Valsblaðið - 24.12.1970, Blaðsíða 11

Valsblaðið - 24.12.1970, Blaðsíða 11
VALSBLAÐIÐ 9 Sumarstarfið. Sumarstarfið hjá deildinni hófst í M.fl. karla og kvenna, en í þessum flokk var varla um nokkurt sumarfrí að ræða, aðeins hálfs mánaðar frí. 2. flokkur kvenna byrjaði nokkru seinna. I M.fl. karla var mikið rætt um að koma á lyft- ingaæfingum, en vandamálið var að fá mann, sem kunni með slík tæki að fara. Kom þá upp úr kafinu, að Páll Eiríks- son læknir, sem þá nýlega hafði gengið í félagið, var vel að sér í lyftingaþjálf- un, frá þvi er hann var við nám í Bandaríkjunum. Farið var þess á leit við Pál að hann útbyggi lyftingaprógram fyrir M.fl. karla og varð hann fúslega við þeirri beiðni. Hafizt var strax handa við æfingarnar og var mikil þátt- taka í þessum æfingum bæði af meist- araflokksmönnum, svo og ungum mönn- um úr 2. og 3. flokki, Reynir stjórnaði æfingunum í samráði við Pál og Jón Kristjánsson, sem fylgdist mjög vel með framgangi þessa máls. Miklar vonir voru bundnar við þessar æfihgar, þar sem Valur er fyrsta félagið sem tekur lyft- ingar í æfingaprógram sitt í handknatt- leik. í um það bil einn mánuð voru eingöngu æfðar lyftingar, en um miðjan júni var svo bætt við einni boltaæfingu. Lyftingaæfingarnar voru þrisvar í viku og boltaæfingin sú fjórða í viku hjá M.fl. karla. I M.fl. kvenna hófust æfingar um svipað leyti og M.fl. karla. Bjarni Jóns- son tók að sér þjálfunina, þar sem Þór- arinn Eyþórsson var farinn til Danmerkur. Bjarni tók það fram að hann mundi ekki geta þjálfað hjá deild- inni næsta vetur. Bjarni hóf æfingarnar strax af fullum krafti og var mikill hug- ui' í stúlkunum. Stúlkurnar æfðu tvisvar í viku. 2. flokkur kvenna æfði tvisvai' í viku undir handleiðslu þeirra Stefáns Gunn- arssonar og Geirarðs Geirarðssonar. Telpur, byrjendur, æfðu einnig tvisv- ar í viku. Þjálfarar þeirra voru Sigur- jóna Sigurðardóttir og Soffia Guð- mundsdóttir. Æfingar voru fremur illa sóttai', en þess ber að gæta að margar stúlkur voru utanbæjar og gátu þar af leiðandi ekki mætt á æfingar í sumar. 3. Þjálfarar veturinn 1970—1971. Eins og svo oft áður fannst þeirri stjórn, sem nú lætur af störfum, ekki annað koma til greina, en vísir þjálfarar væru fyrir flokkana i vetur. Þjálfara- vandamálið verður æ meira og meira með hverju ári, og virðast peningar vera farnir að spila meiri rullu, en oft áður. T. d. greiðir deildin nú i vetur meiri þjálfaralaun fyrir 3 flokka nú, en aðeins einn i fyrra, og er þar mikil breyting á, og um helmings hækkun í þjálfaralaun- um hjá deildinni. Stefnt er nú meir og meir að þvi að tveir menn séu með hverjum flokki, þ. e. a. s. einn þjálfari og svo einn honum til aðstoðar og er það alrnenn skoðun að svo eigi að vera. Þetta hefur einnig þann kost í för með sér, að eldri félagar, sem ekki treysta sér til að þjálfa, koma frek- ar til starfa í deildinni og miðla þeim yngri af sinni reynslu og fer vel á því. Meistara- og 1. flokkur karla halda enn sínum gamla þjálfara, Reyni Ólafs- syni og sannar það enn betur hvað strákarnir meta hann, sem góðan þjálf- ara. Honum til aðstoðar er gamall leik- maður úr M.fl. Stefán Arnason. 2. flokkur karla fær nú hinn víðsiglda og gamalkunna þjálfara, Þórarinn Ey- þórsson, en Hákon Guðmundsson mun aðstoða hann við þjálfunina. 3. flokkur karla heldur þeim Stefáni Gunnarssyni og Geirarði Geirarðssyni áfram. 