dís og tók litla, fallega kettlinginn og sagði lágt: - Þú mátt aldrei fara frá mér, því að þá græt ég í mörg ár. Kettlingurinn pírði augun og leit á hana. Það var eins og hann væri að þakka henni fýrir að hafa tekið sig. Fallegu, grænu augun hans minntu á skærgrænar perlur úr dýrmætri hálsfesti. - Jæja, Ásdís mín, eigum við að fara með hann heim? - Má hann sofa hjá mér í nótt? - Já, það ætti að vera í lagi svona fyrstu næturnar, sagði mamma. Þegar þær komu heim var Gunni, bróðir Ásdísar, í eldhúsinu með mjólkurglas og kökusneið. Gunni var 15 ára. Hann starði á þær eins og þær væru ræningjar eða eitthvað slíkt. - Hvað er þessi köttur að gera hérna? var það fyrsta sem hann sagði. - Við sögðum þér um daginn, Gunni minn, að Ásdís mætti fá sér dýr. Þú hlýtur að muna eftir því. - Já, já, ég man það alveg. En ég vildi ekki einhvern kattarskratta! Ég hefði viljað sjeffír-hvolp en ekki svona drasl. - Gunni þó! Ekki tala svona í á- heyrn Ásdísar. Hún tekur það nærri sér. - Aldrei má maður neitt. Alltaf er Ásdís eftirlætið ykkar pabba. Aldrei hef ég fengið neitt svona, tautaði Gunni og fór út. - Mamma, af hverju talar hann svona? - Æi, þú veist hvernig hann er, Dísa mín. Taktu ekki mark á hon- um. - En mamma, hvað á kettling- urinn að heita? - Þú hlýtur að finna eitthvert nafn. Þú ert svo dugleg við svoleið- is, Dísa mín, sagði mamma. Allt í einu heyrðist pínulítið „mjá" frá kisa. - Æi, greyið, hann er örugglega hræddur, sagði Ásdís. Þær gáfu honum mat og mjólk. Hann át matinn og lapti mjólkina og svo tiplaöi hann inn í stofu, stökk upp í sófann og pissaði í hornið. - Oooohh, sagði mamma, greip um höfuðið og þaut inn í stofu. Hún tók kisa og byrjaði að þrífa sófann. Kettlingurinn var ánægður með lífið. Hann hljóp um alla íbúðina, stökk og lék sér. Allt í einu sá Ásdís hann hvergi. Hún leitaði og leitaði og fann hann loks þar sem hann hafði sofnaði í rúminu hennar. - Mamma, sjáðu kisa. Hann sef- ur í rúminu mínu, kallaði Ásdís og náði í mömmu sína. - Æi, sjáðu hvað hann er sætur, mamma. - Já, hann er algjört krútt. Dagurinn leið hratt og þegar pabbi Ásdísar kom heim úr vinn- unni, sagði hann. - Nei, hvað sé ég? Lítill sætur kettlingur! Næsta dag var ákveðið að finna nafn á fallega kettlinginn. Hann var enn þá svolítið ringlaður eftir gærdaginn. Pabbi stakk upp á því að allir skrifuðu kattanöfn á miða og svo yrði dregið. Ásdís skrifaði Keli, Gunni skrif- aði Palli prakkari, mamma skrif- aði Mahler, Gugga (5 ára systir Ás- dísar) skrifaði Dúlli og pabbi skrif- aði Brandur. Nafnið, sem var dreg- ið, var Brandur. Brandur og Ásdís urðu mjög góðir vinir. Dag einn kom hann með læðu með sér. Hún hét Hosa. Hún var svört með hvítar hosur. Hún átti heima í næsta húsi. Þegar þetta gerðist var Brandur orðinn 7 mánaða. - Mamma, sjáðu hvað Hosa er feit! Kannski er hún kettlingafull. Ef til vill er Brandur búinn að finna sér réttu læðuna, loksins! - Mér sýnist það, sagði mamma. - Ættum við að skreppa í hús núm- er 16? - Já, endilega, sagði Ásdís. Og mæðgurnar þrjár fóru yfir í hús númer 16. Þar var tekið vel á móti þeim og þeim var boðið inn í kaffisopa. Lína, sem var húsmóðir- in á heimilinu, sagði þeim að Hosa væri kettlingafull og líklega væri það eftir Brand. - Nei, en gaman, sagði mamma. Ásdís varð líka mjög ánægð með það. 2 0 Æ S K A N

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.