Heimilisvinurinn - 01.05.1906, Side 49

Heimilisvinurinn - 01.05.1906, Side 49
HEIMILISVINURINN 49 Hún segir frá því, að hún hafi einu sinni ferðast 1 gegnum frumskóg, um nær ófæra vegu og hafði þá ekkert annað til matar og drykkjar, en vökva úr jurt, sem hún fann á veginum. Þeg- ar leið að kvöldi, þá bar hana að litlu þorpi, og þó að hún væri nú svona vegmóð og svöng, þá sett- ist hún þar niður og fór að vanda að prédika fagnaðarerindið fyrir þeim mönnum, sem þyrptust utan um hana og margir þeirra höfðu ekki heyrt fagnaðarboðskapinn fyrri en í það skiftið. Hún varð svo full af áhuga, að hún gleymdi þvi alveg, að hún var hungruð, þangað til einhver kona spurði hana, hvað hún ætti að hafa til matar. „Það veit ég ekki“, svaraði Chundra Lela. Konan spurði þá, hvort hún mætti ekki færa henni eitt- hvað að borða. Konan kom aftur að vörmu spori nieð indælan kjötrétt á fati og hrísgrjón með; þar að auki færði hún henni mjólkurhlaup og sumt af þvi góðgæti, sem þarlendir menn neyta. Chundra Lela þakkaði guði fyrir það, að hann hafði bætt svo ríkulega úr þörf hennar. Síðan íleygði hún sér niður á jörðina og svaf vært til næsta morg- uns; vaknaði hún þá endurnærð af svefninum, til að gegna störfunum þann daginn. Seinna meir hvarf hún aftur til Midnapúr til að aðstoða dr. Philips við starf hans þar í um- ■dæminu. Þegar hún nú einu sinni lagði af stað til að prédika, þá sagði dr. Philips við hana: „Ég «r hræddur við að láta þig ferðast svona peninga- 4 L

x

Heimilisvinurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisvinurinn
https://timarit.is/publication/419

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.