Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1948, Síða 75
ALMANAK
75
í Winnipeg. Að kveldi þess 27. var aldarf jórðungsafmælis
kirkjufélagsins minnst með fjölsóttri og virðulegri sam-
komu, er séra Eyjólfur J. Melan, forseti félagsins, stýrði.
Séra Halldór E. Johnson var aðalræðumaður, en meðal
þeirra, sem fluttu kveðjur, voru séra Valdimar J. Eylands,
forseti Þjóðræknisfélagsins, séra Egill H. Fafnis, forseti
Kirkjufélagsins lúterska, séra Eiríkur Brynjólfsson frá Út-
skálum, fyrir hönd biskups og prestafélags fslands, og
séra Albert E. Kristjánsson. Séra Eyjólfur J. Melan var
endurkosinn forseti Hins sameinaða kirkjfélags. — Sam-
tímis var haldið tuttugasta og fyrsta ársþing Sambands
kvenfélaga kirkjufélagsins. Mrs. S. E. Bjömsson var end-
urkosin forseti sambandsins; Mrs. Sigríður Ámason, Win-
nipeg, var kosin lífstíðarfélagi í Allsherjar Sambandi úni-
tariskra og annara frjálstrúarkvenna í Boston, og þær
Mrs. Guðrún Anderson, Winnipeg (áður í Piney) og Mrs.
Thora Finnbogason, Langruth, voru kosnar heiðursfél-
agar Kvennasambands kirkjufélagsins.
Júní—Mrs. Thelma Guttormsson-Wilson píanó-leikari
kosin forseti hljómlistarfélagsins Junior Musical Club í
Winnipeg.
6. júlí—Sextíu ára landnámsafmæli íslenzku byggðanna
austan við Manitoba-vatn haldið hátíðlegt að Lundar með
fjölþættri og tilkomumikilli samkomu, sem talið er að
•3000 manns liafi sótt. Séra Halldór E. Johnson var sam-
komustjóri, en Kári Byron sveitaroddviti bauð gesti vel-
komna. Aðalræðumenn voru Paul Reykdal, Skúli Sigfús-
son, fyri'v. fylkisþingmaður, séra Albert E. Kristjánsson og
dr. Richard Beck. Kveðjur fluttu menntamálaráðherra
Manitobafylkis, Hon. J. C. Dryden, fyrir hönd fylkisstjóm-
arinnar, G. L. Jóhannson ræðismaður, af hálfu íslenzku
ríkisstjómarinnar og séra Valdimar J. Eylands, forseti
Þjóðræknisfélagsins.
6. júlí—Séra Eric H. Sigmar settur inn í prestsembætti
sitt í Argvle við hátíðlega athöfn, að viðstöddu marg-