Heimilisvinurinn - 01.05.1906, Page 30
3®
HEIMILISVINURINN
einhvers skurðgoðsins, þá var hún vön að biðja á
þessa leið: „Ef þú ert guð, þá birztu mér; réttu
út höndina og taktu á móti fórninni, sem ég fseri
þér. Láttu mig sjá eitthvað, heyra eitthvað, verða
vara við eitthvað, sem gefi mér vissu um hyll'
þina að syndin min hin mikla sé mér fyrirgefin
og þú hafir veitt mér viðtöku.“ En henni var
engin vísbending gefin, hún fékk hvorki hvíld né
frið. Æ, þessi löngu og erfiðu pílagrímsár! Ogþó
hafði faðirinn á himnum meðaumkvun með ves-
lings villuráfandi barninu sínu. Hann fyigdi henni
gegnum djúp myrkranna. Loks lét hann einn aí
sendiboðum sínum boða henni fagnaðarboðskap
Krists, og hún trúði honum og fann þann frelsara,
sem hún hafði fálmað eftir í mörg ár í blindni-
Hxín sér að Bramatrúin er tál.
Chundra Lela hafði nú tekið sér bólfestu þar
sem heitir Mursheclabad. Bálin fimm stóðu kring-
um hana og hún tilbað skurðgoðslíkneskið
þar. Hópar manna fóru fram hjá henni og þús-
undir manna beygðu sig fyrir henni og kystu
öskuna af fótum hennar. Meðal annara kom líka
drottningin í Minor í Assam þangað. Hún heils-
aði henni hka með lotningu. Chundra Lela hafði
heyrt, að sumt af föruneyti drottningar ætti að fara
heim aftur til Assam. í helgibókum sínum hafði
hún lesið, að helgistaðir væru i Assam og því hafði
hún staðráðið að ferðast þangað. Hún bað drottn-