Valsblaðið - 24.12.1970, Síða 56

Valsblaðið - 24.12.1970, Síða 56
54 VALSBLAÐIÐ p . • pllg m§... f :'í-: ÉÉf •. •*-nÉI VALL'Ii sigrar í firma- koppni.— Frá v.: Criinn- steinn Skúlason, Jón B. Ólafsson, Stefán Gunn- arsson, Finnbogi Kristj- ánsson, Ájpist Ögmunds- son, Hermann Gunnars- son, Jón Karlsson, Berg;- ur Guðnason, Bjarni Jónsson. Jakob Bene- diktsson og Ólafur Jóns- son. sambandi við lyftingarnar í framtíð- inni? — Við Páll höfum rætt þessi mál og erum sammála um það, að betra sé að hafa þyngdirnar léttari en lyfta oftar, og á hraða þar sem tími er tekinn. Það þýðir að það verður maður að standa við mann og taka tímann og skrá hann, þetta krefst samvinnu milli manna, þar sem þjálfarinn kemst ekki yfir þetta einn. Ég er sannfærður um að við finn- um réttu leiðina í þessu, eða þá sem bezt hentar. Og ég vil endurtaka, að ég er mjög ánægður með framlag Páls til lyfting- anna. — Hafið þið hugsað að fella lyftingar inn í vetraræfingarnar í vetur? — Ég held að það sé Ijóst, að þetta verður að halda áfram með öðrum æf- ingum, hvort sem það eru boltaæfingar, þrekæfingar eða aðrar æfingar, til þess að piltarnir fái sem allra bezta þjálfun. — Á hvaða sviði álítur þú að þessar æfingar komi að mestu gagni í þjálf- uninni? Hvað handknattleikinn varðar, kemur þetta að mestu gagni í sambandi við varnarleikinn. Það á að vera erfiðara að komast í gegnum vörn, sem er skipuð svo líkamlega sterkum mönnum sem Valsmennirnir eru, og það segir sína sögu að Vaisliðið fær mun færri mörk á sig en önnur lið. — Mundir þú telja heppilegt og hyggi- legt að keppnisdeildir Vals sameinuðust í þessum lyftingum? Ég er þeirrar skoðunar, að ef þeir ná samstöðu um það að vinna að þeim mál- um, muni þeir ekki sjá eftir því. Það er sama hvaða íþrótt er, það er alger undirstaða undir getu hvers og eins. Við fórum á æfingu til handknatt- leiksmanna og náðum tali af nokkrum þeirra og báðum þá að segja álit sitt á lyftingum sem þætti í þrekþjálfun undir keppnistímabil, og árangur af þessari fyrstu tilraun, á þá persónu- lega og liðið í heild: ÍAÚUntenn segja frá áliti sínn á Igftinguin Stefán Gunnarsson: Ég álít, að það sé mjög áríðandi að vera með þessar æfingar yfir sumartím- ann og halda þessu við yfir veturinn meðan keppnistímabilið stendur. Ég legg eindregið til að þessu verði haldið áfram í framtíðinni. Við sáum bezt árangurinn af þessu í íslandsmótinu utanhúss, eftir þessa aðeins tvo mánuði, hvernig við stóðum okkur þá. Við vorum miklu lík- amssterkari en hin liðin og höfðu þau orð á því við okkur. Ég vil nú ekki full- yrða að það hafi verið þessum æfing- um að þakka að við unnum mótið, en það hafði mikið að segja. Ýmsar ástæður voru vafalaust til þess, að við iögðum þessar æfingar niður, menn fóru í sum- arleyfi, nú og svo hefur mönnum ef til vill fundizt þeir vera orðnir svo góðir, og þeir þyrftu þess ekki með. En maður fann það á sjálfum sér, að það þarf að halda lyftingunum við, annars glatast það, sem áður hefur á unnizt. Gunnsteinn Skúlason: Ég tel, að þessar æfingar séu mjög gagnlegar og mjög góður undirbúning- ur undir keppnistímabilið, þær efla og styrkja vöðvana. Úthaldsæfingarnar þurfa að vera líka, því þær eru mjög þýðingarmiklar. Hinsvegar álít ég að lyftingar eigi ekki að nota eftir að keppnistímabilið er hafið. Hlaupum, og ieikfimisæfingum vil ég- halda áfram, þó að keppnistímabilið standi yfir. Ég held því fram að sigurinn í Is- landsmótinu í sumar sé tvímælalaust þessum æfingum að þakka. Ég held að við höfum aldrei verið eins líkam- lega sterkir og þá. Ég álít að næsta sumar ættum við að halda þessu áfram, eins og gert var á s.l. sumri. Ágúst Ögmundsson: Ég fullyrði, að lyftingarnar höfðu mjög góð áhrif á mig persónulega, og minn líkama, því ég hef aldrei verið mikið „vöðvabunt“. Það er nauðsynlegt að hafa kraft í það að berjast heilan leik, án þess að gefa að ráði eftir. Ég held, að svona æfingar ættu að vera mjög stífar áður en keppnistíma- bilið hefst, og svo að draga heldur úr því, en þó að það haldi manni við. í íslandsmótinu úti held ég að þetta hafi haft sín áhrif, og að þau hafi verið meira sálræn, við héldum að við værum sterkir, þó að við værum það ekki. Við höfðum það á tilfinningunni, að lyfting- arnar hefðu gert okkur svona sterka, og börðumst því alls ófeimnir. Ég er því þeirrar skoðunar að þessu eigi að halda áfram og þá sérstaklega í undirbún- ingnum undir keppnistimabilið. Geirarður Geirarðsson: Ég held, að þessar æfingar hafi gefið mönnum meira traust. þeir halda að þeir séu miklu sterkari en þeir ef til vill eru. Ég sá mikla breytingu á mönnum, og sjálfur fann ég, ef ég sleppti æfing- um, þá kom það fram að maður átti erfitt með sömu æfingu sem maður lék sér að áður. Á veturna finnst mér, að það sé ekki tími til lyftinga, það verði að vera meira bolti. Mér finnst það væri athugandi að gera meira að því að hlaupa úti, og meira þrekæfingar með bolta og þá um leið að samræma þrek og boltatækni. Ég álít, að skilyrðislaust verði að taka þessar æfingar upp næsta sumar til und- irbúnings keppnistímabilsins næsta vet- ur. Bjarni Jónsson: Ég vil halda því fram, að lyftingar séu undirstaðan fyrir allar íþróttir, við sjáum það bezt á okkar liði, að ég tel að íslandsmeistaratitillinn í sumar hafi unnizt á lyftingunum. Við þurfum að koma þessu inn í allar okkar íþróttir-

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.