Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1933, Side 33

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1933, Side 33
31 þau boð út ganga að hann mundi sjálfur hefja um- ferð um landið til ræðuhalda. Var það þó ekki fyr en aðeins mánuði fyrir kosningar að hann hóf þessa umferð sína. Kunnugir segja að svo líti út sem hann hafi haft miður heppilega ráðunauta í kosn- ingabaráttunni, og að það sama gildi að einhverju leyti um forsetastörf hans. Að þessu viðbættu sýndist hann ekki í ræðum sínum geta vakið þjóð- ina til meðvitundar um gagnsemi stefnu sinnar, eða kveikt eldlegan áhuga í hjörtum manna fyrir hugð- arefnum sínum. Menn virtust hafa slegið því föstu með sjálfum sér, að hann hefði ekki framar upp á neitt að bjóða. Kom hér fram sem oftar að það er erfiðara að verja en sækja. Roosevelt kom fram í hlutverki sækjanda frá upphafi. Hann beindi orðum sínum til fjöldans, sem var atvinnulaus, óánægður og vonsvikinn. Hann bauð mönnum “nýja tilraun.” Þetta var grunntónninn í sókn hans: “Á bændabýlum vorum, í stórborgum, bæjum og þorpum, eru miljónir borg- ara sem ennþá ala þá von að hinir fyrri lifnaðar- hættir þeirra og hugsjónir séu ekki að eilífu úr sögunni. Þessar miljónir mega ekki og skulu ekki vona árangurslaust. Eg legg mig fram; eg lofa yður nýrri tilraun fyrir hina Amerísku þjóð. Látum oss alla koma fram sem spámenn nýrra tíma, sem einkennist af framsókn og karlmensku. Þetta er meira en pólitísk barátta. Þetta er herkall. Veitið mér hjálp yðar, ekki aðeins til að ná atkvæðum, heldur til að vinna sigur í þessari krossferð til þess að endurreisa velgengni með þjóð vorri.” Af því sem að ofan er greint er það ljóst að því fer fjarri að Roosevelt forsetaefni eða fylgismenn hans hafi ástæðu til að ofmetnast yfir þessum sigri, eða telja sig trygga í sessi. Ef það er satt sem sagt er að kringumstæðurnar skapi manninn, þá má óhætt segja að það eru atvikin sem hafa gert Roosevelt að forseta, fremur en sérstakur verðleiki hans sjálfs, eða yfirburðir. Ennþá erum vér of nærri þessum viðburðum til að geta dæmt
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar
https://timarit.is/publication/400

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.