Valsblaðið - 24.12.1970, Blaðsíða 5
VALSBLAÐIÐ
3
- STARFIÐ ER MARGT -
IJr skýrslu aðalstjórnar
í eftirfarandi greinargerð er drep-
ið á ýmis atriði í félagsmálum Vals
og meginþætti á útlíðandi kjörtíma-
bili, sem aðalstjórnin hefur látið sig
skipta sérstaklega.
En sú stjórn, sem senn skilar af
sér störfum, var kjörin á aðalfundi
félagsins, sem haldinn var 8. apríl
s.l. og var skipan hennar þannig:
Formaður Þórður Þorkelsson, Þór-
arinn Eyþórsson varaformaður, Ein-
ar Björnsson ritari, Friðjón Frið-
jónsson gjaldkeri, Jón Kristjánsson
bréfritari. Auk hinna kjörnu stjórn-
armeðlima, eiga lögum samkvæmt
sæti í stjórninni, formenn deilda.
Karl Jeppesen form. Knattspyrnu-
deildar, Guðmundur Frímannsson
formaður Handknattleiksdeildar, for-
maður Badmintondeildar Sigurður
Tryggvason, formaður Skíðadeildar
Stefán Hallgrímsson. Varamenn voru
kjörnir á aðalfundi, þeir: Bergur
Guðnason og Sigurður Guðmunds-
son.
Svo sem getið var í skýrslu aðal-
stjórnar s.l. ár, var stækkun lands-
ins að Hlíðarenda eitt meginmál
stjórnarinnar þá. Lausn þessa máls
er enn ekki fyrir hendi en núverandi
stjórn hefur unnið að henni af full-
um krafti, m. a. viðræðum við þar
að eigandi borgarstarfsmenn, eink-
um þó borgarverkfræðing. En við
hann áttu viðræður f. h. Vals for-
maðurinn og fyrrv. formaður Ægir
Ferdínandsson, en málið bar fyrst á
góma í stjórnartíð hans. Þá ræddi
formaður og við íþróttafulltrúa rík-
isins um málið. Samþykkt var að fá
Guðm. Kr. Guðmundsson arkitekt til
að skipuleggja svæði Vals og gæta
hagsmuna félagsins í sambandi við
stækkun félagssvæðisins.
Getraunastarfsemin hélt áfram á
árinu með svipuðu fyrirkomulagi og
áður. Samkvæmt upplýsingum munu
tekjur Getraunanna hafa orðið frá
1. maí 1969 til 31. maí 1970 um 20
milljónir en sala Vals um % milljón
króna að frádregnum sölulaunum.
Trúnaðarmaður Vals í sambandi við
Getraunirnar var Friðjón Friðjóns-
son. Deildir félagsins önnuðust sölu
seðlanna, hver um sig og hlutu
ágóða í samræmi við söluna, hverju
sinni. Á árinu sendi stjórnin út skrá
til félaganna um þau fyrirtæki sem
tekið hafa að sér umboð fyrir Val
í sambandi við getraunirnar, en þau
eru nær 50 talsins.
Svo sem venja hefur verið um ára-
bil, var „opið hús“ að Hlíðarenda
hinn 11. maí á stofndegi Vals. Að
þessu sinni komu þar á annajð hundr-
að gestir á tímabilinu frá kl. 4—6 e.
h. bæði félagar Vals og annarra fé-
laga í borginni svo og formenn heild-
arsamtaka íþróttahreyfingarinnar,
m. a. formaður KSÍ o. fl. Þórður Þor-
kelsson formaður Vals bauð gesti
velkomna með ræðu, og minntist sér-
staklega Jóhanns Eyjólfssonar fyrrv.
formanns og starfa hans fyrir Val,
en hann átti nýlega 50 ára afmæli á
s.l. ári og af því tilefni sæmdi
hann Jóhann gullhnöppum Vals, með
merki félagsins.
