Valsblaðið - 24.12.1970, Blaðsíða 38

Valsblaðið - 24.12.1970, Blaðsíða 38
36 VALSBLAÐIÐ stuttar, því það koma oft meira en þrjú lið á æfingar, og þá verður eitt liðið að sitja yfir á meðan hin keppa saman. Mér finnst líka að leikirnir séu allt of stuttir, hálfleikurinn að- eins 7 mín. Það ætti að vera algert lágmark að leikirnir væru 2x10 mín. Þetta er svo stutt, að maður áttar sig ekki á því, þegar gefið er merki um að leikurinn sé búinn, og ég veit, að strákarnir í þessum aldursflokki eru sammála þessu. Annars hefur þetta ekki gengið nógu vel í byrjun núna, en ég er bjartsýnn um að það lagist, þegar við erum komnir í æfingu, og þetta eru nú ekki nema tveir leikir, töp- uðum öðrum, en hinn var jafntefli. Jón Guð- mundsson fyrirliði í 3. fl. A., knattsp. Ég mun hafa gengið í Val 1965, en var áður í Fram. Ástæðan til þess að ég skipti um félag var sú, að allir strákarnir í kringum mig, þar sem ég átti heima, voru í Val. Ég byrjaði keppnisferil minn í 5. fl. C., í leik móti KR, og er mér hann minnistæður fyrir það, að ég skor- aði fyrsta markið í leiknum. Mér fannst það ákaflega skemmtilegt. Annars man ég ekki eftir neinum sérstæðum atvikum úr leikjum, ég man og minnist alls þessa, sem var að gerast í leikjum og á æfingum sem skemmtilegra stunda. Næsta ár lék ég með 5. fl. A. og gekk á ýmsu eins og gengur. Ég man raunar eftir leik við Víking á Haustmótinu, því þar börðumst við eins og við gátum. Liðið var sérstak- lega samstillt, og var þetta eiginlega einn af þeim fáu leikjum, sem allir stóðu þétt saman. Endaði leikur- inn með jafntefli, 1:1, en það verk- aði á okkur sem sigur væri, því næst áður höfðum við tapað fyrir Vík- ingi 4:0, en í þeim leik fórum við út á með mikla minnimáttarkennd. Það gerðum við aftur á móti ekki í leik við Fylki í sumar, og í bún- ingsklefanum var mest um það rætt, hve mörg mörk við skyldum skora, en það fór nú á aðra leið. Við skor- uðum ekkert markið en þeir eitt, svo við töpuðum 1:0. Við vorum hættulega vissir um sigur. Við létum okkur þetta að kenn- ingu veroa í leiknum við KR, sem var næsti leikur. Ég tel að við höfum átt þá mjög góðan leik. Ég held líka, að strákunum hafi þótt nóg komið og viljað sýna, að þeir gætu svolítið meira! Andinn í 3. fl. var mjög góður og hefur alltaf verið það síðan ég byrj- aði þar, að vísu þyrftu þeir að vera meira saman utan vallar. Liðið þarf að vera samstillt og má ekki skipt- ast í hópa. Samverustundir leik- manna sem leika saman eru þeim nauðsynlegar. Það er ef til vill rétt að geta þess, að ég lék með úrvali úr Reykjavík gegn liðum frá: Akureyri, Akranesi, F. H. og Keflavík, og urðum við í úrslitum við Keflavík og unnum 2:1. Ég hafði heppnina með mér í þess- um leik, því mér tókst að skora úr- slitamarkið, það var skemmtilegt og ég held, að ég hafi aldrei verið ánægðari eftir leik en þá. Þó að félagsandinn hafi verið góð- ur, þá finnst mér að það þyrfti að halda fleiri fundi, og þeir þyrftu að vera með vissu millibili allt árið, þannig að það væri eitthvað fleira en æfingarnar og leikirnir, sem sam- einaði okkur, sem sagt meiri fjöl- breytni í félagslífinu og starfinu. Ég tel líka