Valsblaðið - 24.12.1970, Qupperneq 41
VALSBLAÐIÐ
39
að láta knöttinn líða rétt yfir mark-
manninn og inn í markið. Þetta var
dásamlegt, og að sjálfsögðu förum
við okkur ekki að neinu óðslega. Svo
hefst leikurinn á ný og nú hamast
allir í báðum liðum. Það er leikið
„maður á mann“ og mikil læti bæði á
velli og utan vallar, og stendur þetta
þar til blístra dómarans kvað við,
leik var lokið. Við stóðum við það,
sem við lofuðum, að sigra og sýna
hvaða lið væri bezt!
Mér finnst gaman að vera bæði í
handknattleik og knattspyrnu, mér
falla boltaleikir vel yfirleitt. Þó
finnst mér að knattspyrnan eigi mest
í mér. Ég er þó ekki búinn að gera
það upp við mig hvar ég hafna, þeg-
ar ég verð að velja á milli greinanna.
Mér finnst félagslífið mjög batn-
andi, menn eru að skilja, að það er
nauðsynlegt að koma meira saman,
efna til fleiri kaffifunda, og ég styð
það fullkomlega.
Mér finnst, að það ætti að gera
meira að því að efna til ferða út um
landið með flokkinn og keppa þar
við heimamenn, það þjappar strákun-
um meira saman.
Þá vil ég segja frá því, að mér
fannst dvölin á Laugarvatni ákaf-
lega skemmtileg, og mætti vera
lengri, en þetta voru aðeins tveir dag-
ar.
Ég vil svo að lokum óska Val alls
hins bezta á komandi tímum og þá
ekki sízt á afmælisárinu, sem nú fer
í hönd.
Hörður
Hilmarsson,
fyrirliði í 2. fl.
karla, handkn.l.
Ég er nú mjög bjartsýnn með
framtíðina, við höfum leikið núna í
haust 3 leiki og unnið alla, og í gær-
kveldi unnum við leik, sem var fyrir-
fram talið ómögulegt að vinna.
Það er mikið af efnilegum strák-
um, sem æfa vel. Nú er svo komið,
að menn eru farnir að gera upp við
sig, hvort þeir eigi að leika með í
handknattleiknum eða knattspyrn-
unni, svo nú er þetta að jafnast. Við
höfum fengið úrvalsþjálfara, sem er
Bjarni Jónsson, nú hef ég trú á liðinu
og Bjarna, aldrei haft eins mikla trú
á því og nú.
Ég var ekki ánægður með liðið í
fyrra, það byrjaði illa og félagsand-
inn var ekki nógu góður. Strákarnir
Noregsmeistarar Bru-
munddalen I. L. í 2. fl.
Fremri röð frá vinstri:
Steinar Hestveen, Odd-
var Dalby, Harald
Berg, Fred Koar Han-
sen, Tor Erik Jonsdal.
Aftari röð frá vinstri:
Knut Skar, Björn Olav
Kristiansen, Knut
Simensen, Björn Vidar
Jonsdal, Siffurd
Brandanger og Age
Amundsen.
Noregsmeistarar í öörum
flokki i knattspyrnu
heimsœkja Val í sumar
Þessa dagana standa yfir samningar
milli Vals og norska félagsins Brumund-
dal IL. að það sendi annan flokk sinn í
heimsókn til Vals á komandi sumri, og
er svo ætlunin að annar flokkur Vals
fari í heimsókn til Brumunddalen árið
1972. Þessi félög hafa áður unnið sam-
an, og þá fyrir milligöngu okkar gamla
og kæra Reidars Sörensen, sem þá var
þjálfari liðsins og kom með því hingað,
er það var hér 1956, en árið eftir fór
svo annar flokkur Vals í heimsókn til
þeirra og mun sú ferð öllum þeim er í
henni tóku þátt ógleymanleg.
Nú hefur Reidar enn haft forgöngu
um samskipti félaga þessara, þó hann
sé nú hættur þjálfun þar og er ekki
annað vitað, þegar þetta er skrifað, en að
af þessu verði.
Þetta lið frá hinum litla bæ Brumund-
dalen sem er í Hedmarken 130 km norð-
austur af Oslo, er ekki af lakara taginu,
því það vann sér það til ágætis að verða
Noregsmeistarar í knattspyrnu nú í
voru ekkert saman utan vallarins.
Fundir voru allt of fáir eða aðeins
einn og það í lokin.
Ég held að það væri skemmtilegt
og líklegt til árangurs, að flokkurinn
færi keppnisferðir út á landið og
keppti þar við heimamenn, og legg eg
til og vona, að unnið verði að því á
þessu nýbyrjaða keppnistímabili.
Eins og ég sagði, var andinn held-
ur lélegur og enginn baráttuvilji í
liðinu. Það var því oftast þannig, að
ýmist vorum við búnir að vinna fyrir-
fram eða þá öruggir með að tapa. Nú
er þessi hugsunarháttur gjörbreytt-
ur, eins og leikirnir undanfarið hafa
sýnt, sem sagt að það ómögulega er
mögulegt.
Ég var líka í öðrum flokki í knatt-
spyrnunni í sumar og finnst mér, að
þar hafi svolítið hliðstætt gerzt.
haust, sigraði Víking með 2:1 eftir fram-
lengdan leik. Til þess að ná til úrslitanna
urðu þeir að leika 6 leiki og var marka-
talan 26 gegn 1.
Liðið fékk mjög góða dóma í blöðum,
og í bréfi sem, Sörensen hefur sent
hingað lætur hann þau orð falla að
þetta lið leiki alveg sérstaklega góða
knattspyrnu, og við sem þekkjum hann,
vitum að hann er kröfuharður og gagn-
rýninn á allt það er að knattspyrnu lýt-
ur, svo þessi orð lians segja okkur meira
en blaðaummæli og sögusagnir.
Það er því ekkert smáverkefni, sem
annar flokkur Vals á fyrir hendi að
taka mannlega á móti þessum norsku
meisturum, bæði utan vallar sem innan.
Hann segir ennfremur, að þessir ungu
norsku piltar reyki yfirleitt ekki, og að
samheldni þeirra og öll framkoma sé al-
veg óvenjuleg. — F. H.
VX.I VALSMEMN!
Vriu) )iid kiirleÍNÍr hvrr vi<) aim-
aii á æfingum. í ka]i|ileikjum og
livar srni ]iii) koinii) frani? Forilizf
|ii<) hlótsyrdi eða Ij ót t ordlirag<) ■
saniski|ituni vid adra? Ef svo rr,
þá crui) þii) g'ódir fulltrúar Vals.
í byrjun var annar flokkur Vals
talinn beztur hér í borg, en það fór
þó svo, að A-lið flokksins vann ekk-
ert einasta mót. Liðið var meira 11
einstaklingar, sem ekki náðu saman
í leik nema á Akranesi og á Selfossi.
Mér finnst, að eldri leikmenn ættu
að gera meira að því að taka að sér
þjálfun yngri flokkanna, þegar þeir
hætta keppni í meistaraflokki. Það
eru of fáir, sem taka að sér að þjálfa
og leiðbeina. Þeir ættu að bæta við
reynslu sína og taka þátt í nám-
skeiðum erlendis, og miðla því svo til
æskumanna félagsins.
Ég vil svo að lokum hvetja til þess
að félagslífið sé eflt á alla lund með
skemmtikvöldum, kaffikvöldum, og
ferðalögum. Við höfum aðstöðu til
æfinga og félagslífs, og ég tel nauð-
synlegt að nýta það til hins ýtrasta.