Heimilisvinurinn - 01.05.1906, Side 82

Heimilisvinurinn - 01.05.1906, Side 82
82 HEIMILISVINURINN og þegar hann stóð upp frá bæninni og gekk í liægðum sínum heim til sín, þá sagði hann við sjálfan sig: „Bezta skeiðið æfi minnar er nú lík- lega á enda; en hingað til heíir drottinn hjálpað mér, og það mun hann framvegis gjöra. Já, guð minn góður, ég fel mig í þínar hendur; hvert sem þú leiðir mig, þangað vil ég fara“. Þegar Kristján var kominn heim, gekk hann til herbergis sins, settist niður og leit í huga sér yfir iiðna daga. Hann mintist nú þess, að fósturfaðir hans sálugi hafði leitt hann burtu frá föður sínum deyjandi; og nú mintist hann allra hinna mörgu huggunarorða, sem presturinn hafði til hans talað á liðnum árum. — En hvað lá nú fyrir honum? Hann gat ekki búist við, því siður heimtað, að prestskonan annaðist hann framvegis; hún myndi eiga. fullerfitt uppdráttar, þó hún hefði eigi fyrir öðrum börnum að sjá en sínum. Hvernig átti hann nú að geta haldið áfram námi sínu, senr honum hafði gengið svo vel? Hann langaði svo mikið til að verða lögfræðingur; en hann átti ekki einu sinni svipað því nóga peninga til þess, að geta borgað fyrir sig þetta eina ár, sem hann átti eftir á latínuskólanum. Meðan hann sat nú þarna í þessum djúpu og alvarlegu hugsunum sínum, var (jyrunum lokið upp og stallbróðir hans Hinrik kom inn; illgjarnlegt bros lék um varir hans. „Nú eigum við þá, kæri fóstbróðir, að fara að skilja. Það er dæmalaust

x

Heimilisvinurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisvinurinn
https://timarit.is/publication/419

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.