Heimilisvinurinn - 01.05.1906, Blaðsíða 26
26
HEIMILISVINURINN
er hann kom aftur. „Allir þágu þeir matvælin“,
sagði hann, „nema kona ein, sem sat og var að
lesa í helgibókunum". Konungur kvaddi þá Chundra
Lela til fundar við sig; var hún þá leidd inn til
drotningarinnar og tignarkvenna hennar.
„Hvaðan kemur þú?“ spurðu þær, „og hvers
vegna vildir þú ekki þiggja matinn, sem vér send-
um þér?“
„Ég á heima í Nepal", svaraði hún; „faðir
minn var hirðprestur konungsins í Nepal. Ég kosta
mig sjálf á ferðum minum og kaupi mér mat sjálf“.
„Hvernig stendur á því, að þú kemur hingað
svona langt að“, spurðu þær aftur.
„Ég er að ferðast til að leita guðs og fá lausn
synda minna“. Og nú sagði hún upp alla sögu
sína og konungur og drotning hlýddu á. Þau kom-
ust bæði við af þeim miklu raunum, sem hún
hafði ratað i á pílagrímsför sinni.
„Alt þetta hefi ég þolað“, sagði hún að lokuin,
„í þeirri von, að ég myndi finna guð“.
„Þá mælti konungur: „Þú ert jafntigin dóttir
hirðprests vors; þess vegna skaltu njóta sama heið-
urs, eins og þú sért vor dóttir. Dveldu hjá oss og
hættu ferðum þínum! Þú skalt vera hofgyðja i
húsi voru“.
Hún þáði boðið. Konungur lét byggja henni
hús og fékk henni þjóna. Hún varð nú ein aí
konungsfólkinu, kendi konunum Sanskrít, las í hinum
helgu bókum fyrir þeim og hafði guðsþjónustuna