Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1933, Qupperneq 96
94
Landnemi S. E. 2.
Tryggvi G. Einarsson. — Paöir hans er Gunnar
Einarsson, landnemi í Morden bygð. Því hafði hann
hér ekki landtökurétt, að hann tók þar land. En
Tryggvi lét foreldrum sínum eftir ábúð á þessu
landi sínu. Hann er einhleypur og ókvæntur. Faðir
Gunnars var Einar bóndi í Fjallseli, Jóhannesson
bónda þar, Jónssonar bónda á Aðalbóli í Hrafnkels-
dal, Jónssonar. Móðir Gunnars var Þórunn Bjarna-
dóttir Hildibrandssonar. Kona Gunnars er Guðrún
Jóhanna dóttir Jóns Jónssonar og Guðnýjar Sigurð-
ardóttur, er tóku land í N. Dakota og nefndu Nýja-
bæ. Guðný var systir Sigurðar skálds ísfelds. Böm
þeirra hjóna eru: 1. Tryggvi, sem hér er getið; 2.
Jóhanna Guðríður, kona Gísla Jóhannssonar; 3.
Jónína Þórunn, gift enskum manni; 4. Gunnlaugur
Júlíus; 5. Sigríður, gift frönskum manni! 6. Elín
Guðný, gift frönskum manni; 7. Jón; 8. Gunnar
Jónas; Einar og Guðný, dóu ung. Gunnar er maður
listhæfur, nærfærinn við skepnur, komið þar oft að
góðu liði. Hefur þá komið fyllilega í Ijós að læknis-
hæfileka heíur hann haft í ríkum mæli. En bú-
maður er hann máske ekki, — eða svo segist hon-
um sjálfum frá. — En hann þakkar sinni góðu
konu það sem hann hefur komist áfram með barna
liópinn, mun það að miklu leyti rétt vera, því hún
er ágætiskona er rækir betur heimilisskyldurnar,
en að kynna sig útifrá. En hitt er víst að Gunnar
er bæði víðsýnn og útsjónargóður. Tryggvi gekk
sjálfboði í Canada-herinn, dvaldi hann þá lengst á
Englandi og stjórnaði þar sögunar verkstæði, er
þótti fara vel úr hendi.
Landnemi S. V. 2.
Einar J. Sigurðsson. — Hann er sonur Jobs Sig-
urðssonar, en albróðir Jólfannesar Tiyggva (S. V.
1.). Hann gekk í Canada-herinn og hlaut fyrir það
annan landtökurétt, er hann tók S. E. 14 23. Hann
hefur sögunarmylnu í félagi við Tryggva son Gunn-
ars, starfrækja þeir hana vel og kappsamlega.