Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1948, Blaðsíða 41
JÓN K. ÓLAFSSON
fyrrv. ríkisþingmaður í Norður-Dakota
Eftir Richard Beck.
1 hópi þeirra Islendinga í Norður-Dakota, sem gétið
hafa sér gott orð fyrir langa og margþætta hlutdeild í
opinberum málum, bæði innan sveitar sinnar og utan,
stendur Jón K. Ólafsson framarlega. Hefir hann um langt
skeið komið mikið við almenn mál heima í héraði sínu og
átti einnig, sem fulltrúi þess, sæti á ríkisþinginu í Norð-
ur-Dakota árum saman. Starfsferill hans á vettvangi
opinberra mála er því vaxinn, að verðugt er að rekja hann
nokkuru nánar og halda honum á lofti fremur en gert
hefir verið fram að þessu.
Jón K. Ólafsson (í daglegu tali nefndur “John”) er
kvistur sprottinn af traustum stofni í báðar ættir. For-
eldrar hans voru þau Kristinn Ólafsson Jónssonar bónda
og hreppsstjóra á Stokkahlöðum í Eyjafirði og Katrín
Guðríður Ólafsdóttir prests Guðmundssonar á Hjalta-
bakka og Höskuldsstöðum og fym konu hans Þórkötlu,
hálfsystur Þorleifs eldra í Bjarnarhöfn. Geta má þess
einnig, að Pétur bóndi og dannebrogsmaður á Hrana-
stöðum er hálfbróðir Kristinns, sonur Ólafs Jónssonar ög
seinni konu hans.
Þau hjón Kristinn Ólafsson og Katrín fluttust vestur
um haf í “stórhópnum fyrsta”, sem svo hefir verið nefnd-
ur, sumarið 1873, og stigu af skipsfjöl í Quebec í Canada,
en förinni var heitið til Milwaukee-borgar í Wisconsin í