Valsblaðið - 24.12.1970, Blaðsíða 25

Valsblaðið - 24.12.1970, Blaðsíða 25
VALSBLAÐIÐ 23 ótuktarlega í næsta áhorfanda, og fékk þá miður hlýtt augnatillit. Mér þótti það miður að verða til þess að meiða fólk á áhorfendapöllunum og hætti að koma þar. Ef ég renni huganum til þess tíma sem ég lék með Val og dreg fram þá, sem mér eru minnisstæðastir af Vals- mönnum, sem ég lék með, þá má nefna: Stefán Ólafsson, ágætur mark- maður. Árni B. Björnsson, Hallur Þor- leifsson, Magnús Guðbrandsson, Guð- mundur Guðjónsson, Loftur Guð- mundsson, var hann snillingur í með- ferð á knettinum og vöktu tiltæki hans oft mikla kátínu, þegar hann var að leika á menn. Ég var aldrei neitt hjátrúarfullur fyrir leiki, og hafði yfirleitt engin hugboð um þá. Hins vegar kom fátt fyrir, sem ég ekki vissi fyrirfram, og lá það í því hve berdreyminn ég var. Getur þú sagt okkur nokkra slíka drauma Filippus, þó þeir séu ekki beinlínis minningar frá Val eða íþrótt- um? Ég vann að því á sínum tíma að byggja svokallaða grútarstöð á Köll- unarkletti, og var henni að kalla lokið þegar þetta gerðist. Það var byrjað að bræða, og næsta morgun ætluðum við að fara þangað og ganga frá ýmsu. Um morguninn segir faðir minn, að nú sé tími kominn til að fara inneftir og ljúka þessu sem eftir var. Þá segi ég við hann: Við þurfum ekki að fara inneftir, því þetta brann í nótt. Mig dreymdi þá að ég fór þangað, og þegar ég kem þar að er húsið í björtu báli, og þetta hafði gerzt, við komum að því sem brunarúst. Árið 1928 ætluðu tveir Bandaríkja- menn að fljúga hingað heim, og ætl- uðu þeir að koma hingað á sunnudags- morgni. Jón Fjeldsted og ég ætluðum að taka á móti þeim. Hafði Jón orð á því að við þyrftum að vera komnir á flugvöllinn kl. 7—8 um morguninn. Þegar ég hitti svo Jón um morguninn segi ég við hann að við þurfum ekkert að fara til að taka á móti þessum mönnum, þeir lentu á Grænlandsjökli í nótt. Þá dreymdi mig að ég gekk til þeirra þar sem þeir voru á jöklinum, og taka þeir þá upp vínpela, og bjóða mér að bragða á. Þeir voru ekkert meiddir, og hinir glöðustu. Þetta stóð heima, þeir nauðlentu á jöklinum, en ekkert varð að þeim, og þeir björguð- ust. Þegar ég og nokkrir aðrir meistarar buðum í byggingu Landsspítalans á sínum tíma, gerðum við að sjálfsögðu útreikninga um byggingarkostnað, og höfðum við lokið þessu daginn áður en tilboðið átti að sendast. Um nóttina áður en tilboðið skyldi sent, dreymir mig að ég er kominn inn í mjög stóra lækningastofu, og eru þar inni margir læknar, húsateiknarar og margir aðr- ir, og eru þar með teikningar af spít- alanum, og eru að gera áætlanir um kostnað. Að því loknu segja þeir: 196 þúsund er hóflegt tilboð. Okkar tilboð hljóðaði upp á 10 þús- und kr. meira, en með tilliti til þessa draums míns var slegið af tilboðinu og það haft 196 þúsund, og við feng- um verkið. í annað skipti hafði ég boðið í hús- byggingu, og ákveðið upphæðina. Rétt áður en ég sendi tilboðið dreymir mig að til mín kemur maður, sem ég bar engin kennsl á, og segir hann við mig: Lækkaðu tilboðið um 500 kr., þá færðu það, og það stóð. Föðurbróðir minn hafði eitt sinn lánað mér ,,spíss“-hamar, og mörgum árum síðar spurði hann mig hvort hann hefði ekki lánað mér ,,spíss“- hamar. Ég sagðist ekkert muna það, ég hefði ekki handleikið slíkt verkfæri í mörg ái’, svaraði ég. Jú, ég lánaði þér hamarinn, sagði föðurbróðir minn og sat hinn fastasti við sinn keip, ég þarf að nota hann nú bráðlega. Um nóttina dreymir mig það að ég er á leiðinni að sækja ,,spíss“-hamarinn, og fer suður Bergstaðastíg til manns, sem hét Kristján Teitsson, og segi við hann, heyrðu Kristján, á ég ekki alltaf hjá þér „spíss“-hamar? „Spíss“-hamar, — það hefur ekki komið hingað ,,spíss“- hamar í fleiri ár, segir Kristján. Það er skrýtið, hann er nú samt alltaf hérna hjá þér, og sannaðu til að hann er þarna í ruslinu í horninu. Þegar ég svo vakna um morguninn fer ég beina leið á Bergstaðastíginn til Kristjáns og leita í ruslinu í horn- inu, og þar var hann. — Þetta er örlítið sýnishorn af öll- um þeim draumum, sem Filippus hafði frá að segja, og gekk sem rauður þráður í gegnum líf hans, allt frá unga aldri. Nú varst þú einn af þeim, sem ýtti þessu „fyrirtæki" af stað, sem þú gafst nafnið „Valur“, og það var nú ekki svo lítið í fang færzt, en ert þú sáttur við þá sem við tóku, og hafa haldið því gangandi fram á þennan dag? — Ég er mjög ánægður með það. Þeir hafa sýnt framúrskarandi dugn- að og gert mikið meira en hægt var að ætlast til. Þeir hafa komið upp leik- völlum, félagsheimili, íþróttahúsi, og reynt á margan hátt að byggja fyrir framtíðina. Ég vildi svo að lokum óska Val allr- ar blessunar í framtíðinni, og að fé- lagsstarfið megi stöðugt sækja fram á við. Ég bið guð að blessa félagið og halda sinni verndarhendi yfir því. — Bergur Gnðnason nieð „fangið fullt". Bergur Guðnason hefur leikið 200 leíki með m.fl. í handknattleik Bergur Guðnason, „the grand old man“ í meistaraliði Vals í hand- knattleik, lék 200. leik sinn í októ- ber síðastliðnum í leik við KR. Er þetta vel af sér vikið, og í annála færandi. Kunnugir segja, að Bergur sé í stöðugri framför, og hafi aldrei verið harðari í horn að taka en um þessar mundir. Getur verið að járn- „klifjarnar" hans Páls og hans Reyn- is hafi hert Berg verulega, og var þó nokkuð fyrir. En Bergur hefur komið víðar við sögu í Val. Hann hefur leikið í Meist- araflokki í knattspyrnu um 30 leiki, og í þeim leikjum hefur hann skorað um 20 mörk. Geri aðrir betur! I tilefni af þessu afreki, var Bergi færður veglegur blómvöndur og þakkir við hátíðlega athöfn og fór vel á því. Hér er honum óskað til hamingju með þennan árangur, og því spáð að langt verði þangað til hann hefur sagt sitt síðasta orð í handknattleiknum. F. H. Flest mörk sem skoruð liafa verið í knattspyrnu- landsleik, var í leik milli Ástralíu og Englands 1951. Þar vann England með 17:0. Við Valsmenn árnum Filippusi allra heilla, þótt síðbúin kveðja sé, með 75 ára afmælið, og vonum að eiga eftir að sjá hann oft meðal okkar á gleði- og hátíðastundum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.