Heimilisvinurinn - 01.05.1906, Page 67

Heimilisvinurinn - 01.05.1906, Page 67
HEIMILISVINURINN 67 fjarlægjast guð meir og meir, þangað til þeir að lokum verða algjörlega á valdi Satans — og þá er sú synd komin, er hvorki verður fyrirgefin i þessu né öðru lífi. Eins magnast holdsveikin smám sam- an. Fyrst ber á dálitlum lasleika, síðan koma dá- litil útbrot á hörundið, síðan rotnar fremsti kögg- ullinn af einum fingriuum, svo af öðrum, þangað til hver limurinn dettur af á fætur öðrum. Og nú brýzt sjúkdómurinn inn á við og altekur innýflin og þá slokknar lífið. Hræðilegt er það, hvernig þessi sjúkdómur færist yfir líkamann. Holdsveik- inni fylgja, eins og syndinni, nýjar og nýjar þján- ingar; menn eru skildir frá öðrum, relmir burt af heimili sínu, geta ekkert haft fyrir stafni, verða þungiyndir 0. s. frv. Og enn er eitt líkt með hoids- veiki og synd; báðar leynast þær lengi fyrir manna sjónum. Á einu barnaheimil trúboðanna var stúlka, Líza að nafni. Hún var „hungurbarn", eins og það er kallað. Foreldrar hennar voru indverskir. Hún mundi það, að hún hefði horft á, að faðir hennar var borinn úr húsinu og fluttur í skyndi til Gang- esfljótsins, af því menn álitu hann dauðvona og vildu unna honum þess, að taka síðustu andvörpin á bökkum hins heilaga fljóts. Yinir hans sátu hjá honum um hríð — en dauðinn kom ekki. Þeir urðu þá fljótt þreyttir á biðinni og keyptu nokkra menn til að gæta hans, þangað til dauðastundin kæmi. Yeslingsmaðurinn neytti hvorki matar né 5

x

Heimilisvinurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisvinurinn
https://timarit.is/publication/419

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.