Valsblaðið - 24.12.1970, Side 67
VALSBLAÐIÐ
65
með tárin í augunum fyrir glæsilega
unninn sigur.
En meðan þessu fór fram, tók Matti
spjótið í síðasta sinn í blóðuga hönd
sér. Hann sveið í sárið, umbúðirnar
voru alblóðugar, sólarhitinn var lam-
andi, Matta leið bölvanlega. Hann tók
sér stöðu á enda atrennubrautarinn-
ar, spretti síðan hraðar úr spori en
nokkru sinni áður, stakk við á fullri
ferð og kastaði spjótinu af öllu því
afli og fjaðurmagni, sem hann bjó
yfir. Hann gerði það vegna Finnlands.
Spjótið flaug hátt til lofts, hærra og
lengra en það hafði nokkru sinni áður
gert í þessari keppni. Og með þessu
kasti, sem mældist 68,25 metrar, bar
Matti óvæntan, en verðskuldaðan sig-
ur úr býtum, þrátt fyrir meiðsli og
lamandi hita.
Þetta var stórkostleg keppni og
lýsir vel ágætu keppnisskapi Matta
Járvinens. En við skulum nú heyra
hvað Matti hefur sjálfur að segja al-
mennt um keppni í íþróttum:
„Keppni hefur ávallt verið lífs-
reynsla i mínum augum, þar hef ég
fundið bezt æðaslátt lífsins. Það er
ekki eðlilegt, ef íþróttamenn skortir
sigurviljann, en jafn óeðlilegt er að
taka þátt í keppni með sigurinn einan
í huga. Ég álít að þráin eftir sigri sé
samt mikilvæg; að reyna að gera sitt
bezta og undirbúa sig rétt og sam-
vizkusamlega. íþróttirnar hafa bæði
veitt mér heiður og sæmd, langt um-
fram það, sem ég hef átt skilið.
íþróttamaður, sem iðkar íþróttir með
frægðina eina í huga er alls ekki
sannur íþróttamaður.--------
Fyrsta heimsmet sitt setti Matti
Járvinen 1930, hann kastaði þá 72,38
metra og alls bætti hann heimsmetið
tíu sinnum. Bezti árangur hans í spjót-
kasti var 77,23 metrar. Matti varð
Olympíumeistari í spjótkasti á Olymp-
íuleikunum i Los Angeles 1932 og
kastaði þá 72,71 metra og Evrópu-
meistari 1934 og 1938 og kastaði 76,66
metra og 76,87 metra. Hann varð
finnskur meistari í sex ár í röð 1929
til 1935. Nikkanen vann síðan fimm
sinnum í röð, en Matti kom aftur og
vann 1940 og 1942. Hann sigraði 16
sinnum í landskeppni fyrir Finnland
eða oftar en nokkur Finni.
Finnar hafa alla tíð átt frábæra
spjótkastara og í dag á Finninn Jorma
Kinnunen heimsmetið i þessari grein,
hann kastaði 92,70 metra í fyrra,
vissulega mun betri árangur en Matti
náði, en margt hefur breytzt í 35 ár,
bæði tækni, þjálfun og kastáhöldin.
Hvað sem um einstök afrek verður
sagt, var Matti Járvinen einstæður
íþróttamaður og einvaldur í sinni í-
þrótt, eins og landi hans Paavo Nurmi
var á sínum tíma.
Matti Járvinen dró sig ekki í hlé
frá íþróttastarfi, þegar hann hætti
keppni. Hann starfar mikið að félags-
málum enn þann dag í dag. Hann nýt-
ur þess að starfa með ungu fólki.
Ungt fólk kann einnig vel að meta
nærveru þessa frábæra afreksmanns,
og prófessor Lauri Pihkala, hinn
kunni finnski íþróttasérfræðingur
segir um Matta Járvinen, að hann sé
manneskja í þess orðs bezta skiln-
ingi og góður þjóðfélagsþegn.