Valsblaðið - 24.12.1970, Side 17
VALSBLAÐIÐ
15
Unglingarnir stóðu sig mun betur,
eins og áður og voru þátttakendur
frá Val margir í Unglingameistara-
móti Islands sem haldið var í K. R.
heimilinu.
Jón Gíslason komst í úrslit í ung-
lingaflokki í öllum greinum mótsins,
en tapaði öllum leikjunum.
Jóhann Möller komst í úrslit í
einhliða og tvíliðaleik, en tapaði báð-
um leikjunum.
En til að bæta upp hrakfarir pilt-
anna, þá komu tvær blómarósir úr
meyjaflokki, þær Gyða Úlfarsdóttir
og Ólöf Björnsdóttir og færðu félag-
inu meistaratitil í tvíliðaleik.
Stjórn deildarinnar lýsir ánægju
sinni yfir þátttöku eldri Valsmanna
í Badmintondeildinni, og sannar það,
að stofnun Badmintondeildar innan
Vals var tímabær.
Gaman er að sjá gömlu andlitin
aftur, ekki endilega við störf heldur
líka í leik, nöfn eins og Frímann
Helgason, Sigurð Ólafsson, Úlfar
Þórðarson, Andrés Bergmann og
marga fleiri mætti nefna.
Jafnframt saknar maður virkra fé-
laga úr eldlínu dagsins í dag. Ætla
mætti til dæmis að knattspyrnumenn-
irnir hefðu gott af að iðka badmin-
ton yfir vetrarmánuðina og spurning
er, hvort stjórn knattspyrnudeildar-
innar ætti ekki að hvetja þá til þátt-
töku.
Urðu nokkrar umræður um skýrsl-
una.
Fyrirspurn kom fram um það
hversvegna Valur gæti ekki fengið
tíma í öðrum íþróttahúsum, eins og
önnur félög, og var talið eðlilegt að
þetta væri athugað og málinu vísað
til aðalstjórnar Vals.
Fyrirspurn kom fram um erlend-
an þjálfara sem Badmintonsam-
bandið vinnur að nú, og er mikill
áhugi á því, og þá kemur Valur til
með að njóta þar góðs af.
Stjórnarkjör fór þannig, að Örn
Ingólfsson var kosinn formaður,
Gylfi Felixson varaformaður, Hilmar
Pietsch gjaldkeri, Ormar Skeggja-
son ritari, og meðstjórnandi Helgi
Benediktsson.
Fundarstjóri var Þórður Þorkels-
son.
Bannað að standa á tá
Árið 1862 gaf Enska knattspyrnu-
sambandið út fyrstu reglur sínar, og
má sjá þar m. a. þessi ákvæði:
2. grein: Það er aðeins leyfilegt
að nota hendurnar til að stöðva knött-
inn og leggja hann á völlinn fyrir
framan sig.
4. grein: Leikmaður má ekki
sparka í knöttinn, þegar hann svífur
í loftinu.
5. grein: Að standa á tá eða að
sparka með hælnum er bannað.
Skíðaskáli Vals á snjóa-
árunum, )>(‘fíar líf og fjör
iðaði þar í hverjum krók.
Úr skýrslu skíðadeildar
Stvfiín Haltgrínisson
vndnvhosinn forniaiiur.
Yonhrigffi innð skíðalgftu.
Skíðadeild Vals hélt aðalfund sinn
17. nóv. s.l. og flutti Stefán Hall-
grímsson skýrslu stjórnarinnar, og
sagði m. a.: „Þegar síðasti aðal-
fundur var haldinn var búið að skipu-
leggja skíðaferðir, en sama og ekk-
ert varð úr þeim, þar sem enginn
áhugi virtist vera fyrir því að nota
okkar ágæta skála. Má því segja að
við séum illa staddir fjárhagslega,
þar sem ekkert kemur inn fyrir
skálagjöld. — Ýmislegt liggur fyr-
ir að gera, í sambandi við skálann.
Vonum við að skálinn verði vel sótt-
ur í vetur.
Stjórnin fór fram á að fá skíða-
lyftu, samskonar og hin félögin í
samráði við K. K. í., sem sendi mann
til Sviss til þess að kynna sér hent-
ugar lyftur fyrir okkar aðstæður,
og eru þessar lyftur færanlegar,
þannig að ef ekki er snjór í þessari
brekku, þá má færa hana í þá næstu.
Við vorum bjartsýnir á að það
yrði til þess að lyfta undir almennan
áhuga á skíðaferðum í félagi okkar.
Var búið að fá lán hjá seðlabankan-
um fyrir þessum lyftum, og gengur
Reykjavíkurborg í ábyrgð. En svo
kom reiðarslagið, okkur var synjað
um þetta, sem enginn skilur og eng-
in skýring hefur fengizt á þessari
ráðstöfun forráðamanna íþróttamála
borgarinnar. Erum við mjög óánægð-
ir með þessi málalok.
Á síðasta aðalfundi, sem haldinn
var 1 marz s.l. voru þessir menn
kosnir í stjórn deildarinnar:
Stefán Hallgrímsson formaður,
aðrir í stjórn: Guðmundur Ingi-
mundarson, Þórður Guðmundsson,
Birgir Stefánsson og Gústaf Níels-
son. Til vara: Finnbogi Guðmunds-
son og Sigurbjörn Valdimarsson.
í Skíðaráð Reykjavíkur var valinn
Guðmundur Árnason og til vara
Stefán Hallgrímsson.
Fundurinn var heldur fámennur,
og fátt sem gerðist.
Fram kom áhugi á því að skíða-
deildin gerði eitthvað í sambandi við
60 ára afmæli félagsins á næsta ári,
og þá rætt um að koma á innan-
félags-afmælismóti. Var um það rætt
að byrja þegar að vekja athygli á
því, það mundi geta skapað áhuga á
skíðaferðum í skálann. Einnig var
mikið rætt um skíðalyftuna, og hún
talin lífsnauðsyn til þess að auka
skíðaferðir almennings og félags-
manna í skálann og þar með að
skapa honum starfsgrundvöll, og
gera skálann eins og hann áður var,
þegar alltaf var fullt hús.
Á fundinum kom það fram, að
það virtist vera meiri áhugi hjá
fólki almennt á því að nota skál-
ann en verið hefur undanfarið.
Þá var upplýst að búið er að und-
irbúa veturinn, t. d. að koma olíu til
upphitunar o. fl. á staðinn.
í stjórn Skíðadeildarinnar voru
kjörnir:
Stefán Hallgrímsson formaður,
Guðmundur Árnason varaform.
Birgir Stefánsson gjaldkeri,
Gústaf Nielsson ritari,
Þórður Guðmundsson meðstj.
Fundarstjóri var Þórður Þorkels-
son.
Körfuknattleiksdeild
stofnuð
K. F. il. saineinast Val.
1 byrjun október sl., eða nánar til
tekið 3. dag mánaðarins var haldinn
að Hlíðarenda á Félagsheimili Vals
stofnfundur fyrir Körfuknattleiks-
deild innan félagsins. Þetta var ekki
venjulegur stofnfundur, þar sem
nokkrir ungir áhugamenn fullir
bjartsýni vildu reyna þessa grein í
félaginu, hér var um að ræða heilt
körfuknattleiksfélag með öllum sín-
um flokkum, sem nú var að gerast
deild í Val.