Heimilisvinurinn - 01.05.1906, Blaðsíða 38
38
HEIMILISVINURINN
Kona þessa manns æskti þess, að Chundra Lela
kæmi til hennar og læsi helgibækurnar fyrir sig-
Yarð hún svo fegin komu hennar, að hún fékk
þvi á leið komið við mann sinn, að hann fengi
henni sérstakt herbergi; gat hún búið þar út af
fyrir sig með allar myndirnar af skurðgoðum
hennar, sem hún hafði haft með sér á allri píla-
grímsferðinni. í húsi þessa embættismanns veitti
Chundra Lela mörgum konum tilsögn í helgibók-
unum og framdi guðsþjónustuna fyrir þær, enda
þótt hún hefði sjálf mist alla trú á guðunum.
Henni stóðu líka opin heimili margra tiginna
indverskra ætta og varði öllum sínum tíma til að
veita lærisveinum sínum fræðslu í helgibókum
Indverja. En þó kom svo, að hún fékk svo mikla
óbeit á guðamyndum sínum, að hún safnaði beim
einu sinni saman öllum og bar þær heim til hjóna,
sem voru af mjög lágum stigum. Hún gaf kon-
unni þær ailar og sagði: „Þú getur tílbeðið þess-
ar myndir, ef þig langar til; ég er búinn að til-
biðja þær í mörg mæðusöm ár, en árangurslaust;
ég dýrka þær aldrei framar. Það er enginn sann-
leikur í guðatrú Indverja; ef svo væri, þá hefði eg
fundið hann“.
Hún kom oft inn i hús hins unga fóstur-
sonar síns. Systir hans, Parborti, giftist um Þ®1'
mundir og flutti þá í hús tengdaföður síns í öðrum
hluta bæjaríns; þar hafði trúboði, dr. Philips, sem
þá var dáinn, boðað kristna trú. Systir þess trú-