Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1933, Page 46
44
fóstursysbur sinni í Winnipeg. Fleiri börn tóku þau
Lovísa og Einar af fátækum foreldrum, fyrir lengri
eða skemri tíma. Var heimilið í Árnanesi athvarf
Lovísa Benediktsdóttir. Einar Stefánsson.
hinna fátæku, er þröng áttu í búi. Þóttu þau ver-
ið hafa liin mestu höfðingshjón í risnu og skör-
ungsskap. Viðbrugðið var og háttprýði þeirra í
allri framkomu, og svo voru þau hjúasæl, að aldrei
réðust frá þeim hjú til annara, nema þau færu þá
að búa, svo vel gerðu þau við sitt verkafólk, er
aldrei fóru þaðan heldur með auðar hendur. Þar
með áunnu þau sér hylli hjúa sinna í dyggilegri
þjónustu, er öll vildu sem bezt gera fyrir sína góðu
húsráðendur. Var þar oft mannmargt og umfangs-
mikill búskapur. Jörðin var nytjamikil, er lá að
sjó fram, var því oft happadrjúg en erfið til hey-
fanga. Alfaravegur lá þar í gegnum héraðið. En
höfuðbólið Árnanes var sjálfkjörinn áfangastaður
vegfarenda, er áttu þar leið um. Og það var höfð-
ingsháttur og viðmót húsráðenda, sem laðaði þang-
að vergfarendur, svo þar var sjaldan gestalaust, en