Valsblaðið - 24.12.1970, Síða 37
VALSBLAÐIÐ
35
sparkar Þróttarinn, en markmaður
okkar hálfver, og boltinn hrekkur til
Þróttarans aftur, þá hlaupum við til
og ætlum að verja og truflum hann
og skaut hann yfir. Dómaranum lík-
aði þetta víst ekki, það var á móti
lögunum, og lét endurtaka spyrn-
una og þá jafna þeir 2:2. Það var
eins og þetta hefði hleypt krafti í
okkur því síðari hálfleikinn unnum
við með fjórum mörkum, en Þrótti
tókst ekki að skora neitt, og endaði
því leikurinn með sigri okkar 6:2, og
unnum við þar með mótið.
Mér finnst gaman að æfa í Val, en
mér finnst að það ætti að hafa fleiri
fundi með strákunum en gert er og
tala þar um knattspyrnu og sýna
knattspyrnukvikmyndir, þær eru svo
skemmtilegar.
Ég var ekki ánægður með það að
sumir strákanna komu aðeins á æf-
ingar rétt fyrir leikina, en það finnst
mér ekki gott hjá þeim. Ég vona því
að strákarnir æfi betur næsta ár.
Róbert er ágætur þjálfari, strang-
ur ef því er að skipta.
Gunnar
Friðgeirsson,
fyrirliði
4. fl. A.
Líklega hef ég verið 10 ára, þegar
ég byrjaði að leika mér hjá Val, en
í Val fór ég vegna þess að ég átti
heima í Hlíðunum, og stutt að fara
á æfingar.
Ég man vel eftir fyrsta leiknum,
sem ég lék með Val, ég var svo ákaf-
lega taugaóstyrkur, eiginlega í
„rusli“ eins og það er kallað. Var
þetta í leik við KR, og mig minnir að
það hafi orðið jafntefli, og lék ég
þá með 5. C. Næsta vor fer ég svo í
B-sveitina. Gekk okkur ekki vel það
sumarið, komumst þó í úrslit í
Haustmótinu, að mig minnir, og töp-
uðum þar með miklum mun, eða 5:0.
Næsta ár er ég einnig í 4. B. Þar
komumst við í úrslit í Miðsumars-
móti, og varð jafntefli milli Vals og
KR 2:2, en KR vann síðari leikinn
2:1. Leikurinn var harður, liðin ákaf-
lega jöfn og áttum við alveg eins að
sigra, en þeir höfðu heppnina með
sér, en ekki við.
Við fórum skemmtilega ferð til
Vestmannaeyja, og vorum nærri bún-
ir að sigra þar, en leikurinn endaði
1:1. Þeir voru sterklega byggðir og
harðir. Mér fannst við leika betri
knattspyrnu í þessum leik, en það
dugði ekki á móti kröftum heima-
manna.
Við unnum eitt mót, Reykjavíkur-
mótið. Annars vantaði oft herzlu-
muninn, við náðum ekki nógu góð-
um samleik. í leik við KR vildi það
til í miklu roki að einu sinni þegar
tekið var horn að boltinn fauk inn
í markið!
Ég er ekki nógu ánægður með fé-
lagslífið, mér finnst að það mætti
halda fleiri fundi, sýna kvikmyndir
og spjalla við okkur um knattspyrnu.
Mér finnst líka að það ætti að vera
fastur liður hjá fjórða flokki að far-
ið sé á Laugarvatn og dvalizt þar
nokkra daga, eða lengur en síðast,
það var skemmtilegt.
Þjálfarinn var góður og hafði
góð áhrif á okkur, en hann mætti
vera svolítið harðari við strákana.
Við stóðum okkur illa í Haust-
mótinu, margir strákanna fóru í
sveit, og vorum við því oft í manna-
hraki, og við það bættist að þeir sem
gátu æfðu ekki nógu vel, þetta eru
þó allt efnilegir strákar, ef þeir æfa
vel.
Ég geng upp núna en er ákveðinn
í að halda áfram, annars er heldur
dræm aðsókn að inniæfingunum,
handboltinn dregur strákana meira
að sér.
Birgir
Gunnarsson
fyrirliSi
4. fi. B.
