Valsblaðið - 24.12.1970, Blaðsíða 65
VALSBLAÐIÐ
63
Örn Eiðsson:
Matti Jdrvinen
EftirfaranUi frásögrn um hinn heimsfræga finnska íþróttagarii, Matta Járvinen,
er að stofni til erindi, sem Örn Eiðsson flutti í Ríkisútvarpið. En Örn hefur flutt í
útvarpið að unUanfömu allmörg erinUi um ýmsa heimsfræga afreksmenn á sviði
íþrótta. Hafa erinUi þessi vakið mikla athygli, ekki aðeins meðal íþróttamanna,
helUur og langt út fyrir raðir þeirra.
Á öllum sviðum mannlífsins hefur
komið fram frægt fólk, afreksfólk;
stundum hafa systkini og jafnvel heil-
ar fjölskyldur vakið á sér heimsat-
hygli fyrir framúrskarandi afrek. í
þessari frásögn er ætlunin að spjalla
um fræga finnska íþróttafjölskyldu,
ef svo má segja, Jarvinen-fjölskyld-
una.
Árið 1906 voru afmælis-Olympíu-
leikar haldnir í Aþenu, þá voru liðin
tíu ár frá endurvakningu þeirra, en
fyrstu leikar nútímans fóru fram í
Aþenuborg árið 1896. Á þessum Olym-
píuleikum, þ.e.a.s. 1906, hlutu Finnar
sín fyrstu olympisku gullverðlaun, þau
vann Werner Járvinen, en hann varð
Olympíumeistari í kringlukasti. Eins
og oft vill verða hafa myndazt ýmsar
sögur um afrek og hvernig þau eru til
komin. Hvað sigur Werner Jarvinen
áhrærir, þá halda margir því fram, að
hann - hafi alls ekki átt að keppa í
kringlukasti, heldur kúluvarpi. Wern-
er hafði aldrei kringlu augum litið
fyrr en hann kom til Grikklands. Þeg-
ar þessi glæsilegi Finni hafði kastað
kringlunni á æfingu í Aþenu tókst
honum það svo fimlega, að ákveðið
var í skyndi, að hann skyldi taka þátt
í þeirri grein. Hvað sem sannleiks-
gildi þessarar frásagnar líður, þá er
það staðreynd, að Werner Járvinen
sigraði í þessari fornu íþróttagrein á
OL 1906 og varð til þess að valda
byltingu á sviði íþrótta í Finnlandi.
En Werner var ekki aðeins faðir
frjálsíþrótta í Finnlandi eins og sagt
er, heldur var hann faðir fjögurra
sona, sem allir gátu sér frægð í íþrótt-
um, ekki aðeins í Finnlandi, heidur
um víða veröld. Frægð þeirra bræðra
stóð í öfugu hlutfalli við aldur þeirra,
þar sem sá yngsti varð þeirra fræg-
astur. Sá heitir Matti Járvinen og
varð heimsmethafi í spjótkasti.
Elztur þeirra bræðra var Yrjö, hann
var fjölhæfur íþróttamaður og gat
sér ágætan orðstír í Finnlandi. Næst-
elztur var Kalle, hann var kúluvai’pari
og setti m. a. finnskt met og varð
finnskur meistari. Hann varpaði kúlu
lengst 15,92 metra, sem þá var með
því bezta í heiminum. Þriðji sonurinn,
Achilles (hann fæddist daginn áður
en faðir hans fór sigurför sína til
Grikklands og var því nefndur eftir
hinni forngrísku hetju) varð einn af
beztu tugþrautarmönnum heimsins.
Hann tók þátt í tugþraut á Olympíu-
leikunum í Amsterdam árið 1928 og
var þar í fremstu röð.
En yngsti sonurinn, Matti, varð þó
þeirra langfrægastur. Um margra ára
skeið var hann bezti spjótkastari í
heimi og segja má, að enginn hafi
staðið honum á sporði í þessari karl-
mannlegu íþróttagrein. Hann bætti
heimsmeti á heimsmet ofan og skipti
þá engu máli, hvort um harða keppni
væri að ræða eða ekki.
Ekki er ólíklegt að ætla, að þessir
einstöku íþróttahæfileikar þeirra
bræðra hafi verið ættinni í blóð runn-
ir. En þeir einir nægja þó ekki til að
skapa slíka afburðamenn, fleira kem-
ur þar til. Hitt mun sönnu nær, að um-
hyggja föðurins fyrir sonum sínum,
íþróttauppeldi og metnaður þeirra
sjálfra, hafi öðru fremur gert þá að
því, sem raun ber vitni.
Enginn dagur leið svo, eftir að þeir
bræður komust á legg, að þeir iðkuðu
ekki leikfimi og hún þyngdist því meir
sem drengirnir uxu'að árum og þroska.
Matti var seinþroskaðri en bræður
hans og Werner faðir hans bjóst ekki
við jafnmiklu af honum sem þeim. En
Matti lagði sig allan fram og gerði
það sem hann gat. Hann fór í einu og
öllu eftir æfinga- og lífsreglum föður
síns, hann iðkaði nær allar greinar
frjálsíþrótta, hann lék sér og fór í
áflog við jafnaldra sína, æfði skíða-
Fiiuiski íþrótagarpurinn Matti Járvinen