Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.06.1993, Qupperneq 34

Æskan - 01.06.1993, Qupperneq 34
- Fullorðið fólk er skrýtið, sagði Dóri litli. - Fyrst kennir það okkur að tala og svo er það alltaf að segja okkur að hafa hljótt! - Hver er þessi þarna sem lítur út eins og fuglahræða? spurði Hákon félaga sinn þeg- ar þeir komu á dansleikinn. - Hún heitir Margrét og fað- ir hennar er milljarðamæringur! - Nuuú! Viltu vera svo góður að kynna mig fyrir þessari Ijómandi laglegu stúlku? - Mamma! Ég fékk ömmu til að hætta að naga neglur! - Það var gott. Hvernig fórstu að því? - Ég faldi gervitennurnar hennar! - Pabbi! Ég þarf að spyrja þig tveggja mikilvægra spurn- inga! - Hverjar eru þær? - Sú fyrsta: Get ég fengið vikupeningana mína strax en ekki eftir tvo daga? - - Önnur: Af hverju ekki? - Mamma, getur þú gefið mér tvö hundruð krónur? - Til hvers ætlar þú að nota þær? - Handa gamalli konu. - Það var fallega hugsað. Gjörðu svo vel, hér eru pen- ingarnir. Hvaða gamla kona er það? - Þessi þarna sem er að selja ís ... Gestur á málverkasýningu: Hvað á þessi mynd að tákna? Málarinn: Það man ég ekki. Það eru þrjú ár síðan ég mál- aði hana. Verslunarstjórinn: Ég hef veitt því athygli að stúlkan í sælgætisdeildinni borðar í sí- fellu af vörunni. Forstjórinn: Einmitt! Þá skul- um við flytja hana yfir í járn- vörudeildina! - Mamma! Þeir hafa lagt töl- urnar vitlaust saman! Verið var að prófa í sögu í menntaskóla nokkrum. Kenn- arinn kallaði á þann sem næst- ur stóð og byrjað að spyrja hann. „Hvenær var frelsisskráin mikla undirrituð?" Ekkert svar. „Hvenær varð Napóleon keisari?" Ekkert svar. „Hvar varstu á föstudags- kvöldið?" „Ég var í kvikmyndahúsi með vinum mínum.“ „Hvernig dettur þér í hug að þú getir náð prófi með slíku háttalagi?" „Ég þarf ekki að hafa áhyggjur af þessu prófi. Ég var að koma hingað til að gera við tölvu í skólanum!" Sprenglærður prófessor var á flakki um óbyggðir. Með í för var skólapiltur honum til að- stoðar. Eitt kvöldið stakk pró- fessorinn upp á því að þeir legðu gátur hvor fyrir annan. „Ég skal borga þér hundrað krónur fyrir hverja gátu sem ég get ekki ráðið og þú verður að greiða sömu upphæð fyrir þær sem þú svarar ekki.“ „Það finnst mér ósann- gjarnt," sagði pilturinn. „Þú ert miklu lærðari og gáfaðri en ég. Ég borga ekki nema fimmtíu krónur." „Jæja, það er kannski rétt. Þú mátt byrja.“ „Hvaða fugl getur flogið jafn- hratt aftur á bak og áfram?" „Það veit ég ekki. Hér eru hundrað krónur. Hvaða fugl er það?“ „Það veit ég ekki. Hér færðu fimmtíu krónur!" Litla telpan togaði í hárið á bróður sínum þangað til hann hljóðaði af sársauka. Mamma þeirra huggaði hann og sagði: „Þú skilur að hún veit ekki hve sárt þetta er.“ Síðan fór hún aftur fram í eldhús. Eftir litla stund æpti litla syst- ir og orgaði af öllum kröftum. Mamma hennar hljóp inn. „Hvað er að barninu?" spurði hún með öndina í háls- inum. „O, svo sem ekki neitt,“ sagði strákur. „Bara að nú veit hún það!“ Lóa var venjulega þæg og góð telpa en einu sinni varð hún afskaplega reið við bestu vinstúlku sína. Þær flugust á eins og grimmir kettir. Mamma hennar ávítaði hana og sagði að lokum: „Ég er viss um að það hefur verið Ijóti karlinn sem hvíslaði því að þér að toga í hárið á henni Stínu.“ „Það getur vel verið,“ sagði Lóa - en bætti svo við eftir að hafa hugsað sig um: „En mér datt sjálfri í hug að sparka í hana!“ Húsmóðirin bað gest sinn að afsaka að hún hefði stein- gleymt að kaupa ost. Hann sagði henni að hafa ekki áhyggjur af því. Siggi litli, fjög- urra ára, hlustaði á þetta. Hann laumaðist út en kom aftur eft- ir stutta stund með flís af osti og lagði hana á diskinn hjá gestinum, hróðugur á svip. „Þú ert út undir þig, karlinn," sagði gesturinn. „Fékkstu þetta lánað?“ „Nei,“ sagði Siggi. „Ég tók það úr músagildrunni!"

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.