Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1933, Qupperneq 87
85
áttu þrjá sonu, er hún þá flutti með til foreldra
sinna er hún varð ekkja. Þar misti hún einn
drenginn sinn á þann sorglega hátt, að hann varð
fyrir byssuskoti, er einhver óvarkár unglingur
ætlaði í mark. Gekk sá missir mjög nærri ekkj-
unni og foreldrum hennar, svo ári síðar 1928, seldu
þau búið og fluttu aftur til W. Selkirk. Þau hjón
voru hér mjög vel kynt, án þess að slá sér út til
viðkynningar annara, en lifðu kyrlátu lífi og stund-
uðu kostgæfilega sitt heimili, sem teljast mátti til
fyrirmyndar. Þess ber að geta, að hjá þeim hjónum
ólst upp að nokkuru leiti, efnilegur og gáfaður pilt-
ur, Heiðmar að nafni. Faðir hans var Björn Sam-
úelsson, vel gefinn maður, ættaður af Austfjörðum,
en dó hér miðaldra maður nýlega kominn heiman
af íslandi. Var þá pilturinn umkomulítill, er hann
kom til þeirra hjóna á Víðir. En heimili þeirra
varð honum bjargföst undirstaða til ábyggilegs
frama, sem góð sveitaheimili bezt geta orðið góð-
um og efnilegum unglingum. Og þar fyrir gafst
honum tækifæri að svala námfýsi sinni að brunnum
hinna hærri mentastofnana.
Landnemi S. V. 25.
óli Jörgen M. Friðriksson. — Hann er sonur
þeirra Magnúsar Friðrikssonar og Helgu Jörgens-
dóttur. Hann er einn hinn allra listfengasti og fjöl-
hæfasti maður til verka, sérstakt prúðmenni, glað-
lyndur og viðmóts þýður, en þó alvörugefinn. Og
kunnur hefur hann verið að þeirri mannprýði, að
hafa aldrei blakað þau vinnudýr keyri, er hann hef-
ur farið með. Óli hefir selt landnám sitt og vinnur
nú hjá Searle Grain Co. Hann er talinn vera allvel
fjáður eftir nútíma mælikvarða, og einn hinn álit-
legasti maður að sjón og reynd, mun nú vera hálf-
fimtugur, eða meir. Hann er ókvæntur og barnlaus.
Landnemi N. V. 25.
Kristján Jakob Jónasson. — Foreldrar hans voru
Jónas Jónsson og Steinunn Jónsdóttir, ættuð úr
Húnavatnssýslu, en bjuggu á Völlum í Hnausabygð,