4. flokkur karla er eiginlega þjálf- aralaus ennþá, en ungur piltur úr 2. flokki karla, Kristján Þorvalds, hefur tekið þá að sér nú, en nauðsynlegt er að tveir menn séu með 4. flokk, þar sem um 30—40 drengir eru á æfingu í einu. 5. flokkur karla heldur sínum gamla þjálfara Þórði Sigurðssyni, en þar vant- ar einnig nauðsynlega aðstoðarmann, og spurningin er: Hver og hver vill? Meistara- og 1. floklcur kvenna. í þess- um flokki hafa orðið örari skiptingar á þjálfurum, en nokkru sinni fyrr. Bjarni Jónsson treysti sér ekki til að þjálfa þær áfram vegna anna við námið, og tók gamall leikmaðui' úr M.fl. karla og fyrr- verandi þjálfari hjá deildinni, Stefán Sandholt við af Bjarna. 2. flokkur kvenna fær einnig leik- mann úr M.fl. karla, Jón H. Karlsson. 3. flokkur kvenna heldur sínum gömlu þjálfurum frá því í fyrra, þeim Sigur- jónu Sigurðardóttur og Soffíu Guð- mundsdóttur. Það er eins og svo oft áður að miklar sviptingar verða í starfsliði okkar. Þetta er miður, og það hlýtur að vakna sú spurning, hvort deildin eigi ekki að auka sendingar manna á þjálfunarnámskeið erlendis. Þessar miklu sviptingar hljóta að hafa það í för með sér, að deildin er ávallt með ómenntaða þjálfara í störfum, sem miðla aðeins af sinni reynslu, sem leikmenn, en það er tvennt ólíkt að vera leikmaður eða leiðbeinandi, eins og menn vita. Þeir sem nú hverfa úr þjálfuninni eru Gunnsteinn Skúlason, Stefán Bergsson, Stefán Jóhannsson, Jakob Benediktsson, Guðmundur Frímannsson og Bjarni Jónsson. Deildin færir þessu fólki beztu þakkir fyrir það starf sem það hefur lagt henni til handa og vonar að hún megi einhverntíma seinna kalla á það til starfa á ný. Nýja þjálfara, Stefán Sandholt og Jón H. Karlsson, aðstoðarmenn Stefán Árnason og Hákon Guðmundsson bjóðum við velkomna til starfa og vonum að þeim megi auðnast mikil ánægja og gleði við hið framandi starf þjálfarans. 4. Mót og leikir. Á síðastliðnu ári voru eins og áður Reykjavikur- og íslandsmót innanhúss aðalmót ársins, svo íslandsmeistaramót utan húss. Einnig voru haldin aukamót, H. K. R. R. mót, afmælismót K. R. vegna 70 ára afmælis félagsins og firma- keppni H. S. í. vegna HM keppninnar i Frakklandi. 2. flokkur kvenna tók svo þátt í móti er F. H. hélt í Hafnarfirði í ágúst s.l. Valur sendi flokka i öll þessi mót, og verður nú rakinn árangur flokkanna í stuttu máli. Meistaraflokkur karla. I Reykjavíkurmótinu urðu þeir nr. 1, skoruðu 95 mörk gegn 66 og hlutu 10 stig. I Islandsmótinu innanhúss 1. deild urðu þeir nr. 4 eins og árið áður, skor- uðu 165 mörk gegn 158 og hlutu 9 stig. I Islandsmeistaramótinu utanhúss léku þeir í A riðli og urðu nr. 1 skoruðu 74 mörk gegn 42. í úrslitaleik mótsins gegn F. H. sigraði Valur með 16 mörkum gegn 10 og urðu þar með íslandsmeistarar. í aukamóti H. K. R. R. tapaði Valur fyrir Haukum með 11 mörkum gegn 7, og Reykjavíkurmeistarar í I. flokki Vals 1969. Aftari röð frá vinstri: Helga Ágústsdóttir, Elín Kristinsdóttir, Sigrún Ingólfsdóttir, Guðm. Frímannsson formaður Hkd. Vals, Kristjana Magnúsdóttir, Þórdís Kristjáns- dóttir, Guðrún Eiríksdóttir. Fremri röð frá vinstri: Soffía Guðmundsdóttir, Erla Ágústsdóttir, Ólöf Sigurðardóttir fyrirliði, Oddgerður Oddgeirsdóttir og Hildur Sig- urðardóttir. A myndina vantar Hrefnu Bjarnadóttur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.