Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1933, Síða 118
116
Jónasson, Lárus Th. Björnsson, Isak Jónsson, Guðmundur
Jónsson, Kristinn Fr. Kristinsson, Sigurður Guðmundsson,
Jón Karvelsson, Thórarinn Stefánsson, P. J. Magnússon,
Jón J. Hornfjörð, Thorst. Hallgrímsson, Jón Halldórsson,
Guðný Indriðason, Thórdur Helgason, Daníel Pétursson,
Einar Stefánsson, Björn J. Bjömsson, Jón Sigurðsson,
Gisli Arnason, Jón G. Gunnarsson, Karvel Halldórsson, Jós-
ef Benjaminsson, Svanberg Sigfússon, Guðm. Jóhannesson,
Sigurður Arnason, Thorleifur Sveinsson, I. Ingjaldsson,
Franklin Pétursson, Metúsalem Jónsson, Finnbogi Finn-
bogason, Halldór Stefánsson, Sigurgeir Einarsson, Jón
Stefánsson, Jakob Björnsson, Guðmundur Jónsson, Berg-
ur Jónsson, M. Magnússon, Kristj. B. Snæfeld, Eggert Jón-
asson, Jón Jónsson jr., Helgi Pálsson, Svanbjörg Sigurðs-
son, Gísli Jónasson, Guðrún Ingólfsdóttir, Gunnar Oddsson,
Sigurður J. Hlíðdal, Magnús Jónasson, Sigurður Finnsson,
Jóhannes Sigvaldason, Thorgr. M. Sigurðsson, Tryggvi
Ingjaldsson, Thorst. Sveinsson, Jón Skúlason, B. Marteins-
son, Asbj. Pálsson, G. M. Blöndal, G. O. Einarsson, P. C.
Jónasson, Jón Pálsson, E. S. Bárðarson og Baldvin Jónsson.
— Alls eru á þessum gömlu skjölum, fyrir utan þá, sem
beint eru stofnendur félagsins, áttatíu og sjö nöfn.
Margir aðrir hafa auðvitað gengið í félagið, og eru
nöfn þeirra hingað og þangað á víð og dreif í fundargern-
ingum frá fyrri og seinni árum. Að smala þeim nöfnum
öllum saman, er um það bil ógerningur, með því Iíka, að
margir eldri fundargerningar hafa farist i bruna og nöfn
ýmsra manna þar með.
Gamall málsháttur segir: “Oft eru vaskar hendur
undir vondri kápu”. Þegar félagið hóf göngu sína árið 1907,
var árferði afar erfitt. Sumarið eitthvert hið mesta 6-
þurkasumar er menn muna. Vegir þá oftast um það ó-
færir. Heyskapur varð sára lítill hjá flestum og hjá sum-
um nálega enginn.
1 þessu árferði er það, að félagið fer af stað. Kápur
sumra þeirra, er að því stóðu, hafa ef til vill verið siitnar
og miður álitlegar, en fram úr ermum þeirra stóðu þó
vaskar hendur, er röskleg handtök gátu tekið.
Partur af gömlum fundargerningi er til í skjölum
félagsins, er einhvern veginn hefir varðveizt, þegar önnur
skjöl og bækur þess fórust í bruna. Er partur þessi niður-
lag eða ef til vill síðari helmingur af fundargerð þáverandi
stjómarnefndar. Ymsar ráðstafanir eru þar ræddar og
samþyktar, og er sýnilegt, að nefndin hefir haft vakandi
gætur á hag stofnunarinnar. Undirritaðir eru Tómas Bjöms-
son, formaður og Jón Jónsson .skrifari.
Framleiðsla félagsins fyrsta árið var 10,000 pund.
Annað árið 16,000. Þriðja árið 20,000. Fjórða árið 25,000,
og fimta árið (1911) 29,000 pund. Næsta ár er framleiðslan
lítið eitt minni, er þá 28,000 pund, en nær sér aftur upp
í 30,000, árið eftir, 1913.