Á árinu var efnt til Valsdags, og
er þetta í þriðja sinni, sem það er
gert. Var dagurinn haldinn hátíðleg-
ur hinn 16. ágúst og með svipuðu
sniði og áður. Veður var gott og
margt manna lagði leið sína að Hlíð-
arenda þenna dag. Formaður setti
hátíðina með ræðu. Á öðrum stað
í blaðinu er skýrt nánar bæði í máli
og myndum frá deginum. Nefndin,
sem sá um „daginn" var þannig skip-
uð: Jón Kristjánsson formaður, Frí-
mann Helgason, Karl Jeppesen, Guð-
mundur Frímannsson, Þorvaldur Jón-
asson, Stefán Árnason og Sigurður
Marelsson.
Á árinu sá loks dagsins ljós marg-
umræddur bæklingur um starfsemi
Vals og kom hann út svo sem ætlað
var, á dönsku og ensku. Er þetta gert
fyrst og fremst þeim til hagræðis,
sem sjá um að svara erlendum fyr-
irspurnir um félagið. Einar Björns-
son og Jón Kristjánsson sáu um út-
gáfuna, sem er hin snyrtilegasta og
Val til sóma, svo sem vera ber.
Um gang mála í sambandi við knatt-
spyrnuna og handknattleikinn vísast
til skýrslu þessara deilda. En þess
skal getið að eitt íslandsmót vannst
og var það 5. fl. Vals, sem þar sigr-
aði og var þetta eina íslandsmótið í
knattspyrnu, sem Reykjavíkurfélög-
in unnu á árinu. En í handknattleik
sigruðu meistaraflokkar karla og
kvenna sjöunda árið í röð. Samsæti
fyrir sigurvegarana var haldið eftir
leikina að Hlíðarenda.
Formaður Skíðadeildar Stefán
Hallgrímsson upplýsti að til stæði að
byggja skíðalyftur í námunda við
skíðaskála félaganna. Er það Skíða-
ráð Reykjavíkur, sem frumkvæði
mun hafa að þessu. Áætlað er að
kostnaður við þetta verði um 250 þús-
und krónur. Borgin myndi ábyrgjast
lán hér að lútandi. Samþykkt var að
athuga um möguleika Vals til að fá
eina slíka lyftu við skála sinn. Var
hér um 6 lyftur að ræða sem borgin
ábyrgðist. Er til kom var svo lyftum
þessum úthlutað tveimur á hvert
hinna þriggja félaga, KR, lR og Ár-
manns. Samþykkt var að formaður
og ritari ættu viðræður við borgar-
stjóra um mál þetta og var svo gert.
Tók borgarstjóri mjög vinsamlega
í málaleitan Vals, en taldi sig alls
ókunnan málinu og var honum tjáð
það, að Valsmenn tækju það óstinnt
upp að vera þannig afskiptir, eins og
allt útlit væri nú fyrir, ef hin þrjú
áðurnefndu félög hyggðust sölsa
undir sig allar þær 6 lyftur, sem til
boða stæðu með borgarábyrgð, og
ættu bó sum þeirra lyftur fyrir.
Á árinu var stofnað til körfuknatt-
leiksdeildar innan félagsins eftir ósk
Körfuknattleiksfélags Reykjavíkur,
um að gerast deild innan Vals. Var
mál þetta ítarlega rætt innan stjórn-
arinnar og deildastjórna, einnig lagt
fyrir Fulltrúaráðið og loks boðað til
auka-aðalfundar, þar sem það var
samþykkt. Formaður deildarinnar er
Sigurður Helgason.
Valsblaðið kom út svo sem að und-
anförnu og með líku sniði og sömu
stjórn.
Á árinu áttu nokkrir félagar Vals
merkisafmæli: Sigurbjörn Þorkels-
son varð 85 ára, Filippus Guðmunds-
son (stofnandi) 75 ára í fyrra, Þor-
kell Ingvarsson 65 ára, Hrólfur Bene-
diktsson 60 ára, Björn Carlsson 60
Þórður Porkelsson, formaður Vals.