æskileg smá ferðalög út um landið með viðkomu á stöð- um, þar sem drengir eru sem vilja keppa við lið frá Val. Við fórum eina slíka ferð til ísafjarðar í sumar, og var það mjög skemmtileg ferð. Ég held að það væri til mikilla bóta, ef komið væri upp í sambandi við æfingasvæði Vals einföldum tækjum til að auka tækni strákanna og leikni með knöttinn. Ég held líka, að það væri betra að byrja á vorin með útiæfingum, ef veður leyfði. Mér fellur vel við Lárus sem þjálf- ara, hann er rólegur en þó hóflega ákveðinn. Ég vona svo bara, að strákarnir haldi áfram að æfa og að félagið haldi áfram að eflast og vaxa. Örn Gunnarsson fyrirliði í 3. fl. B, knattsp. Þegar ég fluttist í Hlíðarnar gerð- ist ég félagi í Val. Löngu áður hafði ég byrjað að sparka bolta og var hann aðalleikfang mitt. Ég vissi af Valsvellinum, og að það var stutt að fara á hann, en ég var ekkert æstur í það. En svo vildi það til einu sinni, að ég fylgdist með félaga mínum, sem var að fara á æfingu, en ætlaði alls ekki að vera með, og þegar ég er beðinn um að vera í öðru liðinu, ætlaði ég ekki að fást til þess. Loks lét ég til leiðast og fannst þetta þá ofsagaman og hef verið með síðan. Ég byrjaði að keppa með 5. fl. C., þá 11 ára. Ég var svo heppinn að vera með í 5. fl. A., þegar við urðum að leika þrjá leiki til úrslita, það verður mér alltaf minnistætt, líka vegna þess að við unnum að síðustu. f sumar hefur þetta gengið vel hjá okkur, urðum Reykjavíkurmeistarar og Miðsumarsmeistarar. Strákarnir hafa haldið vel saman, og allt þetta má þakka Lárusi þjálfaranum okk- ar. Það munaði litlu að við yrðum Haustmeistarar líka. Markatalan hjá okkur í þessari sveit var okkur mjög hliðstæð eða 46 gegn 6. Við töpuðum ekki neinum leik, en gerðum 3 jafn- tefli við Víking, þeir voru erfiðastir, og 1 við KR. Einna eftirminnilegasti leikurinn í sumar var við Fram á Valsvellinum. Það var hörkurok og illviðri. Við lék- um undan vindi í fyrri hálfleik, og tókst okkur ekki að skora nema 2 mörk, og vorum smeykir um að það mundi ekki duga, þegar Framarar hefðu vindinn með sér. En öllum á óvart skoruðu þeir ekkert mark, en við bættum 2 við! Þetta var óvænt, að vinna með 4:0. Þetta hefur verið skemmtilegt sumar, andinn góður á æfingunum, en þar fyrir utan var ekki mikið um að vera, þó höfðum við tvö mynda- kvöld, og var það skemmtilegt. Strák- arnir vilja að það séu haldnir fleiri fundir, og ég vona að það verði, þeg- ar Félagsheimilið eignast sýningar- vél. Það var mjög gaman að för flokk- anna til Laugarvatns í sumar, og hefði þar mátt vera lengri viðdvöl, en það voru 2 dagar á hvern flokk. Þá vil ég geta þess, að Lárus kom með ýmislegt, sem hann kynntist á þjálfaranámskeiði í Danmörku, sem við höfðum mikið gott af að kynnast, og mætti vera meira af slíku. Vona ég að strákarnir haldi saman og æfi vel í vetur og hætti ekki, þá ætti þetta að geta orðið gott næsta sumar. Garðar Kjartansson fyrirliði í 2. fl. knattsp. Undanfarin ár hef ég verið í hand- knattleiknum á veturna. Á s.l. vetri breytti ég til og tók reglulega þátt í knattspyrnuæfingunum inni. Ég varð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.