Valsblaðið - 24.12.1970, Blaðsíða 59

Valsblaðið - 24.12.1970, Blaðsíða 59
VALSBLAÐIÐ 57 Fríniann Heltfason: „Falsekkjurnaru í jólablaðinu í fyrra sögðum við frá því að margar eiginkonur þeirra kvæntu leikmanna sem leika í fyrsta aldursflokki félagsins hefðu stofnað með sér saumaklúþb, sem fékk það tregablandna nafn: „Valsekkjurnar". Sagt var örlítið frá heimsókn í einn „klúbbinn" og það leyndi sér ekki að það var meira en orðin tóm. Þar var allt í gangi sem á að vera í gangi við svona tækifæri, eða saumaverkefni hverskonar, prjón, hekl, svo eitthvað sé nefnt, og svo umræður um dagsins mál, vandamál og einkamál. Sem sagt gaman að sjá og kynnast öllu þessu. Þó hér væri ekki um að ræða eina af þessum deildastofnunum í Val, þá fannst okkur að þetta næði alla leið inn að kjarna Vals, og væri hluti af „andliti félagsins“ (sá sætari!). Okkur í ritstjórninni fannst þetta hiklaust vera eitt af þessum skrefum, sem stigin eru til þess að gera fé- lagsandann betri, fá fleiri til að skilja að samstarf og vinátta eru þættir, sem gera lífið litskrúðugra og skemmtilegra. Var gerður góður róm- ur að þessu tiltæki kvennanna, og vonað að þetta héldi áfram, með auk- inni þátttöku allra þeirra sem þar höfðu rétt til. Nú þótti okkur 1 ritstjórninni rétt að fregna svolítið um það, hvernig þessu unga afkvæmi hefði vegnað fyrsta árið á göngu sinni. Er ekki að orðlengja það, að grennsl- azt var eftir því hvenær næsti „klúbb- fundur“ yrði. Jú, það var allt komið í fullan gang, og samþykkt að veita fulltrúa úr ritstjórninni inngöngu, þó aðrir fengu þar ekki nærri að koma. Það leyndi sér ekki að áhuginn var hinn sami fyrir hinum kvenlegu dyggðum, því manni virtist sem þær væru með fangið fullt af verkefnum af mörgu tagi. Áhuginn var hinn sami og áður, en þær báru sig upp undan því, að af óviðráðanlegum ástæðum hefði þeim heldur fækkað, en nú ætti að gera átak til þess að ná til þeirra sem ekki hefðu enn tekið sér sess meðal þessara Valsmanna- kvenna. Voru uppi margar hugmynd- ir um það hvernig þetta skyldi gerast, og var ekki laust við að bændur fengju sinn hluta af ásökuninni, ef ásökun skyldi kalla. Öllum var þeim það sameiginlegt áhugamál að ná til þeirra, fá þær í hópinn, kynnast þeim í glöðum félagsskap — í „klúbbnum" — eða á öðrum stundum, þegar þær væru einar en þeir á æfingum, eða leikjum. Við hlökkum alltaf til að koma saman og spjalla um okkar mál, og þá bera Vals-mál á góma líka. Þetta í fullu fjöri gekk alveg ljómandi vel í fyrra, en þá endaði vetrarstarfsemin hjá okkur með miklu lokahófi, og þær ljómuðu allar. Hafði ein þeirra tekið að sér að undirbúa dýrindis veizlu, þar sem kaldir réttir voru framreiddir og drykkir við allra hæfi, og auðvitað var öllum bændum boðið til veizl- unnar. Var þar mikill og góðlátlegur glaumur í húsum inni. Eftir góða stund, þegar menn höfðu notið þess sem fram var borið, með góðri lyst, var farið á dansstað, og svifið þar um í öllum töktum danslistarinnar lengi nætur. En allt hefur sín tak- mörk og þar kemur að, að húsinu er lokað á hæla þessa glaða og ham- ingjusama fólks. Minnugt afgang- anna á kalda borðinu, sem horfið var frá fyrr um kvöldið, var haldið þang- að heim og enn setzt að snæðingi, og sungið og dansað enn um hríð. Það var svo gaman, svo gaman sögðu þær einum rómi, og lygndu aftur augunum eins og þær vildu sjá þetta og endurtaka í hugrenningum. Þegar talið barst að leikjum Vals fyrri hluta sumarsins, dofnaði heldur yfir hópnum, það var eins og á þær kæmi alger ,,ekkju“svipur. Þetta var regluleg martröð. Þeir komu heim ákaflega daufir í dálkinn, og við reyndum nú að vera góðar við þá, eftir því sem við gátum, svona oftast nær. Það kom ef til vill fyrir, að við sögðum við þá: Hvaða aumingjaskap- ur er þetta? Við fórum alltaf á völlinn, fullar eftirvæntingar og spennu, en alltaf var það tap. En svo kom fyrsta sigur- markið eftir öll töpin. Þvílík dásemd! Nú gat maður farið að líta upp, og framan í næsta mann! Og eftir seinni hlutann í íslandsmótinu erum við stoltar af okkar mönnum, og við er- um að vona að þeir láti að sér kveða í bikarkeppninni. Þær voru sammála um það, að nú væri mikið betri andi í liðinu en var til að byrja með, og þær skynjuðu fullkomlega að félagsandinn í líðinu væri ákaflega þýðingarmikill fyrir strákana og árangurinn í leikjunum. Það fór ekki milli mála að þessar „Valsekkjur“ ætla að hafa mikið líf í „klúbbnum" í vetur, og sögðust vera farnar að safna í Mallorka-ferð næsta haust, nema þá að strákarnir vinni Bikarinn, og að þá verði möguleiki að komast til útlanda! Þær eru þegar farnar að hlakka til lokahófsins í vor, og sögðust þær inn- heimta vissa fjárupphæð á hverju „klúbbkvöldi", sem væri helmingi hærri en í fyrra. Það verður ef til vill talið til óþarfa forvitni, að inna eftir því, hvortValur hafi eignazt svona innan garðs nýj- an knattspyrnumann eða handknatt- leiksmann eða konu, og var því svar- að neitandi, og var eðlilega ekki kraf- izt neinna skýringa á því. En þá verður einni að orði og mælir hugs- andi og alvarlega, og eins og hún væri að tala við sjálfa sig: Þeir leggja allt of mikið i knattspyrnuna! Það gall við glaðvær og græskulaus hlát- ur, sem fyllti hina vinalegu og skemmtilegu ibúð þeirra Ragnheiðar og Sigurðar Dagssonar. Loks hjaðn- aði hláturinn, og augnablik var hljótt þarna inni. Þá segir ein, eiginlega hvíslar hún því: Þetta getur lagazt. Þær líta hver á aðra með ljúfu og svo- I>að er sreiiiilegt að íslenzkur heimilisiðnaður á þarna góða fulltrúa. — Ragnheiður Lárusdóttir, Birna Óskarsdóttir, Sigrún Gunnarsdóttir, Jólianna B. Hauksdóttir, Þuríður Sölvadóttir og Ingihjörg Jónsdóttir. — Á myndina vantar Helgu Hafsteins- dóttur og Ester Magnúsdóttur. — Myndin er tekin á heimili Ingvars Elíssonar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.