Valsblaðið - 24.12.1970, Blaðsíða 69

Valsblaðið - 24.12.1970, Blaðsíða 69
VALSBLAÐIÐ 67 Frímann ticlgason: Þess skal getið, sem gert er Valsntcnn hcítíu gciað unnt ttirgi ttjörnssgni að hantlf jatla nicistarabihurinn í útihanilhnattlcih í fiinintúnila shiptið, unilir öðruin hringuinsticðiiin Það er alkunn saga, að þátttaka í íþróttum, og þeirri keppni, sem þar fer fram í hinum ýmsu greinum, býð- ur upp á gleði og sorgir. Ungi mað- urinn, sem gengur til keppninnar sig- urreifur og fullur af áhuga getur átt það á hættu að vonir hans bregðist. Skrefin út af leikvanginum eftir við- ureignina geta orðið hin þungu spor þess sigraða. Hinn góði íþróttamað- ur getur þó alltaf huggað sig við það, að hann hefur alltaf gert sitt bezta, bæði á æfingum og í keppn- inni. Reynsla liðins tíma hefur sann- að að í flestöllum tilvikum komi að því að sá maður eða hópur manna, sem myndar keppnislið, og alltaf gera sitt bezta, hljóti sigurlaunin fyrr eða síðar, og njóti þeirrar ánægju, sem sigurinn veitir, ein- staklingum og félögum. Sigurinn verður undantekningarlítið fyrir at- beina þeirra, sem gera sitt bezta, bæði innan keppnissvæðisins og utan þess. Þessi atvik eru alltaf að ske í hverjum leik, hverju móti þar sem tveir eða fleiri eigast við. Eitt af þessum óumflýjanlegu at- vikum, þar sem einn tapar en annar vinnur, átti sér stað á íþróttahátíð- inni í Laugardal í sumar á íslands- mótinu í handknattleik úti. Ekki er að efa að Valsmenn hafa glaðzt óvenjulega yfir þessum sigri, að hafa hafa farið beint inn í A-landsliðið eftir að hafa keppt með u-landslið- inu í NM og ekki farið út úr lands- liðinu aftur, má þar nefna Björgvin Björgvinsson sem dæmi. Nú, ég veit fyrir mig, að ég fór beint inn í mfl. Vals, þegar ég kom heim, en hafði verið svona við að komast í hann áður og mér fannst ég miklu örugg- ari en áður. — Og að lokum Stefán, viltu segja eitthvað um handknattleikinn í Val? — Lið okkar er ótvírætt á upp- leið og ég held, að það sem menn hafa verið að vonast eftir út úr þessu liði, komi í vetur. íslands- meistaratitillinn í útimótinu í sumar rennir stoðum undir þessa skoðun, og þótt okkur hafi gengið misjafnlega í Reykjavíkurmótinu (sem stendur yfir, þegar þetta er skrifað) þá eru það aðeins fæðingarhríðirnar að öðru meiru. Ég er Stefáni alveg sammála, hann talar af reynslu, en ég af óskhyggju, og ef þetta fer saman, þá er vel. tekizt að sækja bikarinn í hendur Hafnfirðinga, sem tóku hann af Val fyrir 14 árum síðan, og verið hafa nær ósigrandi stórveldi í hand- knattleiknum, ekki tapað útimóti á þessum árum, þar til í sumar, og má gera ráð fyrir að langt verði þar til það met verður slegið. Gera má fylli- lega ráð fyrir, að FH-ingar hafi átt sínar einlægu vonir um að takast mætti að bæta einum sigrinum enn við, svo þeir yrðu 15 talsins í röð. Að það tókst ekki hafa án efa orðið vonbrigði hinum sigursælu Hafn- firðingum. En svona er þetta, keppnin býður upp á gleði og vonbrigði. Það mætti ef til vill orða það svolítið öðruvísi: Hún býður upp á varan- lega gleði og stundarvonbrigði, því það dásamlega við þetta allt er það, að tíminn breiðir yfirleitt yfir allar sorgir, og 1 minningunni verður þetta samfelld skemmtun, sem yljar, þegar árin líða. Á íslandsmótinu í sumar kom meira til en töp og sigrar, og átti það að vera aðalinntak þessa greinar- korns. í liði F. H. lék maður, sem leikið hefur í öllum þessum mótum, sem FH hefur unnið svo glæsilega, og er nær öruggt að það met verður varla slegið á næstu áratugum. Maður þessi er Birgir Björnsson, kunnur öllum þeim, sem fylgzt hafa með handknattleiknum s.l. 15—20 ár. Og margir munu þeir hafa verið sem hefðu unnt Birgi þess að verða ís- landsmeistari í 15. sinn í Útimótinu í handknattleik í röð. Það mun ekki á aðra hallað þó sagt sé, að Birgir hafi verið einn virkasti handknattleiksmaður þessa lands í öll þessi ár. Hann hefur ver- ið stoð og stytta félags síns á leik- velli. Utan vallar hefur hann ekki verið síðri, og á hann vafalaust einn ríkasta þáttinn í samheldni þeirra FH-inga, en FH hefur sem kunnugt er verið forustufélag í handknatt- leiknum í fjölda ára. Þessi starfstími Birgis og sá leikjafjöldi sem hann hefur að baki fyrir FH eða nær 400, talar sínu máli um viljastyrk og elju fyrir fé- lag sitt. En þó að Birgir hafi verið virkur þar, er þar með ekki sögð öll sagan. Hann hefur verið valinn til að leika í landsliði íslands 29 leiki og oft kjörinn sem fyrirliði í þeim leikjum. Segir þetta nokkuð til um getu hans sem handknattleiksmanns. Birffir Björnsson, með sijfurkrans seni fer honum vel. Vegna reynslu sinnar og þekkingar á handknattleiknum hefur hann ver- ið um árabil landsliðsþjálfari Hand- knattleikssambandsins. Þó að Birgir hafi haft meira en nóg að gera í sambandi við félag sitt og eigin þjálfun, sem hann hefur sannarlega ekki vanrækt, hefur hann rétt einstökum félögum hjálparhönd, þegar illa hefur staðið á. Þannig minnumst við Valsmenn hans með þakklátum huga, þegar hann hljóp undir bagga hjá Meistaraflokki einn veturinn, og gerði það af sínum al- kunna áhuga. Og enn er Birgir fullur áhuga og í fullu starfi fyrir handknattleikinn, og á vafalaust eftir að vera það enn um áraraðir. Það eru einmitt svona menn, sem íþróttahreyfinguna vantar, menn sem gefa fordæmi með áhuga sínum, krafti og elju. Ef til vill sjáum við þetta ekki nema með öðru auganu, sem verður til þess að við veitum þeim ekki þá viðurkenningu, sem þeir eiga á meðan þeir eru og heita. Það gæti þó verið þeim örvun og hvatning í starfi að finna að sá vilji og sú orka, sem í þetta er lögð, sé metin um leið og verkið er unnið. En hvað um það, Birgir hefur skrifað merkilegt blað í sögu handknatt- leiksins á íslandi, og hafi hann þökk fyrir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.