Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1948, Side 43
ALMANAK
43
Bergman hins kunna lögfræðings og yfirréttardómara í
Manitoba), en brúðurin var systurdóttir Kristins Ólafs-
sonar. Til prýðis var kofinn tjaldaður innan með línlök-
um, sem safnað hafði verið saman meðal nýlendubúa, og
leit hann þá út sem
hvítt tjald. Er þessa at-
burðar getiðhértil þess
að sýna, við hve kröpp
kjör frumbyggjamir át-
tu að búa framan af
árum og úrræðasnilli
þeirra, enda gengu þeir,
er fram liðu stundir,
sigrandi af hólmi. An-
nað dæmi má og nefna
í því sambandi. Sökum
skógleysisins á nýlend-
usvæðinu, varð þröngt
inn eldsneyti, en pen-
ingar eigi fyrir hendi til
að kaupa það annars-
staðar; til þess að bæta
úr þeirri neyð, tóku
menn það til bragðs að
brenna heyi, sem snúið
var saman í harðar visk-
ar, og bætti það furðanlega úr þörfinni.
Vorið 1880 tóku þau foreldrar Jóns sig upp á ný og
fluttu búferlum til Norður-Dakota, ásamt Eiríki H. Berg-
man, Jóni Brandssyni (föður dr. B. J. Brandson hins við-
fræga skurðlæknis). Að farartækjum höfðu menn tjald-
aða vagna með akneytum fyrir, og tók ferðin heilan
mánuð, en nú fara menn þá leið á einum degi í bíl. 1
Norður-Dakota nam Kristinn faðir Jóns land í Garðar-
byggð og býr. Jón á föðurleifð sinni og nokkrum hluta af
heimilisréttarlandi Jóns Brandssonar.
Jón K. Ólafsson