Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1948, Síða 28
28
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
vestur-íslenzkum blöðum og tímaritum. En þá fyrst mun
það koma á daginn, hversu merkilegt ljóðskáld hann er,
þegar gefin verður út heildarútgáfa af frumortum og
þýddum kvæðum hans, því að það verður bæði efnis-
mikið safn og f jölskrúðugt að sama skapi; vonandi verður
þess eigi langt að bíða, því að það verður verulegur feng-
ur öllum ljóða- og bókmenntavinum.
Þó Sigurður eigi heimsvíðan sjónhring og hafi dvalið
fjarvistum frá ættjörðinni í svo að segja hálfa öld, ber
hann, eins og kvæði hans, t.d. hin mörgu Islandsminni
hans, og ritgerðir vitna, djúpa og einlæga ást í brjósti til
ættjarðarinnar og heimaþjóðarinnar. í hjartahlýju kvæði
“Á Sumardaginn fyrsta 1944” (Heimskringla) segir hann
meðal annars:
“Blessað landið söngs og sagna
sumri kann að heilsa og fagna.
Allir, sem þar áttu heima,
ímynd þess i minni geyma.”
Hinsvegar er honum þjóðarrembingur hvimleiðm',
allt skjall og skrum í þeim efnum; en hann vill, að þjóð-
systkin hans, heima og erlendis, varðveiti og ávaxti dýr-
keyptar menningarerfðir sínar. Hann er metnaðargjarn
fyrir hönd Islendingsins, því að hann er fasttrúaður á
sigurmátt hins bezta í Islendings eðhnu. En heilbrigður
metnaður er hverri þjóð og hverjum einstaklingi lyfti-
stöng til framsóknar.