Heimilisvinurinn - 01.05.1906, Page 79

Heimilisvinurinn - 01.05.1906, Page 79
HEIMIUSVINURINN 79 sína og leiddi son skólakennarans sér við höndr rann henni undir eins í grun, hvað um værí að vera og sagði: „Góði minn! Hvað á Kristján að gera hingað?“ Presturinn svaraði með mestu hægð: „Hann á að vera barnið okkar, góða mín!“ „Á hann að vera barnið okkar? Og eiga þá börnin okkar flmm að ganga út og betia?“ „Ónei“, svaraði presturinn, „drottinn segir: Hver sem tekur á móti slíku barni í mínu nafni, sá veitir mér viðtöku, og Jesú Kristi munt þú þó ekki viija vísa á dyr?“ „ Ónei, en.....“ „Ekki eitt orð meira, heillin mín! Þú veizt, að ég reiði mig fyllilega . og staðfastlega á guðs orð, og þar mun koma, að þú fær líka að reyna, hversu sönn þau eru. En nú skulum við fyrst og fremst sýna nýja barninu okkar, hvar herbergið hans Hinriks er; þeir skulu verða stallbræður upp frá þessari stundu". Prestskonan þekti manninn sinn svo vel, að hér dugðu engin mótmæli. Hún tók þegjandi í hönd drengsins og leiddi hann inn í herbergi elzta sonar síns, en á honum hafði hún sérstakt eftir- Iseti. Hún mælti ekki eitt vingjarnlegt orð við Kristján litla, heldur snóri hún sór að honum, áður en hún fór út úr herberginum og mælti: „Gættu þess nú, að gera honu Hinriki mínum engan ó- skunda. Þú ert víst mesti óþektar-hnokki".

x

Heimilisvinurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisvinurinn
https://timarit.is/publication/419

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.