Æskan

Árgangur

Æskan - 01.06.1993, Blaðsíða 51

Æskan - 01.06.1993, Blaðsíða 51
EKKERT Af> ÓTTAST hana vita um allt. Hjálpaöu mér því að mér líður mjög illa. Kæra Æska! Ég á við ægilegt vandamál að stríða. Ég er 13 ára og á systur sem æfir fimleika. Mamma sagði henni að vara sig því að meyjar- haftið gæti rofnað. Ég varð dauð- hrædd. Einn daginn var ég að horfa á sjónvarpið og settist óvart á tré- brún á rúmi. Seinna um kvöldið sá ég að mér hafði blætt. Það var ekki eftir regluleg ar blæðingar því að ég hafði nýlega verið með þær. Rauöi krossinn. Svar: Vandamálið, sem þú nefnir i bréfi þinu, er varia mjög alvar- legt. Eins og þú eflaust veist er meyjarhaftið þunn, götótt himna sem tíðablóð kemst í gegnum. Við kynþroskann verður það þykkara og meira áber- andi en áður. Sumar stúlkur hafa þó ekkert meyjar- haft og hjá öðrum er það svo lítið að það grein- vart. Það get- ur rifn- að við þetta hefu ve r i ð vegn: þess að meyjar- haftið rofn aði. Ég þori ekki að segja neinum frá þessu, ekki einu sinni mömmu þó að hún sé alltaf að segja að ég eigi að láta margt, t.a.m. í leikfimi og við hjólreiðar. Ekki er ólík- legt að það hafi gerst við þetta óhapp sem þú lýsir í bréfinu. En það er ekkert að ótt- ast. Reyndu að tala um þetta við mömmu þina. Ég veit að henni þætti vænt um að þú leitaðir eftir trúnaði hennar. Gangi þér vel! EINMANA OC ... Æskuvandi! Ég ætla loksins að herða mig upp og skrifa þér bréf. Það verður að koma í Ijós hvort það kemst nokkurn tíma í póst. Vandamál mín eru svo mörg að ég gæti aldrei komið þeim öllum á blað. Ég ætla samt að reyna að segja þér frá nokkrum og vona að þú getir að- stoðað mig. 1. Ég er ákaflega einmana. Ég á nokkra kunninga en engan alvöru vin sem ég get talað við og treyst. Mér líður afar illa út af þessu. Ég hef sokkið djúpt í þunglyndi og margsinnis íhugað sjálfsmorð. Ég reif mig að nokkru leyti upp úr því en er enn mjög óánægður me<3 lífið. 2. Einn af bestu kunningjum mínum er stúlka á sama aldri og ég. Við höfum svipaðar skoðanir á öllu. Ég er mjög hrifinn af henni en hef ekki látið bera á því af ótta við að eyðileggja allt á miili okk- ar. 3. Ég er óánægður með útlit mitt. 4. Ég hef aldrei verið í neinu rugli. En ég er orðinn hræddur um að ég fari að leiðast út í það - bara tíl að gera eitthvað. Ég vil það ekki en samt... 5. Ég kvíði framtíðinni. Ég er hræddur um að ég ráði ekki við það sem ég þarf að takast á við. Einn óttavilltur. Svar: Þakka þér fyrir bréfið! Það var gott að þú skrifaðir mér. Eflaust hefur þú fengið einhverja útrás við það. Vandamál þín eru ein- manaleiki, vinaleysi, þunglyndi og léleg sjálfsmynd. Ekki er unnt að svara þessu öllu í svo stuttu máli sem hér þarf að gera. En ég ráðlegg þér að taka þátt i fé- lagsstarfi, t.a.m. starfi skáta eða íþróttum. Ræktaðu líka betur vináttu við stúlkuna. Fáðu hana til að deila með þér áhyggjum þinum. Það er auðveldara þegar tveir bera en einn. Ef hún er vin- ur i raun veit ég að hún tekur þessu vel og það gæti treyst samband ykkar. Einbeittu þér líka að þvi að efla sjálfsmynd þína. Unglingsárin eru mikið breyt- ingaskeið i lífi fólks. VicI kynþroskann tekur ung- lingurinn vaxtarkipp. Barnið breytist á örfáum árum i fullvaxna konu eða karlmann. Það er ekki óalgengt að sjá pilta á þessum aldri renglulega vaxna. Hafðu því ekki áhyggjur af holdafari þínu. Ég vil lika benda þér á að vímuefnaneysia er ekki leiðin út úr þessari vanliðan þinni. Hún hefði áhrif sem kjaftshögg og gerði lífið margfalt erfiðara en það er. Kviðið fólk, sem fer þessa leið, getur aldrei haft stjórn á neyslu ávanaefna. Ég vona að þessar línur hafi eitthvað hjálpað þér. Best væri ef einhver sem þú treystir vel gæti liðsinnt þér. Ef þú leggur ekki i að ræða við neinn í fjöl- skyldunni gætirðu hringt í sima- númer Rauðakross-hússins - 996622 - eða neyðarsímann 985-29600. Hikaðu ekki við að fara þá leið ef þér liður illa. Gangi þér vel! Æ S K A N S S
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.