Ég hef líklega verið 11 ára, þegar
ég gekk í Val, en þegar ég var enn
yngri hélt ég með KR. Pabbi minn
var í KR, þegar hann var ungur, og
æfði sund. Hann var ekkert ákafur
í það að ég færi í KR, svo átti ég líka
heima á Lokastígnum, en það voru
margir Valsstrákar þar í kring.
Ég byrjaði að keppa í C-liðinu, og
seinna um sumarið var ég látinn leika
með B-liðinu, og tvo leiki átti ég með
A-liðinu þetta sama ár.
Fyrsti leikurinn sem ég lék var
við Fram og unnum við 5:0. Þá var
ég vinstri útherji. Næsta ár lék ég
svo í 5. fl. A. Ég man eftir skemmti-
legum leik þetta sumar móti KR.
Það var langt liðið á leikinn eða að-
eins 10 mínútur til leiksloka, og KR-
ingar höfðu skorað 1 mark en við
ekkert. Leikurinn var jafn og
skemmtilegur, en við vorum víst
orðnir vondaufir með að jafna, hvað
þá að sigra. En þá er það að mér
tekst að skora og jafna. Við urðum
voða kátir við þetta og hertum okk-
ur, og litlu síðar skorum við annað
mark — og sigruðum, og þá vorum
við ánægðir. Það var skrítið, að bolt-
inn fór í bæði skiptin á sama stað í
markið.
1 sumar hefur þetta gengið vel
fyrir okkur, við höfum unnið 2 mót,
og vorum í úrslitum við Víking í
Haustmótinu.
Mér fannst félagslífið í fjórða
flokki ekki nógu gott, það hefði átt
að halda fleiri fundi, og þá held ég
að það hefði lagazt. Mér fannst líka
að það væri ekki mætt nógu vel á æf-
ingar. Ég vil því skora á strákana að
halda betur saman, og mæta betur á
æfingar í vetur og næsta sumar, þá
held ég að árangur yrði enn betri en
hann var í sumar.
Helgi er góður þjálfari, og fellur
mér vel við hann, en hann mætti
vera svolítið harðari við okkur en
hann er.
Birgir kemur víðar við en í knatt-
spyrnunni því á s.l. keppnistímabili
hefur hann verið fyrirliði í 4. flokki
í handknattleik, og um það segir
hann m. a.:
Á s.l. vetri byrjaði ég að leika
handknattleik og þótti strax gaman
að því og byrjaði þá strax að keppa.
Fyrsti leikurinn, sem ég lék í hand-
bolta, var móti Fram í íslandsmót-
inu í fyrra, og var jafnt 4:4. Vorum
við ánægðir með það, því þeir höfðu
verið í öðru sæti í Reykjavíkurmót-
inu. Þetta var jafn leikur, ég held,
að við höfum skorað fyrsta markið,
svo jöfnuðu þeir, og gekk þetta
svona áfram þar til leik lauk. Þá
lék ég í horninu, en nú er ég mið-
herji.
Einna minnistæðastur er mér leik-
ur við Víking í fyrra. Við vorum
búnir að skora 6 mörk en þeir að-
eins tvö, og 3—4 mínútur eftir af
leiknum, en það fór svo að það varð
jafntefli 6:6. Við vorum orðnir of
vissir með að vinna, gleymdum að
koma á móti þeim þegar þeir ógn-
uðu. Við fórum að skjóta af von-
lausu færi, og glopruðum þá boltan-
um, þegar við sáum að hverju
stefndi. Persónulega er mér minni-
stæður leikurinn við Ármann i síð-
asta leik íslandsmótsins að mig
minnir, því þá var ég látinn taka
vítakast, en ég skaut framhjá! Við
töpuðum 6:3, en Ármann varð ís-
landsmeistari.
Þjálfarar hjá okkur í 4. flokki voru
þeir Stefán Jóhannsson og Jakob
Benediktsson, og féll okkur vel við
þá.
Ekki var mikið um fundi hjá okk-
ur en þó voru fjórir töflufundir eft-
ir æfingar, og fannst mér að við
lærðum mikið á þeim. Strákarnir
mæta yfirleitt vel á æfingar, og mér
finnst samstarfið og samhugurinn
góður í liðinu.
Annars finnst mér æfingarnar of