Valsblaðið - 24.12.1970, Blaðsíða 4

Valsblaðið - 24.12.1970, Blaðsíða 4
2 VALSBLAÐIÐ Það var dýrleg stund er Frelsarinn fœddist. SiSan hafa milljónir manna meSal hverrar kynsloöar kornið hljóðlega til hans, þegar dimmt var í huga, til dð öðlast frið — til að eignast Ijós og kraft til að bera lífsbyrðarnar, sem oft verða svo þungar og erfiðar, — og koma þeir enn. Enn kveikja menn jólaljós viðsvegar á jörðu. Enn lifir í brjóstum þeirra djúp þrá eftir feg- urri og betri heimi. Ennþá berst hin undursamlega rödd hans til allra, ungra sem gamalla: „Hver, sem fylgir mér, mun ekki ganga í myrkri, heldur hafa lífsins ljós“. V er sigurmerki kristinna manna. V er einnig fyrsti stafur á orðinu Valur. Mœttu allir Valsmenn og unnendur félags- ins sameinast á þessari hátíð við jötu jólabarns- ins og fá nýjan kraft og nýja djörfung, — fram til sigurs í innra og ytra skilningi. Guð gefi ykkur öllum gleðileg jól. ForsíÖumyndin Islandsmeistarar í knatt- spyrnu 1970, 5. fl. A. Það er oft nokkuð erfitt að velja mynd á forsíðu blaðsins, því mörg sjónarmið koma til og mat á því, sem gerzt hefur á árinu. Það þykir alltaf nokkur heiðurssess að vera settur á forsíðu, og því verður sá eða þeir að hafa unnið sér mikið til ágæt- is, til að komast þangað. Erfiðleik- arnir eru mestir, þegar margir eða fleiri en einn hafa staðið sig það vel að vera taldir þess verðugir að skreyta forsíðuna. Að þessu sinni var sannarlega um fleiri en einn að ræða sem hafa unnið til þess heiðurs og koma þá fyrst til íslandsmeistararnir í handknattleik úti. Það var vel af sér vikið að stöðva 14 ára sigurgöngu hinna ágætu F.H.- inga, sem í lengri tíma hefur blandað sér í baráttuna um efsta sætið en nokkurt annað félag hér á landi. I annan stað voru það F.H.-ingar, sem unnu þennan titil af Val fyrir 14 ár- um. í fyrra var þessi sami flokkur á forsíðunni með mikið til sömu mönn- um og sannar þetta raunar góða frammistöðu flokksins að undan- förnu, sem við getum verið hreyk- in af. Meistaraflokkur kvenna kom einn- ig til greina með þrjú unnin mót á árinu, sem var góð frammistaða. Þriðji aðilinn, sem til greina kom, voru íslandsmeistarar Vals í fimmta flokki, og þegar betur er að gætt eru það einu Islandsmeistararnir í hin- um eiginlegu íslandsmótum (Bikar- keppnin ekki meðtalin), sem voru úr Reykjavík. Allir aðrir meistaratitlar fóru út á land, og voru Vestmannaeyingar þar ágengastir. Fyrir 20 árum eða svo, var það viðburður ef sigurvegara í íslands- mótum var að finna utan Reykjavík- ur. Nú hefur þetta snúizt alveg við, aðeins einn bikar varð eftir í Reykja- vík í sumar. Okkur fannst því verðugt að setja 5. flokkinn á heiðursstaðinn í blað- inu, sem nokkurt þakklæti fyrir að hafa í þessum flokki haldið uppi heiðri Reykjavíkur og Vals auðvitað. Nöfn þessara ágætu meistara eins og þeir eru á myndinni: Fremri röð frá vinstri: Ásmund- ur P. Ásmundsson, Hilmar Harðar- son, Hörður Harðarson, Pétur G. Ormslev fyrirliði, Sævar Jónsson, AI- bert Guðmundsson, Gunnar Finn- björnsson. Aftari röð frá vinstri: Björn Hafsteinsson þjálfari, Magnús Erlingsson, Brynjar Níelsson, Ingólf- ur Kristjánsson, Friðrik Egilsson, Guðmundur Ásgeirsson, Hilmar Hilm- arsson, Rafn Sigurðsson, Hafsteinn Andrésson, Guðmundur Kjartansson, Róbert Jónsson þjálfari. Hátíðahöld í sambandi við 60 ára afmœli Vals Sem kunnugt er verður Valur 60 ára á næsta ári eða nánar til tekið 11 maí. Af þessu tilefni hefur félagið og deildir þess ákveðið að gera sér svolítinn daga- mun, og efna til afmælismóta í þeim greinum, sem félagið hefur á stefnuskrá sinni. Hafa deildirnar gert sér nokkra grein fyrir þessu, þó enn sé ekki hægt að tímasetja neitt nákvæmlega i þeim greinum, sem tilskilin leyfi verða að vera fyrir hendi, um hús, velli og tíma. Fer hér á eftir það, sem deildirnar hafa helzt látið sér detta í hug um slík há- tíðahöld: Skíðadeildin: Innanfélagsmót sem fram færi á Páskadag, við Skíðaskála Vals. Badminton: Komið verði á móti í fyrsta fl. og í yngri flokkunum, og ennfremur innanfélagsmóti í febrúar og marz. Handknattleiksdeildin: Efnt verði til Hraðmóts í meistarafl. karla og kvenna í marz, og í yngri flokkunum um svipað leyti. Heimsókn næsta haust yrði þáttur í þessum hátíðahöldum. Köriuknattleiksdeildin: Unnið er að því að koma af stað hraðmóti fyrir meist- araflokk, og skjóta þar inn leikjum í fyrsta flokki, öðrum og þriðja. Áhugi er og á að koma af stað móti fyrir „minni boIta“. Knattspyrnudeildin: Rætt hefur verið um að koma á hraðkeppni innanhúss fyrir meistaraflokk. Þegar líður á veturinn. Afmælisleik í maí í meistaraflokki og afmælisleiki í hinum ýmsu flokkum og sveitum yngri flokkanna. Heimsókn Brumunddalen IL. í öðrum flokki (Noregsmeistarar) falli inn í þenn- an hátíðaramma, en gert er ráð fyrir að þeir komi hingað í júní—júlí. Stjórn félagsins hefur ákveðið að efna til mikils hófs í sambandi við afmælið, og mun það verða í marz n. k., ef allt fer að óskum. Þá er gert ráð fyrir að 11. maí verði „opið hús“ að Hlíðarenda, svipað og ver- ið hefur. Áætlað er að afmælisblað komi út í lok ársins. KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ VALUR Óskar öllum félögum sínum, vinum og lceppinautum gleðilegra jóla og farsœls komandi árs. Hittumst heil á nýju ári í leilc og sparfi fyrir hugsjón íþróttahreyfingarinnar. ___________________________________________________________
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.