Heimilisvinurinn - 01.05.1906, Page 65
HEIMILISVINURINN
65
sem þarlendir menn verða fyrir, sem taka kristni ?
Það er erfltt fyrir Norðurálfubúa að skilja, hve
mikið það er, sem indverskur maður leggur í söl-
urnar, er hann lætur taka sig í samfélag kristinna
manna, og þess vegna eru þar svo margir kristnir
á laun, sem aldrei geta öðlast dýrð og frið hjálp-
ræðisins í Kristi.
„Hvað iízt þér?“ sagði Chundra Lela einu
sinni við mig, sem rita þessa sögu, þá er hún eftir
venju sinni settist á gólfið við fætur mjer. „Vinir
mínir“, sagði hún, „hafa bygt mér hús til að deyja
ú Þegar þeir sögðu mér frá þessu fyrst, þá sagði
ég: „Hvað er þetta — hús til að deyjai! Vitið
t>ér þá, hvar ég á æfi að slíta ? Það verður, ef til
vill, í járnbrautarlest eða á fljótagufubát eða ég dey
ein míns liðs í frumskógunum, eða ég dett dauð
niður, þar sem ég er að prédika á götunni. Hvernig
getiðþérbygt mér hús til að deyjaí, herrar mínir“?
„Satt er það“, sögðu þeir, „vér vitum ekki,
hvar þú átt að deyja,. En þú getur orðið sjúk aftur,
eins og fyrir nokkrum mánuðum síðan, eða orðið
breytt og þarfnast hvíldar, og þá er þér gott að
eiga hús fyrir þig, sem þú getir átt að að hverfa".
„Ó, kæru vinir mínir! Þér angrið mig með
l>essu. Hvað á ég að gera með hús. Ég vil ekki
eiga neitt til að hirða um og svo þarf peninga til
að halda því við“. „Það er satt“, sögðu þeir, „og
Þess vegna viljum vér gefa þér árspeninga, meðan
Þú lifir, svo að þú getir borgað út af þeim lítið eitt
S