Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1948, Page 45
ALMANAK
45
menn: Jón Hermann (f. 4. nóv. 1916), útskrifaður í efna-
fræði af ríkisháskólanum í Norður-Dakota (University of
North Dakota), nýkominn heim úr herþjónustu og tekinn
aftur við starfi sínu á efnafræðis-rannsóknarstofu hveiti-
myllu ríkisins í Grand Forks (State Mill and Elevator);
Brandur Theodor (f. 20. júní 1918, d. 20. des. 1940), við
nám á ríkisháskólanum, er hann fórst í flugslysi í Grand
Forks, óvenjulega mikill efnismaður; og Marino Magnús
(f. 23. okt. 1920), sem einnig hefir stundað nám á ríkishá-
skólanum, en liefir nú tekið við búsforráðum á föðurleifð
sinni.
Skulu þá talin hin helstu opinber störf, sem Jón K.
Ólafsson hefir gengt um dagana. Árið 1908 var hann
kosinn í sveitarstjóni (County Commissioner) og skipaði
þann sess í samfleytt átta ár. Sveitarráðssetrið var á þeim
árum flutt frá Pembina til Cavalier og nýtt ráðhús bvggt
á síðari staðnum; fylgdi því mikið verk og vandasamt.
Við árslok 1916 var kjörtímabil Jóns á enda, og var það
þá ætlun hans að láta af opinberum störfum, en það fór á
annan veg. 1 sambandi við stríðssókn Bandaríkjanna, en
þá stóð yfir Heimsstyrjöldin fyrri, hlóðust ýms störf á
hann; meðal annars var hann umsjónarmaður sölu stríðs-
verðbréfa landsstjórnarinnar í Garðar-byggð og formaður
deildar Rauða Krossins þar; auk þess annaðist hann fjár-
söfnun til líknarstarfa á stríðsárunum.
Að loknum stríðsárunum varð um stund nokkurt hlé
á opinberum störfum af hans hálfu, en jafnhliða dró nú
að því, að hann gerðist þátttakandi í þeim á víðtækara
grundvelli en verið hafði. Stjórnmálabarátta í Norður-
Dakota var á þeim árum harðsótt mjög, og var Jón valinn
til þess að sækja um þingmennsku í Pembina-héraði undir
merkjum hinna íhaldssamari manna í stjómmálum, sem
andstæðir voru hinum nýja stjórnmálaflokki “The Non-
partisan League”, sem þeim þótti of róttækur og fara of
geyst í skoðunum og gjörðum. Náði hann kosningu og