Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.06.1993, Qupperneq 27

Æskan - 01.06.1993, Qupperneq 27
Pardus-selur (einnig nefndur sæhlébarði) er grirnmasta rán- dýrið í hópi sela. Hann verður rúmir 3 metrar á lengd og er með mjög sterkar og beittar tennur. Skrokkurinn er rennilegur, hálsinn uppteygður og höfuðið fremur flatt með gapandi gini eins og sel- urinn sé stöðugt viðbúinn að gleypa það sem kemur nálægt honum. Feldurinn er gráleitur að ofan en gulhvítur eða Ijósgulur að neðan og með dökkum smáblett- um. Þetta litamynstur er svipað og á pardusdýri og selurinn dreg- ur hugsanlega nafn sitt af því þó að ætla megi að sterkir kjálkar og hvassar tennur hafi ekki síður komið þar við sögu. Pardus-selurinn étur mest fisk og kolkrabba en er þó kannski frægastur fyrir að elta mörgæsir uppi á sundi. Hann veiðir líka aðra seli eins og áður er getið. Þar við bætist ýmislegt góðgæti sem fleygt er fyrir borð af hval- veiðiskipum þó að minna sé nú orðið um það en áður var. Mest er af pardus-sel við Suð- urskautslandið en hann er einnig við Ástralíu og Suður-Ameríku. Stofninn er áætlaður um 300 þús- und dýr. Selirnir eru oftast nokkuð staðbundnir en þó kemur fyrir að þeir taka sig saman og ferðast þá í stórum vöðum. Þá eru þeir vafa- laust lítt árenni- legir. Ekki eru miklar upplýsingar um fjölgun pardus-sela en urturnar kæpa sennilega í nóv- ember-desember, þ.e. að sumri til á þessum suðlægu slóðum. Ross-selur er álíka útbreiddur og pardus-selur en þó er litlu meira vitað um hann. Þetta er mjög sérhæfð tegund með gríðar- stór augu og smáar og veik- byggðar tennur. Líklega er það aðlögun að því að hann lifir eink- um á smávöxnum botndýrum. Hann getur kafað dýpra en nokk- ur önnur selategund. Þegar hann liggur á ísnum getur hann flatt sig út svo að hann líkist helst pönnu- köku. Liturinn er sérkennilegur, grænleitur á baki, gulur á kviði og gulleitar skárendur á hliðum. LJÓSM YNDAKEPPNIN - SEÐ MEÐ AUGUM ÆSKUNNAR Við minnum á Ijósmynda- keppni Æskunnar - sem kynnt var í 5. tbl. á bls. 4. í boði eru glæsileg verðlaun, þar á meðal þrjár Canon- myndavélar frá Hans Peter- sen hf. Allir lesendur Æskunnar geta tekið þátt í keppninni - en um verðlaun keppa 16 ára og yngri (fæddir 1977 og síðar). Myndefnið er frjálst. Skilafrestur er til 1. september. Myndunum verður að fylgja staðfesting foreldra á því að sendandi (f. 1977 og síðar) hafi tekið þær. Bréfin á að merkja þannig: Ljósmyndakeppni Æskunnar, pósthólf 523,121 Reykjavík. Canon EOS 1000F - aðalverðlaun í Ijósmyndakeppni Æskunnar. Vélin er með inn- byggðu leifturljósi - hún stillir skerpu myndanna sjálf og er mjög einföld í notkun. Hún er mest selda myndavél í heiminum - af þeim sem eru þannig gerðar að horft er í gegnum linsuna við myndatöku - og unnt er að skipta um linsu í. Æ S K A N 2 7

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.